Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1988, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1988.
41
Þetta
HITT!
Felu-
mynd
Litaðu
fletina sem
hafa punkt.
Þá kemur einhver
mynd í ljós. Hvaða mynd er það?
Beint í mark
Það er alltaf gaman að
keppa og nú skaltu búa til
nokkrar skutlur fyrir þig
og félaga þína og fara í
keppnina Beint í mark.
A teikningunni sérðu
hvernig brj óta á pappírs-
blað í skutlu. Best er að
nota pappaspjald í skot-
skífuna og skera út stóran
hring í miðju.
Festu skífuna síðan upp í
trágrein úti í garði og
keppnin getur hafist.
Góða skemmtun.
Kæra Barna-DV.
Ég heiti Þórunn Jónína Hafþórsdóttiir og
á heima að Brekkulæk 4. Mér þykir mjög
gaman að lesa Barna-DV. í sumar var ég
að selja DV við sundlaugina í Laugardal.
Ég er 11 ára og er í hjólastól. Ég læt það
ekkert hefta mig og leik mér við krakkana.
Getið þið ekki haft eina litla barna-kross-
gátu í Barna-DV.
Kær kveðja.
Þórunn Jónína.
Kæra Þórunn.
Bestu þakkir fyrir fallega bréfið þitt. Við
munum reyna að hafa barnakrossgátur í
blaðinu og við viljum gjarnan að lesendur
reyni að búa þær til og sendi okkur. Þá
munum við birta þær. Gætir þú búið til
eina?
Bestu kveðjur.
M.Th.
6 villur
Geturðu fundið 6 atriðisem ekki eru eins
á báðum myndum?
Sendið lausn til: Barna-DV, Þverholti 11,
105 Reykjavík.
Hvaða hundur
nær í beinið?
Er það hundur nr. 1-2-3 eða 4?
Sendið svar til: Barna-DV, Þverholti 11,
105 Reykjavík.
m-ö m v.k
- i
Gátur
1. Hvað sefur asninn lengi á næturnar?
2. Hvað er það sem er rautt með hvítum
deplum?
3. Hvað er það sem er með svörtum dekkj um
og með snjó?
Jóhann H. Gunnarsson, 5 ára,
Krummahólum 8, Reykjavík.
(Svör aftast í blaðinu.)
Ásta Ásgeirsdóttir, 6 ára,
Neðstaleiti 8, 103 Reykjavík
Svava Ólafsdóttir
Miðleiti 6
Anna Dóra Ófeigsdóttir
Logalandi 11