Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Side 1
 E^HMHHHMHHHHMHHMHHHi^MHHHM®EHHMH®HHHMHHMHHHIMHHHHHHHMHHHHraHHHHHIÍi!^^^^HHHMHHI Dansstaðir - Matsölustaðir - Leikhús - Sýningar - Kvikmyndahús - Myndbönd o. fl. ABRACADABRA, Laugavegi 116 Diskótek fostudags- og laugardagkvöld. ÁRTÚN, Vagnhöfða 11, sími 685090 Gömlu dansarnir á föstudagskvöld. Opið kl. 21-3. Nýju og gömlu dansarnir laugar- dagskvöld, opið kl. 22-3. Hljómsveitin Danssporið ásamt söngkonunni Krist-' björgu Löve bæði kvöldin. BROADWAY, Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500 Sveitin milli sanda leikur fyrir dansi föstu- dags- og laugardagskvöld. Stórsýningin „Allt vitlaust" á laugardagskvöld. CASABLANCA, Skúlagötu 30 Diskótek föstudags- og laugardagskvöld frá kl. 22-03. DUUS-HÚS, Fischersundi, sími 14446 Diskótek á föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöldum, opið frá 22 til 3. A sunnudagskvöld verða jasstónleikar í Heita pottinum. EVRÓPA v/Borgartún Hljómsveit hússins, Saga Class, leikurfyr- ir dansi föstudags- og laugardagskvöld. Bandaríska söngkonan Evelyn „Champagne" King skemmtir. Húsið er opið frá kl. 22-3. GLÆSIBÆR, Álfheimum Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi föstudags- og laugardagskvöld frá 22-3. HOLLYWOOD, Ármúla 5, Reykjavík Tónlist 7. áratugarins verður á föstudags- og laugardagskvöld með „Leitinni að týndu kynslóðinni". Húsið opið 22-3. Hljómsveitin Tívolí leikur. Led Zeppelin dagskrá. HÓTEL BORG, Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440 Hljómsveitin Borgarstjórarnir leikur ljúfa tónlist yfir kvöldverði. Diskótek föstu- dags- og laugardagskvöld. Gömlu dansarn- ir á sunnudagskvöld. Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur. HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími 82200 Dansleikir föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveitin Kaskó leikur. Tískusýning öll fimmtudagskvöld. HÓTELSAGA v/Hagatorg, Reykjavík, simi 20221 Hljómsveit Grétars Örvarssonar leikur fyrir dansi í Súlnasal Hótel Sögu. Skemmtidagskráin Hringekjan sýnd Iaug- ardagskvöld. Á Mímisbar leika Ámi Scheving og félagar. LENNON v/Austurvöll, Reykjavik, sími 11630 Diskótek föstudags- og laugardagskvöld MIAMI, Skemmuvegi 34, Kópavogi, sími 74240 Diskótek föstudaga og laugardaga. Ald- urstakmark 16 ár. ÚTÓPÍA, Suðurlandsbraut 26 Disjcótek föstudags- og laugardagskvöld. ÞÓRSKAFFI, Brautarholti 2, Reykjavík, sími 23333 Skoski söngvarinn Christian skemmtir í seinasta sinn um helgina. Hljómsveit Stef- áns P. leikur á efri hæð hússins föstudags- og laugardagskvöld. Lúdósextett og Stef- án skemmta gestum bæði kvöldin. Sjallinn, Akureyri „Stjörnur Ingimars Eydal í 25 ár“ um helg- ina. Amnesty vika 1987 - hefst á sunnudag Hin alþjóðlega Amnesty Intern- ational vika mun standa yfir dagana 17. til 23. október en verður formlega sett á sunnudag í Nor- ræna húsinu. Yfirskrift Amnesty vikunnar 1987 er „Langvarandi fangavist". Samtökin munu beina athygli heimsins að föngum sem dvelja árum saman innilokaðir, fongum sem haldið er ótímabundið án dóms og laga og án þess að þeir hafi hugmynd um hvort þeir muni nokkurn tíma öðlast frelsi á ný. Amnesty International var stofnað 1961 til að hjálpa slíkum fóngum en rúmum 20 árum síðar er vand- inn enn til staðar. Amnesty vikan verður formlega opnuð með dagskrá í Norræna hús- inu sunnudaginn 18. október og hefst hún kl. 16.00. Formaður sam- takanna, Ævar Kjartansson, mun setja dagskrána með ávarpi. Síðan verða tónleikar og upplestur. Þar ber hæst að Anna Guðný Guð- mundsdóttir og Sigurður I. Snorra- son munu leika Novellette fyrir klarinett og píanó eftir Atla Heimi Sveinsson. Þetta er frumflutningur verksins á íslandi. Einnig mun Þorsteinn Gauti Sigurðsson leika Etýður eftir Skrjabin og Prelúdíur eftir Rachmaninov. Arnar Jónsson mun lesa valið efni í þýðingu Sig- urðar A. Magnússonar. Sérstakur gestur samkomunnar er fyrrverandi samviskufangi, Rússinn Boris Weil. Rúnir og seiður - hjá Þrídrangi Um helgina verður Þrídrangur með námskeiö í hinum fornu rún- um og norrænum seið. Leiðbein- andi c” Tryggvi Gunnar Hansen en hann aefur unnið að endurvakn- ingu á íslenskri arfleifð á ýmsum sviðum, s.s. húsbyggingum með torf- og grjóthleðslum og kveðskap- arlist ásamt því sem hann hefur kynnt sér rúnir og seið. Á nám- skeiðinu fjallar Tryggvi um um hugmyndaheim fornmanna, tengsl þeirra viö náttúru, anda og goð. í fréttatilkynningu frá Þrídrangi segir að námskeiðið sé kynning á tækni sem auðveldar mönnum að komast í samband við frumkrafta líkama síns, tilfinninga og huga. Námskeiðin fara fram bæði laug- ardag og sunnudag frá kl. 10.00 til 18.00. Nánari upplýsingar fást hjá Þrídrangi. Eitt torfærutröllanna. Torfærutröll - í Reiðhöllinni, Víðidal Ferðaklúbburinn 4X4 halda jeppasýningu í Reiðhöllinni í Víðid- al. Um 50 torfærutröll verða á sýningunni auk nýrra jeppa. Laus- lega áætlað verður jafngildi 10.000 hrossa samankomin í vélarhúsum torfærutröllanna. Að auki verður sýndur ýmis búnaður tii vetrar- ferða, s.s. fatnaður, kort og leið- sögutæki, eins og Loran-C. Reynt verður að hafa eitthvað við allra hæfi á sýningunni, hvort sem menn leita að nýjum jeppa, huga að breytingum á fjölskyldubílnum eða vilja bara sjá hvernig sumir hafa gefið hugmyndafluginu lausan tauminn við breytingar á bílum sínum. Sýnd verða myndbönd frá tor- færuferðum félagsmanna og þar geta menn séð með eigin augum hversu langt er hægt að komast á stórum og breiðum dekkjum. Einn- ig verða á staðnum fjarstýrðir rafmagnsjeppar á torfærubrautum sem áhorfendur geta spreytt sig á. Tvisvar á dag munu svo íslands- meistar sýna hæfni sína á raf- magnsjeppunum. Sýningin verður opnuð kl. 16.00 á fóstudag og verður opin alla helg- ina. Veitingar verða á staðnum. Aðgangseyrir er kr. 300 en frítt fyr- ir börn undir 12 ára í fylgd með fullorðnum. Einstaklingur og samfélag - ráðstefna í Odda Ráðstefna með yfirskriftina „Einstaklingur og samfélag" fer fram í Odda á laugardag. Bandalag háskólamanna efnir til ráðstefnu á laugardag kl. 10.00 i Odda, húsi félagsvísindadeildar Háskóla íslands, og mun hún standa til kl. 17.00. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Einstakhngur og samfélag“. Framsögumenn eru 5 talsins og munu þeir ræða efnið frá ýmsum hliðum. Að loknum framsöguerindun- um vérða pallborðsumræöur með þátttöku framsögumanna. Ráðstefnugestum gefst kostur á fyrirspurnum til þeirra á milli erinda og í pallborðsumræðun- um. Ráðstefnan er öllum opin. Fundarstjóri verður Sigríður Dúna Kristmundsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.