Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1988, Síða 3
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988.
41
ÞETTA
HITT!
Skemmtilegt
teningaspil
(1) Teiknaðu 6 ferninga efst á blað eins og
sýnt er á teikningunni. Teiknaðu 1-2
-3-4-5 og 6 punkta í hvern ferning
svo þeir líkist flötum á teningi. Þetta
er stigakortið. Búðu til nokkur.
(2) Þú þarft nefnilega að hafa eitt kort fyr-
ir hvern keppanda. Settu tening í dós
og gagnsætt plast festirðu yfir. Nú getur
, leikurinn hafist. Hver keppandi hristir
dósina og sér hvaða tala kemur upp á
teningnum.
(3) Þegar séð er hvaða tala kom upp á ten-
ingnum merkir viðkomandi X fyrir
neðan samsvarandi reit á stigakortinu
sínu. Sá sem fær fyrstur 4 X í röð lóð-
rétt vinnur leikinn.
Þið getið leikið ykkur að því að geta upp
á hvaða tala muni koma upp á teningnum
áður en það er vitað!
Góða skemmtun
'T\'
% *
1 {2 3
Tengdu tölurnar frá 1 til 2, 2 til 3, 3 til
4 o.s.frv. Þá sérðu hvað kemur upp úr
hattinum hans Tóta töframanns!
Litaðu myndina síðan vel!
Hvað siglingaleið á Siggi sjómaður að
velja til að komast heim í kofann sinn? Er
það leið nr. 1-2 eða 3?
Sendið svar til:
Bama-DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Krakkakynning
Nafn: Olga Antonsdóttir.
Heimili: Aðalbraut 45, 675 Raufarhöfn
Fædd: 7. maí 1976.
Bestu vinir: Angela, Sandra, Guðný og
Rakel.
Draumaprins: Ljóshærður, sætur og er
alltaf að slást.
Áhugamál: Sund, íþróttir, dýr, tónlist og
dans.
Söngvari: Madonna.
Systkini: Harpa og Sirrý.
Besti drykkur: Pepsí, appelsín, kók og
greip.
Skóli: Grunnskóli Raufarhafnar.
Besti brandari: - Palli var einn í heimin-
um. Þá var bankað á dyrnar!
/
Nafn: Fjóla María Ágústsdóttir.
Heimili: Skútuhraun 16, Reykjahlíð.
Fædd: 9. júní 1975.
Skóli: Skútustaðaskóli.
Áhugamál: Að æfa sund, skólinn, ferðalög
og margt fleira.
Besti matur og drykkur: Hamborgari,
svínakjöt, Mix, malt og ískalt vatn.
Systkini: Hilmar, 15 ára:
Besti brandari: - Hafnfirðingur var að
senda vini sínum bréf. I því stóð: - Ég sétl-
aði að senda þér þúsundkallinn, sem ég
skulda þér, en áttaði mig ekki á því fyrr
en ég var búinn að loka umslaginu.
Nafn: Sigríður Alda Ómarsdóttir.
Heimili: Suðurgata 45.
Fædd: 28. apríl 1976.
Bestu vinkonur: Katla, Rósa og Kristín.
Áhugamál: Pennavinir, brennó, passa
börn, Greifarnir, Europe og Madonna.
Uppáhaldsmatur og drykkur: Lamba-
hamborgarhryggur, pitsa, pylsur, Mix, 7up,
kók og mjólk.
Systkini: Freyja, Gúsi, Olga, Kristín og
Siggi.
Besta hljómsveit: Europe og Greifarnir.
Skóli: Myllubakkaskóli.
Besti brandari: - Það voru einu sinni ís-
lendingur, Kínverji, Rússi og Frakki.
íslendingurinn sprengdi kínverjann, klæddi
sig í frakkann og keyrði burt á Rússanum!
BISW&ttlMtMSMIHMinMMMNM*'"''
Smásaga
Póstkassinn
Póstkassinn beið og beið og beið eftir bréf-
um, en aldrei komu bréf. Allir voru hættir
að skrifa til ömmu.
Hér áður fyrr var póstkassinn alltaf fullur
af bréfum.
Amma og Katrín vorkenndu póstkassan-
um og fylltu hann af bréfum svo að honum
leiddist ekki.
Sólveig María Svavarsdóttir, 4 ára.
Þessa mynd teiknaði Bergþóra Guðna-
dóttir, 9 ára.
Ólafía D. Ásgeirsdóttir, Hólagötu 13,
Sandgerði, teiknaði þessa vetrarmynd.
Ólafía er 9 ára.