Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Qupperneq 6
28 FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1987. Fyrsta frumsýnmg vetrarins á Litla sviðinu: Bílaverkstæði Badda - eftir Ólaf Hauk Símonarson Fyrsta frumsýning vetrarins á Litla sviði Þjóðleikhússins veröur á sunnudaginn, 18. október. Þá hefjast sýningar á nýju leikriti eftir Ólaf Hauk Símonarson sem nefnist Bílaverkstæði Badda. Bílaverkstæði Badda er spennu- verk sem gerist í afskekktri sveit. Sögusviðið er lítið bílaverkstæði þar sem bifvélavirkinn Baddi ræð- ur rikjum. Verkstæðið var áður í hringiðu lífsins en lenti utan þjóð- brautar þegar nýr þjóðvegur var lagður í gegnum sveitina. Verkefn- um fækkaði hjá Badda og starfs- mönnum hans samfara þessum breytingum og þau orðin mjög stopul þegar hér er komið sögu. Lífið hefur breytt um svip og tilver- an orðin fáfengileg enda er sveitin nálægt því að leggjast í eyði. Ábú- endum hefur fækkað svo mikið að skólahald í héraðsskólanum er hér um bil að leggjast niður. Dag einn skýtur Pétur upp kollin- um en hann er fyrrverandi nemi Badda í bifvélavirkjun. Pétur hefur lengi verið fjarverandi en þegar hann birtist svo óvænt koma marg- ar óþægilegar minningar fram í dagsljósiö. Fortíðin holdi klædd er komin inn á autt verkstæðisgólfið og nú á að afhjúpa sannleikann. En fortíðin er ekki gamall bíl- skrjóður sem hægt er tjasla upp á með því að skipta um pakkningu eða endumýja demparana. Hafi glæpur verið framinn verður að horfast í augu við það. Hafi einhver verið hafður fyrir rángri sök verð- ur sá hinn sami að fá leiðréttingu sinna mála. Bílaverkstæði Badda er ellefta leikrit Ólafs Hauks, en á síðustu árum hefur hann snúið sér sífellt meir að þeirri tegund ritstarfa. En Ólafur Haukur Símonarson hefur verið virkur og afkastamikill rit- höfundur í hátt á annan áratug og á þeim tíma sent frá sér ljóðabæk- ur, skáldsögur og leikrit auk þess að semja dægurlög og texta. Nýj- asta bók Ólafs er spennusagan Líkið í rauða bílnum. Meðal leik- verka Ólafs Hauks em Blómarósir (1979), Söngleikurinn Grettir (1980), sem hann samdi ásamt Þórarni Eldjám og Agli Ólafssyni, Milli skinns og hömnds (1984), Ástin sigrar (1985) og Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir (1985). Leikstjóri Bílaverkstæðis Badda er Þórhallur Sigurðsson, Grétar Reynisson gerir leikmynd og bún- inga og Bjöm Bergsteinn Guð- mundsson annast lýsingu. Leikendur em sex og leikur Bessi Bjamason bifvélavirkjann Badda. Aðrir leikendur eru Amar Jóns- son, Sigurður Siguijónsson, Jóhann Sigurðarson, Guðlaug María Bjamadóttir og Ámi Tryggvason. Fyrrverandi nemi í bifvélavirkjun, Pétur (Arnar Jónsson), heldur utan um Sissu (Guðlaug María Bjarnadóttir) sem er dóttir Badda bifvélavirkja. Kvikmyndahús - Kvikmyndahús Stjörnubíó Hálfmánastræti (Half Moon Street) fjallar um menntakonuna dr. Laureen Slaugther sem er, auk þess að vera betur að sér en flestir aðrir, gullfalleg. Hún er samt lág- launamanneskja að eigin mati og drýgir tekjurnar með aukavinnu og aukavinnan er vændi. í auka- vinnustarfinu kynnist hún stjórn- málamanni og áður en hún veit af er hún flækt í samsæri gegn hon- um. Hálfmánastræti þykir frekar dauf kvikmyndagerð eftir skáld- sögu Paul Theroux, þess sama og skrifaði Moskitóströndina, og litlu bjarga ágætir leikarar, Sigourney Weaver og Michael Caine. Háskólabíó Þá er hin einstaka lögga, Axel Foley, aftur komin á kreik í Lögg- unni í Beverly Hills II. Eins og í fyrri myndinni gerast atburðirnir í hverfi ríkra í Los Angeles. Nú á Axel Foley í höggi vlð aiþjóðlegan glæpaflokk og þrátt fyrir tilburöi, sem ekki em löggulegir, hefur hetj- an okkar betur í viðureigninni. Meðleikarar Murphys em þeir sömu og í fyrri myndinni, að viö- bættri þokkadísinni Brigitte Niel- sen og sjálfur Eddie Murphy svíkur engan sem á annað borö hefur gaman af farsakenndum gamanmyndum Bíóhúsið Bíóhúsiö sýnir þessa dagana frönsku gamanmyndina Hjónagrín (Et la tendresse bordel). Mynd þessi var sýnd við metaðsókn í Frakk- landi og þykir frumleg og skemmti- leg. Aðalhlutverkin leika Jean-Luc Bideau og Evelyne Dress. Þá sýnir Bíóborgin einnig Hryllingsóperuna (The Rocky Horror Picture Show) sem margir hafa sjálfsagt gaman af að sjá aftur. Regnboginn Að venju eru nokkrar myndir sýndar í Regnboganum. í aðalsaln- um er sýnd spennumyndin Stjúp- faðirinn (The Stepfather), mynd sem fær hárin til að rísa á höfði áhorfenda. Omega-gengið (Omega Syndrome) gerist í Los Angeles og fjallar um baráttu gegn nýnasist- um. Tvær ævintýramyndir má nefna, Superman IV og Gullna drenginn (The Golden Child), með sjálfum Eddie Murphy í aðalhlut- verki. Og fyrir unnendur listrænna kvikmynda er óhætt að mæla með Vild’ðú værir hér (Wish You Were here) sem er bresk úrvalsmynd. Bíóborgin Nornirnar frá Eastwick Nornirnar frá Eastwick (The Witches of Eastwick) er gaman- mynd sem byggð er á þekktri og meinfyndinni skáldsögu eftir John Updike. Nomimar era þrjá konur sem búa í smábænum Eastwick. Þær kunna ofurlítið fyrir sér í kukli og það nýta þær sér þegar þær fara að þjást af karlmanns- leysi. Sendingin, sem þær fá til bæjar- ins í líki Jack Nicholson, er fljót að forfæra þær allar en er samt ekki það karlmenni sem þær von- uðust eftir því aðkomumaðurinn er illa innrættur og fá bæjarbúar að kynnast fjölkynngi hans... Jack Nicholson fer á kostum í hlutverki sem er eins og sniðið fyr- ir hann og eiga þeir sem hafa fylgst meö honum auðvelt með að þekkja í túlkun hans einstaka persónur sem hann hefur áður túlkað meist- aralega. Nornimar leika þrjár þokkagyðj- ur, Cher, Susan Sarandon og Michelle Pfeiffer. Leikstjóri er George Miller seni sjálfsagt er þekktastur fyrir að hafa stjórnað Mad Max-myndunum. Nornirnar frá Eastwick er ágæt skemmtun en skilur samt lítið eftir. Kvikmyndahús Bíóhöllin Þá er vöðvafjallið Arnold Schwarzenegger mættur í öllu sínu veldi í nýjustu mynd sinni, Rándýr- inu (Predator). Söguþráðurinn er ósköp venjulegur: Víkingasveit er fahð að bjarga nokkrum mönnum sem eru í hættu í Suöur-Ameríku. Mest er að sjálfsögðu lagt upp úr átakaatriðum og unnendur shkra mynda fá svo sannarlega nokkuð fyrir pening sinn. Bitastæðari myndir eru franska myndin Bláa Betty sem fjallar um unga stúlku sem smátt og smátt hverfur í eigin heim, Blátt flauel, þar sem sadisma eru gerð skil, og Angel Heart, dui- arfull og mögnuð sakamálamynd. Laugarásbíó Einhver vinsælasti leikarinn vestanhafs um þessar mundir er Michael J. Fox. Hann er ekki hár í lofti en hefur þann sérstaka hæfi leika að geta skemmt fólki. Nýjasta kvikmynd hans, Fjör á framabraut, þykir hin besta skemmtun og fjah- ar um ungan mann sem byrjar lágt í fyrirtæki einu en er mjög fljótur upp á við og endar í forstjórastóh. -HK Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn Sýningar Gallerí Borg, Pósthússtræti 9 Kjartan Guðjónsson sýnir teikningar, vatnslita- og olíumyndir. Sýningin er opin virka daga frá kl. 10-18 en um helgina kl. 14-18. Sýningunni lýkur þriðjudaginn 27. október. Gallerí Grjót, Skólavörðustig Samsýning í tilefni 4 ára starfsafmælis gallerísins stendur yfir. Á sýningunni eru skúlptúrar, málverk og grafík. Þeir sem að sýningunni standa eru Jónína Guðna- dóttir, Magnús Tómasson, Ófeigur Bjöms- son, Ragnheiður Jónsdóttir, Steinunn Þórarinsdóttir, Þorbjörg Höskuldsdóttir og Örn Þorsteinsson. Sýningin er opin virka daga frá kl. 12—18. Gallerí Gangskör Pétur Behrens sýnir þar verk sín. Gallerí List, Skipholti 50 Nýr sýningarsalur og listmunaverslun. Sýning á handblásnu gleri frá Noregi, Finnlandi og Bretlandi. Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-.12. Gallerí íslensk list, Vesturgötu 17 Hafsteinn Austmann sýnir vatnslitamynd- ir. Sýningin stendur til 25. október. Gallerí Langbrók, Bókhlöðustíg 2. Textílgallerí. Til sýnis vefnaður, tauþrykk, myndverk, módelfatnaður og fleiri list- munir. Opið þriðjudaga til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14. Gallerí Svart á hvítu v/Óðinstorg Á laugardag verður opnuð sýning á verk- um Georgs Guðna. Þetta er önnur einka- sýning Georgs Guðna. Á sýningunni verða verk unnin á sl. tveimur árur, olímálverk og teikningar. Sýningin stendur til 1. nóv- ember og er opin alla daga nema mánu- daga kl. 14-18. Kjarvalsstaðir við Miklatún Þar standa yfír 3 sýningar. Kristján Stein- grímur opnar á laugardag sýningu á olúmálverkum og grafík í Vestursal. Sýn- ing hans stendur til 2. nóvember. 36 gullsmiðir opna einnig sýningu á laugar- dag. Þar eru þeir með ýmis verk sem yfirleitt sjást ekki í gullsmíðaverslunum. Um er að ræða skartgripi, korpus, skúlpt- úra og lágmyndir. íþrótta- og tómstunda- ráð opnar einnig sýningu sama dag. Á henni eru tillögur úr hugmyndasamkeppni sem ráðið hélt um minjagrip um leiðtoga- fundinn í Reykjavík. Sýningarnar eru opnar daglega kl. 14-22. Listasafn Einars Jónssonar við Njarðargötu er opið alla laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega frá kl. 11-17. Listasafn Háskóla íslands í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn- inu er ókeypis. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns, Einholti 4 Opið á sunnudögum kl. 14-16. Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3 Helgi Sigurðsson sýnir málverk og teikn- ingar. Þetta er fyrsta einkasýning Helga. Sýningin stendur til 18. októþer og er opin virka daga kl. 16-20 og um helgar kl. 14-20. Norræna húsið v/Hringbraut Finnska grafíklistakonan Outi Heiskanen sýnir. Hún var kosin listamaður ársins í Helsinki 1986. * Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning Áma Magnússonar er í Árnagarði við Suðurgötu á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum kl. 14 16 til ágústloka. Þjóðminjasafnið Opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugar- daga kl. 13.30 til 16. Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði Opnunartími í vetur er laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk og hópar geta pantað tíma í síma 52502 alla daga vikunnar. Póst- og símaminjasafnið, Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.