Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1987, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1987, Page 3
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1987. 63 Þetta Pípuhattar Vefðu teiknipappír umhverfis höfuð þitt. Límdu brúnirnar niður með límbandi. Settu hólkinn ofan á annað pappírsblað og teiknaðu umhverfis hringinn. Teiknaðu síðan annan hring öllu stærri, utan um hinn hringinn. Klipptu út. Biddu einhvern fullorðinn um að hjálpa þér að klippa innri hringinn. Klippið litlar raufir inni í hringinn og brjótið brúnirnar upp. Þá er hægt að festa hatt-barðið við toppinn. Límdu brúnirnar niður með límpappír. Búðu til fleiri hatta handa vinum þínum og síðan getið þið sýnt skemmtiatriði og list- dansf HITT! □ Þ D □ u o o 0^\ Hvað er búið að fela margar buddur í búðinni? Sendið lausn til: BARNA-DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Finndu 5 atriði sem ekki eru eins á báðum myndunum. Síðan máttu lita myndirnar vel! Sendið lausn til: BARNA-DV, Þverholti 11,105 Reykjavík. Hér eru smáupplýsingar um Morten Harket í A-ha: Nafn: Morten Harket. Foreldrar: Pabbi hans er læknir en mamma hans kennari. Hæð: 182 cm. Fæddur: 14. september 1959. Fæðingastaður: Kongsberg í Noregi. Ahugamál: Músík og trúmál. Tómstundagaman: Blómarækt. Markmið: Að finna hina einu sönnu ást. María, 15 ára í Hafnarfirði. Og María sendi okkur líka þessa sögu: Litli kanínustrákurinn og hérinn Einn morgun var glaða-sólskin. Litli kanínustrákurinn og hérinn sátu þögulir og hlustuðu á fuglana og býflugurn- ar sem svifu um í loftinu. Þá datt héranum dálítið í hug og hann sagði við kanínustrák- inn: 1 „Heyrðu, eigum við að koma í feluleik?" „Já, já, svaraði kanínustrákurinn." „Ég skal vera hann,“ sagði hérinn. Þeir byrjuðu. Hérinn taldi 1-2-3-4-5-6-7-8-9 og 10. Svo fór hann að leita. Hann leitaði og leitaði. Klukkan var orðin 11 um kvöldið og hérinn ekki enn búinn að finna kanínu- strákinn. Hérinn kallaði og kallaði, en ekkert svar. Þá fór hann heim til sín og bað alla vini og kunningja um að hjálpa sér að leita í skóginum. Það var leitað lengi, lengi en þá heyrði hérinn eitthvert snökt við hlið sér. Hann kemur þá auga á göng og kallar á leitarfólkið. Allir koma til hans og fara inn í göngin. Þar finna þau kanínustrákinn, fastan með fótinn í holu og allan útgrátinn. Þau flytja hann varlega heim og gefa hon- um heitt kakó að drekka og smurt brauð 1 að borða. Kanínustrákurinn jafnaði sig fljótt en sagðist aldrei fara aftur inn í þessi óhappa-göng. Svo sofnaði hann vært. María Steindórsdóttir, Hellisgötu 15, 220 Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.