Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1986, Page 9
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986. 53
Richard Chamberlain í hlutverki Wallenbergs.
gerði sendiherra páfastóls þótt hann
hefði ekki leyfi páfa til þess.
Þúsundir vegabréfa
Rauði krossinn í borginni aðstoð-
aði við að afla matar og lyfja fyrir
gyðingana. Eftir stríðið varð ljóst að
ekki færri en 50 þúsund gyðingar
höfðu fengið vegabréf frá hinum
ýmsu löndum.
Haustið 1944 tóku ungverskir fas-
istar öll völd í landinu með aðstoð
þýska hersins. Á sama tíma nálgaðist
sovéski herinn landið og tímabil
mikillar óvissu tók við. Ungverskir
fasistar þekktu til Wallenbergs og
hugsuðu honum þegjandi þörfina.
Þjóðverjar hikuðu við að ráðast gegn
hagsmunum Svía.
Undir áramót varð ljóst að til tíð-
inda hlaut að draga. Sovétmenn hófu
lokasóknina um jólaleytið og stjórn-
leysi ríkti í borginni. Sveitir fasista
fóru sínu fram í borginni og settust
m.a. um sænska sendiráðið. Svíarnir
leituðu nokkrir skjóls í sendiráði
Sviss en starfsmenn þess voru enn
látnir óáreittir.
Alls staðar nálægur
Samstarfsmenn Wallenbergs sáu
hann síðast þann 10. janúar 1945.
Þá var enn barist í borginni og allt
óvíst um hvernig mögulegt yrði að
koma gyðingunum burt. Þá var ár-
angurslaust reynt að fá leyfi Eich-
manns, yfirmanns SS á svæðinu, til
að flytja gyðingana burt. Það voru
atburðir þessara daga sem hafa lagt
til megnið af þjóðsögunum sem enn
ganga af Wallenberg. Hann virtist
alls staðar nálægur. Þjóðverjar unnu
ötullega að því að koma höndum yfir
gyðinga meðan Wallenberg dreifði
sænskum vegabréfum og krafðist
þess að sænskir ríkisborgarar yrðu
látnir í friði.
Hve mörgum gyðingum var þannig
bjargað á síðustu stundu er ekki vit-
að en þeir eru ófáir gyðingarnir sem
hafa sögu að segja af Wallenberg
þegar hann birtist meðal þýsku SS
mannanna og krafðist þess að fá að
ganga úr skugga um hvort þeir hefðu
handtekið menn með sænsk vega-
bréf. Þjóðverjum var annt um að
skaða ekki sambandið við Svíþjóð
og létu undan.
Þar kom að Sovétmenn tóku borg-
ina og Svíamir, og þar á meðal
Wallenberg, lentu í höndum þeirra.
Allir fengu þó að fara frjálsir ferða
sinna nema hann. Til Wallenbergs
hefur ekkert spurst síðan svo vitað
sé með vissu. Talið er að Sovétmenn
hafi litið á Wallenberg sem njósnara
og því tekið hann til fanga.
Óljós örlög
Haft er eftir svissneskum sendi-
ráðsmönnum sem Sovétmenn yfir-
heyrðu að Wallenberg hafi þá einnig
sætt yfirheyrslum. Þegar tóku að
myndast þjóðsögur um afdrif Wall-
enbergs. Hann átti að hafa sést í
Búdapest eftir striðið. Aðrar sögur
voru um að hann hefði látið lífið í
lokaátökunum í borginni. Langlíf-
astar hafa þó orðið sögurnar af veru
hans í sovéskum fangabúðum.
Sovétmenn neituðu í fyrstu að vita
nokkuð um afdrif Wallenbergs. Það
sama gilti raunar um nokkra sviss-
Wallenberg á úrslitastundu í Búdapest.
neska sendiráðsmenn sem síðar var
skilað í skiptum fyrir sovéska lið-
hlaupa þannig að Sovétmönnum
gekk illa að sannfæra sænsku stjórn-
ina um að þeir hefðu Wallenberg
ekki i haldi.
Fljótlega eftir stríðið fóru einnig
að berast sögur frá mönnum, sem
setið höfði í sovéskum fangelsum, um
að Wallenberg hefði verið þar í haldi.
Sænska stjórnin átti þó óhægt um
vik að beita sér í málinu því það gat
skaðað mjög samskipti landanna því
Sovétmenn neituðu staðfastlega að
vita nokkuð um örlög Wallenbergs.
Síðar hafa Sovétmenn þó viður-
kennt að hafa tekið Wallenberg til
fanga og að hann hafi látist í fang-
elsi árið 1947. Ástæðurnar fyrir
handtöku Wallenbergs eru þó óljós-
ar. Þó er talið að Sovétmenn hafi
haldið að Wallenberg hafi gegnt öðru
hlutverki í Búdapest en að bjarga
gyðingum. Wallenberg var í Búda-
pest á vegum bandarískra samtaka
þótt hann hafi verið skráður sem
annar sendiráðsritari við sænska
sendiráðið. Þeir kunna því að hafa
grunað hann um að ganga fyrst og
fremst erinda Bandaríkjamanna þótt
sánnanir fyrir slíku hafi aldrei komið
fram.
Svíar vilja skýr svör
í Svíþjóð hafa frá stríðslokum verið
starfandi opinberar og óopinberar
nefndir sem hafa haft það verkefni
að grafast fyrir um örlög Wallen-
bergs. Þessar nefndir hafa ýmis gögn
þess efnis að Wallenberg hafi sést í
sovéskum fangelsum fram undir
þennan dag. Ef hann er enn á lífi
ætti hann að vera 74 ára gamall.
Málinu er engan veginn lokið þótt
Sovétmenn haldi fast við söguna um
dauða Wallenbergs árið 1947 og ekki
hefur sýning sjónvarpsþáttanna um
hann dregið úr áhuga almennings.
GK
s <. j | W t I) t \ SYTDOKS/ u;
A. K<f> K*KtSfwa \
hv#* *- * S<tc>d K>*■> Kmí- •
N-V'í öííí f> * H *** ■' ?
» ' 5 i
»«}.»»> i
\>- ■iv»5» «>f i }»>í »' «£<■<» í>>■«<}.rí<}»*>><r>*x«
*>*»>?<;iiCií vlíH í 5'.<ÍSL íí5: í.sfrí V'vfXSríiS Ví 4
Sy í i> if. Yí 41 < <'
Þannig voru vegabréfin sem sænska sendiráðið afhenti gyðingum í Búda-
pest.
FINM í pyRSTA SÆTI
Hafið samband í
síma 24790 eða 24966
Stuðningsmenn
Kristín, Finnur, Fanný og Ingi Þór.
atorka
ábyréð
rcynsla
Finnur Ingólfsson hefur með störfum sínum
áunnið sér mikið traust. Því hafa honum verið
falin mörg trúnaðarstörf:
• Formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands.
' Stjórnarformaður Félagsstofnunar stúdenta.
• Formaður Samb. ungra framsóknarmanna.
• í stjórn Framsóknarflokksins.
• Aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar.
Styðjum ungan mann með dýrmæta reynslu í
fyrsta sæti í prófkjöri Framsóknarmanna í
Reykjavík 29. og 30. nóv. n.k.