Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Page 4
50 LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987. BRAUTARHOLTI33 - SÍMI695660. MMC Tredia, árg. 1983, beinsk., 4d., rauöur, ekinn 58.000. Verð 330.000. Vökvastýri. MMC Galant GLX, árg. 1985, 5 gíra, 4d., hvítur, ekinn 36.000. Verð 470.000. MMC Colt GLX, árg. 1987, 5 gíra, Honda Civic sp, árg. 1984, 5 gíra, 4d., hvítur, ekinn 11.000. Verð 3d., blásans., ekinn 52.000. Verð 430.000. Vökvastýri. 400.000. Vantar VW Jetta GL, sjálfsk., árg. 1985, gegn staðgreiðslu. GOH ÚRVAL NÝLEGRA BÍLA Á STAÐNUM, TÖLVUVÆDD ÞJÓNUSTA. OPIÐ: Mánud.-föstud. kl. 9.00-18.30. Laugard. kl. 10.00-17.00. VW Golt GTI, árg. 1984, 5 gira, 2d., svartur, topplúga, ekinn 46.000. Verð 550.000. Nissan Bluebird SIX, árg. 1987, 5 gíra, 5d., d-grásans., ekinn 6.000. Verð 640.000. Sem nýr. MMC Pajero SW bensín, árg. 1984, beinsk., 5d., grár, ekinn 55.000. Verð 780.000. Góður bill. Subaru hatchback, árg. 1983, beinsk., 3d., grænsans., ekinn 60.000. Verð 340.000. Oldsmobile Cutlass Ci, árg. 1985, sjálfsk., 4d., hvítur, ekinn 42.000. Verð 870.000. Toppeintak. Citroen BX 16 TRS, árg. 1984, beinsk., 5d., v-rauður, ekinn 50.000. Verð 450.000, skipti á dýrari. MMC Galant EXE 2000, árg. 1987, 5 gíra, 4d., hvítur, ekinn 3.000. Af- mælisútgáfa. Mercedes Benz 230E, árg. 1982, sjálfsk., 4d., grænsans., topplúga, ekinn 90.000. Verð 750.000. VW transport, árg. 1983, beinsk., 4d., blár, ekinn 51.000. Verð 550.000. Húsbill. Range Rover, árg. 1984, sjálfsk., 5d., grásans., ekinn 45.000. Verð 1.100.000. Álfelgur. Honda Civic, árg. 1983, beinsk., 3d., hvitur, ekinn 48.000. Verð 280.000. Audi 100 CD, árg. 1985, sjálfsk., 4d., grásans., ekinn 23.000. Verð 1.000.000. Spes bíll. Bílaj DV Flug og bíll... Æ fleiri nýta sér þann ferðamáta að kaupa flug og bíl í einum pakka og leggja síðan upp í akstur um Evr- ópu, ýmist langar ferðir eða stuttar. Margs er að gæta í akstri um Evr- ópulönd en slíkur akstur er alls ekki erfiður þegar á hólminn er komið því flestir uppgötva að umferðarmenn- ing er í flestum löndum Evrópu á mun hærra stigi en hér hjá okkur og virðing fyrir umferðarreglum meiri. Þrátt fyrir allt tal um samræmingu á milli landa, sérstaklega innan EBE, þá hefur ekki tekist að sam- ræma umferðarreglur og lög hinna einstöku landa, þannig að ökumenn þurfa að gera sér grein fyrir mismun í þeim efnum á milli landa. Hér á eftir fer stuttur listi yfir hin einstöku lönd og þau atriði sem öku- menn þurfa að hafa í huga. Gengið er út frá föstum punktum sem hafa ber í huga eins og öryggisbeltanotk- un, að í hverjum bíl sé öryggisþrí- hyrningur til nota við árekstur, slys eða ef bíllinn bilar. Vestur-Þýskaland Öryggisbeltanotkun er skylda og er sekt við því að nota þau ekki. Ef öryggisbelti eru einnig í aftursæti er skylda að nota þau. Börn yngri en 12 ára mega ekki sitja í framsæti. Holland Öryggisbeltanotkun er skylda. Börn mega aðeins sitja í framsæti í þar til gerðum barnastólum. Áfengis- mörk í Hollandi fyrir bílstjóra eru 0,5 prómill. I akstri á aðalgötum er ekki skylda að víkja fyrir sporvögn- SSSiSSS iívSis'íSvSS V .-.NN " . ipii Hraðbrautaakstur kann að virðast erfiður við fyrstu sýn en ef grundvallar- reglur góðs og öruggs aksturs eru hafðar í fyrirrúmi er hann leikur einn Belgía I Belgíu ríkja svipaðar reglur og á Norðurlöndunum. Öryggsþríhyrn- ingur er þar skylda, líkt og í V- Þýskalandi, ökumenn bifhjóla eru skyldugir að nota hlífðarhjálma. Áfengismörk eru 0,8 prómill. Lúxemborg Mjög svipaðar reglur hér hjá okk- ur. Öryggisbeltanotkun lögskipuð. Frakkland í Frakklandi gilda sérstök hraða- takmörk, þ.e. 80 og 110 km á klst. ef rigning er, eða þegar rúðuþurrkur eru í notkun á bílnum (í stað 90 og 130 km). Þar í landi mega börn yngri en 10 ára ekki sitja i framsæti bíla. Spánn Það er talið ráðlegt fyrir ökumenn, sem hyggjast aka á Spáni, að hafa alþjóðlegt ökuskírteini meðferðis. Börn yngri en 15 ára mega ekki sitja í framsæti bíla nema í þar til gerðum stólum. Portúgal Ökumenn, sem aðeins hafa haft ökuskírteini í eitt ár, mega ekki aka hraðar en 90 km á klst. Sérstök merki, 90 km, skal kaupa við landa- mærin og líma aftan á bílinn. Sviss í akstri í fjalllendi Sviss á bíll, sem kemur upp brekku, skýlausan rétt. Vörubílar með aftanívagn eiga rétt- inn fyrir fólksbílum og langferðabíl- ar eiga réttinn fyrir vörubílum. Það er skylda að kveikja ökuljósin í akstri um jarðgöng. Austurríki 1 Austurríki er hins vegar enginn sérstakur réttur fyrir bíla sem koma upp brekku. Ef blikkljós loga á neyð- arsímunum, sem eru við vegkantana á hraðbrautunum, þá hefur orðið slys á veginum framundan og skylda að hægja ferðina. Ítalía Við framúrakstur á ítölskum veg- um er skylda að nota stefnuljósin rétt. Öryggisbelti eru ekki lögbundin og engin föst takmörk hvað varðar áfengisprósentu ökumanna en þó ít- rekað að ekki má aka undir áhrifum áfengis. Júgóslavía Þar gilda svipaðar reglur og hjá okkur. Áfengismörk eru 0,5 prómill.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.