Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988.
31
fþróttir um helgina:
Einn af úrslitaleikj-
um úrvalsdeildar
Körfubolti
Einn þýðingarmestu leikjanna í
úrvalsdeildinni í vetur fer fram á
Hlíðarenda á sunnudagskvöldið kl.
20. Þar eigast viö Valur og Haukar
sem berjast um sæti í 4-liða úrslita-
keppninni um íslandsmeistaratitil-
inn. Aðrir leikir í deildinni um
helgina eru UMFN-Þór í Njarðvík
kl. 20 í kvöld, fóstudagskvöld, og
ÍR-Breiðablik í Seljaskóla kl. 14 á
morgun, laugardag.
1. deild karla:
Reynir-ÍA............-..fó. 20.00
HSK-Tindastóll..............fó. 20.00
ÍS-Tindastóll...(Hagask.)la. 12.30
1. deild kvenna:
ÍBK-ÍR......................la. 14.00
UMFN-Haukar.................la. 14.00
Blak
Rétt er að benda áhugamönnum
á að talsveröar breytingar hafa
verið gerðar á mótaskrá fyrir þessa
helgi. Leikir á íslandsmótinu eru
sem hér segir:
1. deild karla:
Þróttur R.-Þróttur N ..fó. 20.00
HK-KA „fó. 20.00
HSK-KA ,..la. 10.30
HSK-KA ,..la. 14.00
Fram-HK ...la. 13.00
ÍS-Þróttur R ...la. 14.15
Víkingur-Þróttur N ...la. 15.30
1. deild kvenna:
Þróttur R.-Þróttur N ...fó. 18.30
HK KA ...fó. 21.15
TIRK Víkineur ...fó. 21.15
KA-Víkingur Vogask. la. 9.30
Víkingur-Þróttur N.
Vogask. la. 10.45
Víkingur-HK
Skíði
Þrjú mót eru á dagskrá skíöa-
fólks um helgina. Fvúlorönir keppa
í alpagreinum á Siglufirði, ungling-
ar 15-16 ára i alpagreinum við
Reykjavík og á Ólafsfirði er Fjarð-
argangan, fyrsti liður íslands-
göngunnar á þessum vetri.
Handbolti
Keppnisfólk í meistaraflokkum
er í fríi þessa helgina en víða er
keppt í yngri flokkum. Þar er leikin
umferð í 2. flokki karla, 2. flokki
kvenna, 4. flokki karla, 4. flokki
kvenna og 6. flokki karla. Keppt er
m.a. í Reykjavík, Garðabæ, Hafnar-
firði, Kópavogi, Hverageröi, Njarð-
vík, Vestmannaeyjum og á Selfossi.
Glíma
Axlartakamót, það fyrsta sinnar
tegundar hér á landi, verður haldið
í íþróttahúsi Kennaraháskólans á
sunnudaginn og hefst kl. 16.30. Þar
mætast margir sterkir kappar, m.a.
bæði júdómenn og glímumenn.
Á sama stað er á laugardag kl.
14 haldið þorramót GLÍ en þátttak-
endur þar verða tæplega þijátíu.
Júdó
Sveitakeppni JSÍ fer fram í
íþróttahúsi Kennaraháskólans á
laugardag og hefst kl. 10 um morg-
uninn. Keppt er í karlaflokki og
flokki drengja 15 ára og yngri.
Frjálsar íþróttir
Meistaramót íslands innanhúss
er haidið um helgina í Laugardals-
höll, Baldurshaga og á Laugar-
vatni. Keppt er kl. 10 á laugardag
og sunnudag í Höllinni, 13.30 báða
daga í Baldurshaga og kl. 18 á
sunnudag á Laugarvatni en þar er
keppt í stangarstökki.
Fimleikar
Unglingamót Fimleikasambands
íslands fer fram í Laugardaishöll
og hefst kl. 14.30 á laugardag og kl.
14 á sunnudag. Keppendur verða
um 200 frá tíu félögum.
-VS
• Glimumenn verða mikið á feröinni um helgina bæði i axlartakamóti
og í hlnni hefðbundnu glímu.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að gjald-
dagi söluskatts fyrir janúarmánuð er 15. febrúar. Ber
þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs
ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráóuneytiö
ORÐSENDING TIL LAUNA-
GREIÐENDA
frá fjármálaráðuneytinu
Samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda
skal launagreiðandi skila mánaðarlega því stað-
greiðslufé sem honum bar að halda eftir. á greiðslu-
tímabilum síðasta mánaðar.
Gjalddagi skilafjár vegna janúarmánaðar 1988 var
1. febrúar sl. Eindagi greiðslunnar er 15. febrúar nk.
Atfiygli er vakin á því að hafi greiðsla ekki borist
viðkomandi gjaldheimtu eða innheimtumanni ríkis-
sjóðs í síðasta lagi á eindaga reiknast álag á vanskilin.
10. febrúar 1988
Fjármálaráðuneytið
Auglýsing um styrki og lán
til þýðinga á erlendum bók-
menntum
Samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerð nr.
638/1982 um þýðingarsjóð er hlutverk sjóðsins að
lána útgefendum eða styrkja þá til útgáfu vandaðra
erlendra bókmennta á íslensku máli. Gréiðslur skulu
útgefendur nota til þýðingarlauna.
Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera þessi:
1. Verkið sé þýtt úr frummáli, ef þess er kostur.
2. Upplag séað jafnaði eigi minna en 1000 eintök.
3. Gerð og frágangur verka fullnægi almennum
gæðakröfum.
4. Eðlileg dreifing sé tryggð.
5. Útgáfudagur sé ákveðinn.
Fjárveiting til þýðingarsjóðs í fjárlögum 1988 nemur
3.810.000 krónum.
Eyðublöð undir umsóknir um framlag úr sjóðnum
fást í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, og skulu umsóknir hafa borist ráðuneytinu
fyrir 30. mars nk.
Reykjavík, 10. febrúar 1988
Menntamálaráðuneytið
YVvO
Bolludagurinn er á mánudaginn og þá kætast sjálfsagt margir sælkerar. Sumir vilja þó heldur aö menn
drekki heilnæma vatnið okkar, að minnsta kosti heilbrigðisráðherra. Við fengum sælkerann Sigmar B.
Hauksson og ráðherrann Guðmund Bjarnason í bollueinvigi. Hver vann? Spurning morgundagsins...
„Ég hef aldrei hætt að vera bítill,“ segir Þorsteinn Eggertsson í við-
tali við DV þar sem hann segir frá gerð þáttanna um Bítla og
blómabörn. „Það vakti vissulega athygli ferðamanna er ég kom ark-
andi berfættur eftir Abbey Road, klæddur eins og Paul McCartney.“
Þorsteinn hefur frá heilmörgu að segja í Helgarblaðinu á morgun.
Skákáhuginn er landann að
kæfa og nú bíða menn eftir
næsta sigri Jóhanns Hjart-
arsonar. Það má ekki
gleyma yngstu skákmeist-
urunum og þeim sem enn
eru að læra. Ólafur Ólafs-
son er skákkennari og
margir þekktustu skákmenn
landsins lærðu listina af
honum. Ólafur er í viðtali
við Helgarblaðið á morgun.