Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1986, Síða 7
51
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986.
lands. Á þessu ári blandaðist sem
sagt engum hugur um að þarna
væri mikið efni á ferð. Jóhann Þ.
Jónsson skrifar að loknu skákþingi
Reykjavíkur: „Helgi er ört vaxandi
og sennilega okkar efnilegasti
unglingur í dag. Hann á þó í harðri
samkeppni, því margir eru þétt að
baki hans og á hraðri uppleið.“
Jóhann segir ennfremur: „Er það
athyglisverðast við þetta mót hve
margir ungir menn og lítt þekktir
skipa nú efstu sætin. Er það sann-
arlega fagnaðarefni. Því sannar-
lega er þörf nýrra krafta í landsliði
okkar. Þessir ungu menn skipa það
vissulega áður en langt um líð-
ur...“
Áður en við skiljum við Helga
er rétt að taka fram að hann stend-
ur nú á þrítugu. Hann varð al-
þjóðlegur meistari árið 1979 og
stórmeistari árið 1985. Hann hefur
í dag 2560 Elo-stig.
Margeir Pétursson
Ég sé fyrst minnst á Margeir árið
1972. Hann var þá 12-13 ára gam-
all og hlaut 2. sætið í unglinga-
flokki á haustmóti TR.
Margeir fékk aftur á móti dálít-
inn skell í unglingaflokki á
skákþingi íslands 1972, lenti í
16.-24. sæti.
Ári síðar sigraði hann aftur á
móti í unglingaflokki á skákþingi
Reykjavíkur og hlaut 9,5 v. af 11
mögulegum.
Á helgarmóti TR 1973 lenti Mar-
geir í 5.-9. sæti (hálftíma skákir).
Á skákþingi Reykjavíkur 1974 varð
Margeir annar í D-riðli með 9 v.
en efstur var Þröstur Bergmann
með 9,5 v. Á skákþingi íslands 1974
keppti Margeir í meistaraflokki og
hreppti 8. sætið, þá 14 eða 15 ára
gamall.
í dag er Margeir 26 ára gamall,
lögfræðingur að mennt. Hann varð
alþjóðlegur meistari árið 1978 og
stórmeistari um áramótin 1985/86.
Harin hefur 2510 Elo-stig.
Jón L. Arnason stigur sín fyrstu spor á skákbrautinni.
unglingaflokki. Á skákþirgi
Reykjavíkur 1973 var Jón í 11. sæti
í unglingaflokki. Á helgarmóti TR
1973 lenti Jón í 17.-19. sæti og á
bikarmóti TR 1973 lenti Jón í
10.-11. sæti og Margeir í 19. sæti.
Á skákþingi íslands 1974 keppti
Jón í 1. flokki og hlaut þá 3ja sæt-
ið. Á haustmóti TR 1974 keppti Jón
í C-riðli og er þá í 2.-4. sæti.
Þremur árum síðar, 1977, varð
Jón yngsti íslandsmeistari til þessa
dags, aðeins 16 ára. Sama ár varð
hann heimsmeistari sveina, sællar
minningar, og skaut þá aftur fyrir
sig sovéskum sveini að nafni Garrý
Kasparoff sem í dag er heimsmeist-
ari í skák.
Jón varð alþjóðlegur meistari
árið 1979 og náði stórmeistartitli í
sumar er leið. Jón hefur nú 2510
Elo-stig.
Jón er 26 ára, viðskiptafræðingur
að mennt.
Jóhann Hjartarson
Á haustmóti TR 1976 kom fram
ný stjarna, Jóhann Hjartarson, þá
13 ára gamall og sigraði í B-flokki
með 81/2 v. af 11 mögulegum. Hann
sigraði einnig í unglingaflokki í
sama móti með 8 v. af 9 möguleg-
um. „Mikið skákmannsefni,“ segir
í tímaritinu Skák þegar það fjallar
um þetta mót.
Það má því segja um Jóhann að
hann komi fram á skáksviðið al-
skapaður, enda frami hans mikill
miðað við aldur.
Jóhann varð skákmeistari Is-
lands 1980, aðeins 17 ára gamall,
alþjóðlegur meistari 1984 og stór-
meistari ári síðar.
Jóhann er 23ja ára laganemi.
Hann hefur 2530 Elo-stig. Þetta er
fjórða ólympfuskákmótið sem hann
tekur þátt í .
Eftirmáli.
Þessi grein stýrist af myndum
fjórum og því fjallar hún ekki um
Guðmund og Karl Þorsteins. Aftur
á móti gaf Skáksamband Islands
nýlega út Ólympíublaðið 1986, fjör-
legt og fróðlegt blað, sem skáká-
hugamenn hljóta að fá f hendur
fyrr eða síðar.
Jón L. Arnason
Ferill Jóns er líkur ferli Margeirs
fyrstu árin enda jafngamlir. Hann
fór þó hægar af stað. Á haustmóti
TR 1972 lenti hann í 3.-5. sæti í
Frami Jóhanns Hjartarsonar hefur verið mikill og skjótur.
V erkfræðingar
Laust er starf forstöðumanns hönnunardeildar við emb-
ætti bæjarverkfræðings í Hafnarfirði. Umsóknir er greini
menntun og fyrri störf skulu berast bæjarskrifstofunni í
Hafnarfirði eigi síðar en 4. des. nk.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
T0LLV0RUUPPB0Ð
Að kröfu tollinnheimtu ríkissjóðs í Hafnarfirði og Eim-
skipafélags íslands hf. fer fram nauðungaruppboð á
ótollafgreiddum vörum og vörum sem eigi hafa verið
leystar út frá farmflytjanda í dag, laugardaginn 29.
nóvember 1986, og hefst kl. 13.30 í húsi BÚH að
Melabraut 16, Hafnarfirði.
Seld verða ýmiss konar húsgögn, s.s. rúm, skápar,
stólar, borð, sófar (Happyhúsgögn). Auk þess verður
selt ávaxtamauk, leikföng o.fl.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, Garðakaupstað,
og á Seltjarnarnesi.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
BÍLAKJALLARINN
Fordhúsinu v/hlið Hagkaups.
Símar 685366 og 84370.
Opið alla daga
kl.9-19
•y/ \%
A' / NotaðirXt^
Co / bílar
Opið laugardaga
kl. 10-17
Sími 84370.
F0RD HUSINU
Sölumenn:
Skúli Gíslason.
Jónas Ásgeirsson.
Þórarinn Finnbogason.
Hörður. Þ. Haröarson.
Framkvæmdastjóri:
Finnbogi Ásgeirsson.
Skrifstofumaöur:
Auður Haraldsdóttir.
M-Benz D-300 1984, svartur, mjög fallegur bill,
ekinn 210.000. Góð kjör, skipti mögul., kr.
795.000,-.
Árg. Ekinn Verö
Ford Sierra 1600 1984 30 430
xFord Fiesta 1978 78 115
xSuzuki Fox 1982 73 255
xMitsub. Colt 1981 116 175
xFiat Ritmo 1982 70 195
xSubaru 700 Van 4x4 1983 Uppt. 43 230
xRat Uno 45s 1984 37 220
xFord Taunus 1600 a/t 1982 56 280
xFiat Ritmo 1984 43 280
Mazda 323 st. 1979 106 150
xRat127 1983 63 140
xFiat Argenta 1982 90 280
xMitsub. Colt 1983 35 270
xFiat 127 1985 28 225
xFiat Uno 45s 1984 70 210
xFiat Ritmo 1982 75 195
xFord Taunus1600 1981 61 240
xSuzuki Alto Van 1983 40 170
XBMW730 1979 122 500
Fiat127 1985 28 200
Fiat Argenta 1982 50 295
xDodge Aries st. 1982 59 490
Toyota Camry 1985 20 550
Fiat Uno 70s 1985 11 320
xDaihatsu Charade 1983 56 240
Suzuki Fox 1983 51
xFord Sierra 2000 GL 1983 37 430
Chevrolet Monte Carlo 1978 65 300
xChrysler Le Baron 1979 71 380
Fiat127 1985 21 220
xSuzuki st/90 1985 16 300
xSuzuki Fox pickup 1984 42 460
xFiat Uno 45 1984 45 200
Útisvæöi:
Rat127 1980 91 60
xNissan Sunny 1983 59 350
xMitsub. Galant 1978 113 130
xM-Benz 280s 1978 97 690
xDatsun Stanza 1983
Econoline 4x4 1980 84 850
xEconoline 1979 350
xEconoline 1977 95 330
xSuzuki Alto 1983 40 200
Ford Fairmont 1978 98 175
Ford Flesta Ghia 1979 90 140
Mitsub. Galant 1981 76 240
Ford Escort 1300 1986 6 420
Ford Cortlna 1600 1979 110 130
Mazda 323 st 1980 110 175
Tegund
Bilar merktlr með x fást á skuldabréfi að öllu leyti eða aö hluta
J/«J/ •?/ Af / *S/ *J/ 4.1/ 4.1/ 4.V 4.1/ 4.V 4.1/ 4.1/ 4.1/ 4.1 /
/£• /S* /s* /í* /£• /S* /£• /£• /£• /£• /£• /£• /|