Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1988, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1988, Blaðsíða 1
4. TBL. LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1988. Flugdiskurinn Ása, Óli og Benedikt voru systkini. Þau langaði að fara í einhvern leik. Þá sagði Ása: „Förum í mömmó!“ „Nei, förum heldur í bíló!“ sagði Óli. „Nei, það er svo smábarnalegt. Förum heldur í flugdiskaleik,“ sagði Benedikt. „Já,“ svöruðu hinir krakkarnir. Svo léku þau sér með flugdiskinn lengi dags. Sigurvin Jónsson, 9 ára, Fjólugötu 3, 101 Reykjavík Svifdiskurinn Einu sinni var strákur úti í garðinum sínum að leika sér að nýja svifdiskinum sem hann hafði fengið. Þessi strákur hét Ásgeir Börkur og hann var 9 ára. Þegar hann var búinn að leika sér 1 smátíma komu systk- ini, strákur og stelpa, og spurðu hvort þau gætu fengið að vera með. Ásgeir sagði alveg strax já því að hann var svo einmana. Þegar krakkarnir heyrðu þetta hlupu þau að honum og rifu af honum nýja diskinn hans. Systkinin byrjuðu strax að kasta diskinum á milli sín. Ásgeir bað þau um að láta sig hafa diskinn, en það var eins og þau heyrðu ekki það sem hann sagði. Allt í einu stökk Ásgeir á milli þeirra og greip diskinn áður en stelpan gat gripið hann. Nú hjóp Ásgeir Börkur heim til sín, en þar beið hans snúður og mjólk. Helga Guðný Ásgeirsdóttir, 11 ára, Bleikjukvísl 24, 110 Reykjavík. Fljúgandi furðuhlutur Það var eitt sumar að þrír krakkar, Jón, Óli og Stína, voru úti að leika sér. Allt í einu sá Óli eitthvað koma fljúgandi utan úr geimnum. Það var eins og diskur í lag- inu. Óla fannst hluturinn koma alveg að sér. Þá sáu krakkarnir að það var fljúgandi diskur. Krakkarnir hlupu heim og sögðu mömmu og pabba en enginn trúði þeim. Svo þegar allir komu út var hluturinn horfinn. Var þetta kannski bara draumur? Anna Björg Þorgrímsdóttir, 9 ára, Dalseli 16, 109 Reykjavík. Flugdiskurinn Jón, Lísa og Palli voru úti. Þau vissu ekki hvað þau ættu að gera. Þá spurði Jón hvort þau vildu koma inn til sín í bíló, en Lísa og Palli vildu það ekki. Þá spurði Lísa hvort þeir vildu koma í dúkkó, en það vildu þeir alls ekki. Loksins spurði Palli hvort þau vildu koma að leika með flugdisk og það vildu þau. Krakkarnir léku sér með flugdiskinn alveg langt fram á kvöld þang- að til mamma og pabbi kölluðu á þau að koma inn að borða. Svanhvít Tryggvadóttir, Teigaseli 7, 109 Reykjavík. Skapvondi nágranninn Einu sinni voru þrír krakkar sem hétu Siggi, Magga og Kalli. Siggi og Magga voru systkini, en Kalli var vinur þeirra. Kalli var einn heima og leiddist mikið. Þá komu Siggi og Magga til hans og spurðu hvort hann vildi koma út. Kalli vildi það. Þau fóru að leika með flugdisk. Þegar þau voru búin að leika nokkra stund sveif flug- diskurinn inn í garð nágrannans. Nágrann- inn var frekar skapvondur maður. Allt í einu kom hann út á tröppurnar, alveg kol- brjálaður. Krakkarnir hlupu í burtu ofsa- lega hrædd. Eftir þetta þorðu þau aldrei að leika sér hjá húsi nágrannans. Sandra Halldórsdóttir, 11 ára, Krummahólum 8, 111 Reykjavík. Jói og vinir hans Það var einu sinni strákur sem hét Jói. Hann var alltaf hafður útundan í öllum leikjum. Jói var nýbúinn að eiga afmæli og hafði fengið þennan fína flugdisk í af- mælisgjöf. Einn góðan veðurdag fór hann út með flugdiskinn. Þá allt í einu koma tvö systkini til Jóa og vildu leika við hann. Jói varð glaður. Systkinin hétu Lára og Sigur- þór. Síðan léku þau sér öll þrjú saman oft og mörgum sinnum. Gréta Björk Guðmundsdóttir, Yrsufelli 9, 111 Reykjavík. Steinþór, Sigga og Oli Snemma morguns vakti mamma Steinþór og sagði að hann þyrfti að drífa sig því að Sigga og Óli biðu eftir honum úti með flug- disk. Steinþór hlakkaði svo til að fara í leikinn af því að hann var vanur að vinna Siggu og Óla. Steinþór hélt að það væri af því að hann var 9 ára en Óli 7 ára og Sigga bara 4 ára. Svo fór Steinþór út. Þegar þau voru búin að vera lengi í leiknum þá vann Óli. En þá sagði Steinþór að það væri ekki rétt, hann hefði sjálfur unnið. Silja Hrund Einarsdóttir, 7 ára, x Sæbergi, 825 Stokkseyri. Sagan mín Skrifið sögu um þessa mynd Sagan birtist síðan í 7. tbl. og getur að sjálfsögðu hreppt verðlaun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.