Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1986, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986.
47
Númer sex í landsliðinu
- Veistu hver er númer sex í
landsliði íslendinga í handknatt-
leik? spurði sá sjö ára mig eitt
kvöldið þegar við vorum komnir
upp í rúm, búnir að halla okkur á
hina hliðina og ætluðum að fara
að sofa.
Nú er þetta auðvitað spuming
sem vert er að ígrunda gaumgæfi-
lega og í alvöru og kannski ætti
maður meira að segja aldrei að fara
að sofa fyrr en maður hefur velt
því talsvert lengi fyrir sér hver er
númer sex í íslenska landsliðinu í
handbolta.
í þetta sinn svaraði ég hins vegar
spurningunni einfaldlega neitandi
enda var ég óvenjulega syfjaður.
Og þar sem ég var óvenjulega
syíjaður vonaði ég að sá sjö ára
léti þar við sitja og það gerði hann
þangað til ég var að því kominn
að syífa inn í draumalandið.
- Á ég að segja þér hvað hann
heitir? sagði sá sjö ára eftir drykk-
langa þögn og hristi mig dálítið
þegar ég svaraði ekki strax.
- Nei, þakka þér fyrir, sagði ég
með svo miklum þjósti að sá sjö
ára sá þann kost vænstan að spyrja
ekki meira um íslenskan hand-
knattleik það kvöldið.
íþróttaáhugi
Löngu áður en ég byijaði að
stunda líkamsræktina mína inni í
stofu og almenningur hér á landi
gat farið að drekka gosdrykki úr
dollum, sem framleiddir eru hér-
lendis, höfðu táningurinn og sá sjö
ára tekið upp þann sið að stunda
innanhússknattspyrnu og höfðu
þeir hurðina fram á gang fyrir ann-
að markið en dyrnar inn í stofuna
hitt.
Ekki veit ég hvemig á því stend-
ur að þeim datt þetta í hug, varla
hafa þeir lært þetta af sjónvarpinu
því að þessi íþróttagrein þeirra á
til dæmis ekkert skylt við þýsku
Háaloft
Benédikt Axelsson
knattspymuna á Stöð tvö sem er
alveg eins og enska knattspyrnan
í sjónvarpinu, mörkin skoruð þegar
maður er frammi í eldhúsi að ná
sér í kaffi én þess á milli er skotið
fram hjá eða himinhátt yfir markið
sem heitir á knattspyrnumáli gott
skot en rétt fram hjá.
Til að byrja með bannaði ég þeim
að stunda þennan leik enda taldi
ég að hann hefði truflandi áhrif á
mig bæði þegar ég væri að lesa
blöðin og ekki síður þegar ég væri
að horfa á Sjúkrahúsið í Svarta-
skógi en það er þáttur sem getur
truflað mig alveg nægilega mikið
hjálparlaust.
Þessu var auðvitað ekki hlýtt
enda hlýðir ungdómurinn engu nú
til dags nema þegar pabbi og
mamma skipa elskunum sínum að
hunskast í bíó til að horfa á ein-
hverja hryllingsmynd á sunnudegi
og kaupa sér lakkris.
Svo gerðist það einn daginn að
þegar ég kom heim úr vinnunni var
enginn fótboltaleikur í gangi, tán-
ingurinn var að læra og sá sjö ára
að lita mynd af einhverjum kalli
með blátt hár í litabókina sína sem
hann er búinn að eiga síðan hann
var þriggja ára. - Nú hefur eitthvað
komið fyrir, hugsaði ég og eftir
langa mæðu gat ég dregið það upp
úr þeim sjö ára að þeir hefðu, alveg
óvart, sparkað í drottinn blessi
heimilið og brotið hann.
- Við ætluðum ekki að gera það,
sagði strákur og það var greinilegt
að hann sá eftir því að hafa brotið
drottin.
Ég fyrirgaf strákunum auðvitað
þetta óviljaverk og þegar liðin var
vika án þess að innanhússknatt-
spyma væri iðkuð á heimilinu fór
ég að hugsa um það hvort þessi
ágæti drottinn væri kannski jafn-
almáttugur og sumir vilja halda
frarn að sá í biblíunni sé því að þá
væri hægt að bæta við málsgrein-
ina um himin og jörð og ljósið og
manninn í sinni mynd: og batt enda
á innanhússknattspyrnuna í Breið-
holtinu.
En þetta var aðeins lognið á und-
an storminum því að þegar þessi
hljóðláta vika var á enda fann sá
sjö ára upp á því að fara að stunda
handbolta á sama stað og fótbolt-
inn hafði verið stundaður á áður
og þegar ég fór að nöldra sagði
hann að þetta væri ekkert hættu-
legt því að hann væri í svo lélegri
æfingu.
- Og þar að auki er ég ekki mjög
skotfastur, sagði hann og sýndi mér
nokkrum sinnum hvað hann væri
slappur í greininni.
Síðan þetta var hefur honum far-
ið mikið fram enda hefur hann lítið
gert annað en horfa á handbolta í
sjónvarpinu og spila hann hérna í
ganginum og það er þess vegna sem
hann veit hver er númer sex í ís-
lenska landsliðinu en ég ekki.
Og þegar Sjúkrahúsið í Svarta-
skógi er að gera mig brjálaðan inni
í stofu og sá sjö ára er að gera mig
vitlausan með stanslausri skothríð
í gangahurðina óskar maður þess
stundum i fullri alvöru að drottinn
sé öllu almáttugri en hann er í raun
og veru.
Kveðja Ben. Ax.
Finnurðu
átta breytingar?
20
Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragði eins. En á
neðri myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða
breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafnlega erfitt að
finna þessar breytingar en ef Qölskyldan sameinast um
að leysa þetta trúum við því að allt komi þetta að lokum.
Merkið með hring eða krossi þar sem breytingarnar eru
og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dag-
ar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum
og veitum þrenn verðlaun: Útvarpsklukku frá Sjónvarps-
búðinni h/f (verðmæti kr. 2.290,-), Vasadiskó frá Sjón-
varpsbúðinni h/f (verðmæti kr. 2.240,-) og Kassettuhirslu
(verðmæti kr. 650,-).
I þriðja helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna
heppnu en ný þraut kemur í næsta helgarblaði.
Góða skemmtun!
Merkið umslagið:
„Átta breytingar- 20“ c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykja-
vík.
Verðlaunahafar reyndust vera: Rakel Baldursdóttir,
Austurvegi 54, 710 Seyðisfirði (vasadiskó); Hildur Hauks-
dóttir, Hlíðarvegi 50, 260 Njarðvík (heyrnartól); Margrét
Björk Tryggvadóttir, Árholti 1, 400 ísafirði (nuddpúði).
Vinningarnir verða sendir heim.
i II 71
-1 * 1
1 >1 11
11
■Trn«« ™ | IVj j j I
1’
m Mk i ~
i |r
i 1