Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1987, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1987, Side 3
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1987. 21 Lucilie Fray ásamt börnunum sínum 10 sem hún þarf að hverfa frá yfir móðunu miklu vegna krabba. Stöö 2 sunnudag kl. 21.15: Hver vill elska börnin mín? Hver vill elska börnin mín? (Who will love my children?) er mjög óvenjuleg, dramatísk sannsöguleg mynd sem spannar síðasta ár í lifi sannkallaðrar hetju, Lucille Fray. Hún býr ásamt eiginmanni sínum og tíu börnum á litlu landi í Iowa er upp kemst að hún þjáist af krabbameini og á stutt eftir. Maður hennar er drykkjumaður sem.alltaf er að missá vinnuna og hún getur ekki treyst honum fyrir börnunum, þrátt fyrir að hann sé mjög góður maður. Hún ákveður að undirbúa börn sín og koma þeim í hendur góðra fósturforeldra sem hún legg- ur allt sitt í að leita uppi fyrir dauða sinn. Myndin er einkar vel gerð og höfðar til innstu tilfinninga í fólki. Eir.s gott er að vera sem best við öllu búinn og hafa tiltæk hand- klæði í sjónvarpsholinu. I aðalhlutverkum eru Ann Mhrgret sem leikur Lucille Fray og hefur hún fengið mjög góða dóma fyrir leik sinn í myndinni, Fredric Forrest sem leikur eigin- mann hennar, Cathryn Damon, Donald Moffat, Lonny Chapman og Patrica Smith. Leikstjóri er Jchn Erman en sagar. er skrifuð af Michael Bortman. RÚV, rás 2, kl. 18.00: Grillað á landsmóti Það verður mikið grillað á lands- móti UMFÍ á Húsavík um helgina og í tilefni af því og ýmsu öðru verður þátturinn Við grillið á rás 2 sendur beint út frá tjaldstæðinu á Húsavík. Efni þáttarins að sinni er nokkuð frábrugðið hefðbundnum grillþátt- um af því að á laugardaginn verður brugðið á leik með landsmótsgest- um á tjaldstæði, í gleðskap, glaumi, gríni, glensi og gamni af ýmsu tagi. Ekki er svo ólíklegt að gefin verði upp uppskrift af því hvernig á að grilla eina pylsu eða svo og aldrei er að vita nema einn og einn lands- mótsgestur verði „grillaður' í skemmtilegum spurningaleik. Fylgist því með „grillveislu laugar- dagsins" á milli sex og sjö. Grillkokkar þáttarins verða Bryndís Jónsdóttir, Sigurður Blöndal, Arnar Björnsson og Pálmi Mattíasson. RÚV, rás 1, sunnudag kl. 22.20: Vesturslóð Um þessar mundir sjá Trausti Jónsson, Hallgrímur Magnússon og Margrét Jónsdóttir um þátta- syrpu á rás 1 sem þau nefna Vesturslóð. Þar kynna þau tónlist sem allajafna heyrist ekki á öldum ljósvakans, nefnilega bandaríska tónlist frá fyrri tíð. í síðasta þætti kynntu þau söngva frá 19. öld um trúarleg efni, einkum um dauðann og lífið fyrir handan. Nokkra slíka fá útvarpshlustend- ur að heyra í þættinum á sunnu- dagskvöldið en meginefni þáttarins verður söngvar um þjóðfélagsleg efni frá síðari hluta nítjándu aldar. Er óhætt að mæla með því að menn leggi við hlustir því bæði er að lög- in eru laglega samin og einnig flutningurinn eins og best verður á kosið. Einnig er fróðlegt að kynn- ast þeim viðhorfum sem birtast í textunum um stéttarsamtök í ört vaxandi borgarsamfélagi. íslensk stúlka, Halldís Ólafsdóttir, keppti fyrir hönd Noregs i Vestur- Þýskalandi. Sjónvarpið sunnudag kl. 16.00: Evrópukeppni ungra dansara Í vor var Vestur-Þýskaland mið- depill ungra dansara en þar var efnt til mikillar keppni dansara undir tvítugsaldri. í þeirri keppni tók þátt ung íslensk stúlka. sem búsett er í Noregi. og var fulltrúi Noregs í þessari Evrópukeppni. Stúlkan heitir Halldís Ólafsdóttir og stóð hún sig með stakri prýði. Keppnin fór fram í annað sinn og er fyrirhugað í framtíðinni að efna til hennar annað hvert ár. Stjarnan sunnudag Jkl. 11.00: Viðtal við ræðismann Ítalíu á íslandi Jón Axel fær á sunnudag góðan gest í heimsókn. Ragnar Borg. ræð- ismann Ítalíu á íslandi. Hann hefur haft mikil afskipti af hvers kyns félagsmálum og er áhugamaður um Ítalíu. bæði land og þjóð. Þeir félagar munu ræða um starf ræðismannsins. í hverju það felst. innflutningsverslaun á Islandi í dag og stöðu hennar. innanlands- framleiðslu. þátttöku Ragnars í félagsmálum og síðast en ekki síst Ítalíu. Athyglisvert viðtal á sunnudag kl. 11.00 enda hefúr Ragnar frá mörgu fróðlegu og skemmtilegu að segja. Hverjir eru framtíðarmöguleikar þessa fólks? Stöð 2 laugardag kl. 20.00: íbúar jarðarinnar 5 milljarðar Á þessu ári mun fólksfjöldi verða hvorki meira né minna en fimm milljarðar. Laugardagurinn 11. júli hefur verið valinn af Sameinuðu þjóðunum til þess að fagna þessum viðburði. í þætti, sem verður á Stöð tvö, hugleiða nokkrir sérfræðingar framtíð fólks á jörðinni, svo sem framtíðarmöguleika og manníjölda á næstu árum og áratugum. Bylgjan laugardag og sunnudag kl. 8.00: Sjónvarpið laugardag kl. 21.15: Maður vikunnar nýr innlendur þáttur Nýr þáttur hefur göngu sína á laugardagskvöld í umsjá Sigrúnar Stefánsdóttur sem nýlega hefur lokið doktorsgráðu í fjölmiðlafræð- um i Bandarikjunum. 1 þessari þáttaröð mun sjónvarpið kynna vikulega einhvern þann mann sem skarað hefur fram úr á einhvern hátt eða látið gott af sér leiða í vikunni. Hér er um hálfgert lottó að ræða þar sem þetta er ákveðið á síðustu stundu og vebður ekkert sagt frá fyrr en þátturinn verður á skjá sjónvarpsins. Þátturinn er ekki bundinn við að einn einstaklingur hljóti titilinn heldur geta einnig félagasamtök og fleiri hreppt hnossið. Yfirbragð þáttanna verður jákvætt og ekki endilega frægt fólk valið maður vikunnar. Sigrún Stefánsdóttir hefur umsjón með vali manns vikunnar. Hvað myndir þú vilja heyra einn á þessari eyju? Jón Gústafsson verður að vakna snemma alla helgina, hvort sem honum likar betur eða verr. því hann verður sem fvrr með þátt á Bylgjunni kl. 8.00 á laugardags- morguninn en á sunnudag tekur hann við af Herði Arnarssvni, með- an hann spókar sig i sólinni. og leikur Papeyjarpopp. Laugardagsmorgunninn fer að mestu i tónlist úr ýmsum áttum og litið verður á það sem er framund- an, auk þess munu gestir setjast inn í stúdíóið. Sunnudagsmorgunninn verður þægilegur að vanda en klukkan 11.00 fær Jón góðan gest sem velur uppáhaldspoppið sitt, svokallað Papeyjarpopp sem bygg- ir á þeirri hugmynd hvaða tónlist viðkomandi gestur veldi sér ef hann væri einn á eyðieyju. Næstu ellefu laugardaga tekur Edda Þórarinsdóttir tali fólk sem staðið hefur framariega á sviði menningar- og listalifs. RÚV, rás 1, kl. 15.00: Bríet Héð- insdóttir nóngestur Annar þátturinn í tólf þátta syrpu Eddu Þórarinsdóttur, sem hún nefnir Nóngesti, er á dagskrá ríkis- útvarpsins á laugardag. Hún tekur þar tali fólk sem staðið hefur fram- arlega á sviði menningar- og lista- lífs í landinu. í þættinum á laugardaginn kemur ræðir hún við Bríeti Héðinsdóttur um leikhús. óperur og fleira. En síðast setti hún upp óperuna Aidu á meistaralegan hátt. Og eins og aðrir gestir Eddu í þessum þáttum velur Bríet sjálf tónlistina sem flutt verður í þættin- Jón með þægilega og óþægilega tónlist

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.