Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Blaðsíða 8
32 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988. Mynd- bönd Umsjón: Sigurður M. Jónsson Hilmar Karlsson DV-LISTINN Listinn tekur ekki miklum breyt- ingum þessa vikuna - tvær nýjar myndir koma þó viö sögu og önnur þeirra, Burgler, stekkur hátt. Mel Gibson heldur toppsætinu en herdeildin er ekkert aö flýta sér út af listanum. Athyglisverð er mynd- in Guð gaf mér eyra meö William Hurt og Marlin Matlin. Hún fer hægt upp listann enda ekki dæmi- gerð „sprettmynd" á listum. Hún á þó örugglega eftir aö vinna á. Ma- donna virðist hins vegar vera á útleið enda mynd hennar varla nema fyrir hennar dyggustu aödá- endur. 1. (1) Lethal Weapon 2. (2) Platoon 3. (3) Police Academy 4 4. (-) Burglar 5. (6) Tin Men 6. (8) Project X 7. (-) Garbage Pailkids 8. (5) Angel Heart 9. (9) Children of a Lesser Gofl 10. (4) Who’s That Girl ★★★ Apaspil PROJECT X. Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: Jonathan Kaplan. Aðalleikarar: Matthew Broderick og Helen Hunt. Bandarisk, 1986. - Sýningartimi 103 min. Þjálfaðir apar eru engin nýlunda í kvikmyndum. Allt frá því að Tarz- an sást fyrst á hvíta tjaldinu með apann sinn hafa óteljandi kvik- myndir verið gerðar þar sem vel þjálfaðir apar eru í stórum hlut- verkum. Project X er ein þeirra og hefur sjaldan tekist jafnvel til við að gera apana „mannlega". Aðalpersóna myndarinnar er ap- inn Virgil sem snemma er tekinn frá móður sinni og fenginn Teri, ungri stúdínu, til þjálfunar. Virgil er gæddur. einstökum gáfum af apa að vera og eftir tvö ár talar hann fingramál og hagar sér nákvæm- lega eins og spillt barn sem fær öllu sínu framgengt. Það er því mikið áfall fyrir Teri þegar apinn er tekinn frá henni og sagt að hér eftir eigi hann að vera börnum til skemmtunar í dýra- garði. Raunin er samt önnur. Farið er með hann í tilraunastöð hersins þar sem hann fyllir flokk annarra apa sem fyrst er kennt að stýra' flugvél og síðan fórnað í tilraunum með geislun frá kjarnorkusprengj- um. Þetta veit ekki nýráðinn þjálfari Virgil, Jimmy, ungur flugmaður sem hefur verið lækkaöur í tign vegna vanrækslu. Jimmy er fljótur að sjá að Virgil getur talað fingra- MATTHEW BRODERICK mál og virðist miklum gáfum gæddur. Þegar hann loks kemst að hinu sanna í máhnu hringir hann í Teri og saman ákveða þau að frelsa Virgil. Atburðarásin tekur samt óvænta stefnu sem ekki er vert að fara nánar út í hér. Það er með ólíkindum hvað hefur tekist að kenna og þjálfa Virgil og raunar alla apana. Þeir minna mann á böm og stórt herbergi, sem þeir dvelja í, minnir frekar á leik- skóla en fangelsi sem það í raun er. Þegar svo á að fórna Virgil á alt- ari vísindanna er ábyggilegt að alhr áhorfendur eru á bandi apans og vísindamennirnir eru vondu mennirnir. Project X er hin besta skemmtun og verst er að engin apaverðlaun eru veitt í kvikmýnd- um því Virgil á skilið öll verðlaun sem keppt er um. HK Af franskri þrá BETTY BLUE Útgefandi: Steinar Leikstjóri og handritshöfundur: Jean- Jacques Beinefx. Aðalhlutverk: Jean- Huges Anglade og Béatrice Dalle. Frönsk 1987. 117 mín. Bönnuð yngri en 16 ára. Betty Blue -er af öðrum uppruna en flestar þeirra mynda sem prýða hillur myndbandaleiga. Hún hefur reyndar reynst mun meiri mark- aðsvara en aðrar franskar myndir því ekki er langt síðan hún var sýnd í kvikmyndahúsi. Góður ár- angur af sýningu þessarar myndar ætti að ýta við mönnum og benda á að fleira kemur til greina en eng- il-saxneskar myndir. Væri til dæmis fróðlegt að sjá fyrri mynd Beineix, Diva, gefna út hér. Betty Blue er ástarsaga sem lýsir á dramatískan hátt ást og þrá sem leiðir að lokum til geðveiki. í upp- hafl er Betty ung og lífsþyrst stúlka sem kemur inn í hf Zorgs sem virð- ist ekki of öruggur um framtíð sína. Hún kemst í dagbækur Zorgs og verður sannfærð um að hann sé efni í stórkostlegan rithöfund. Betty þykir hann'fuhhægfara og ákveður að brenna ofan af þeim húsnæðið til að koma honum af stað á vit frægðarinnar sem hún er sannfærð um að bíði á næsta leiti. Þau fara til næstu borgar (Parísar) en þrá Betty eftir frægð fyrir hönd Zorgs reynist henni um megn. Hún sýnir stöðugt meiri merki geðveiki og að lokum hefur samband þeirra snúist - hann er sá sterki en hún er glötuð. Ástarsaga þeirra Betty og Zorgs er í senn fógur og áhrifamikil og hin kynþokkamikla Béatrice Dahe vinnur ótvíðræðan leiksigur. Vissulega er nokkuð erfitt að átta sig fyllilega á geðveiki Betty en th- vísun í óslökkvandi þrá hennar eftir frægð Zorg th handa verður að duga. -SMJ «□ Afdrifaríkt stefnumót BLIND DATE Útgefandi: Skifan Leikstjóri: Blake Edwards. Aðalhlut- verk: Bruce Willis og Kim Basinger. Bandarísk, 1987. Whhs hefur náð fádæma vin- sældum sem sjónvarpsstjarna og þvi er auðvitað sjálfsagt að láta kappann reyna fyrir sér í bíó. Ekki er tekin mikh áhætta í hlutverkav- ah heldur treyst á Moonlightning- formúluna. Whlis leikur hér óöruggan ná- unga sem hugsar aðeins um starflö. Hann þarf á fylgd konu að halda th að fara í viðskiptaboð og að ráði bróður síns tekur hann Basinger með sér. Hann verður hriflnn og brýtur þá einu reglu sem honum var sett - að gefa fylgdarkonu sinni ekki vín. Áður en við er litið er hún búin að gera allt vitlaust og glæstur starfsferhl horfinn. En einhvers staðar hefur ástin náð að sá fræjum sínum... Þetta er nökkuð hefbundin Blake Edwards mynd, flökt á mhh kröft- ugra uppákoma en fínlegri húmor á erfiðara uppdráttar. Því er ekki að neita að skondin atvik koma upp en dálítið saknar maður heildstæð- ari mynduppbyggingar með í]öl- skrúðugri persónum. Alhr verða að vera „týpur“ til að slá í gegn í gamanmynd en auðvitað er það „venjulega" fólkið sem er fyndnast í raunveruleikanum. -SMJ jEUKEtamfiui KlMBASiNGER BRUCE WILLIS A date with her is evcty inans dream come true. Aikí with dreams likeher — vsíio nceds niííitmares? Hi-n srmo fpctfe ★★ Lækning gegn hrædslu HAUNTED HONEYMOON. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Gene Wilder. Aðalleikarar: Gene Wilder, Gilda Radn- er og Dom DeLuise. Bandarisk, 1986. -Sýningartimi 90 min. Gene Whder hóf glæsilegan ferh í kvikmyndum hjá Mel Brooks og lék aðalhlutverk í nokkrum bestu mynda hans hingað th, svo sem í giftingarhugleiðmgiun THE LAST FLING Útgefandi: Arnar-Videó Leikstjóri: Corey Allen. Aðalhlutverk: John Ritter og Connie Selleca. Bandarisk. Öllum leyfð. Sjónvarpsglápurum ætti að vera John Ritter vel kunnugur. Hann hefur birst hér í m.a. i hki Hooper- manns lögregluþjóns og ætti því dauðyflisleg frammistaða hans ekki að koma neinum á óvart. Hann er eigi að síður aðalstjarna þessarar bandarísku sjónvarps- myndar. Ekki slær hann í gegn • enda líklega ekki ætlunin með þessari mynd. Hún segir frá ungum lögfræðingi (það eru einu ungu mennirnir sem fá athygli í USA) sem hefur hug á því að festa ráö sitt en skortir þá réttu th að fuh- komna verknaðinn. Hann hittir hana þó en að því er virðist of seint því hún er að fara að gifta sig. - Og nú ríður á að flýta sér. „Formúlumynd" er víst óhætt að segja um þessa framleiðslu. Hún býr ekki yfir neinum frumleik en er ekki vandræðalega gerð, sem sagt mynd sem fer inn um annað og út um hitt. -SMJ The Producers, Blazing Saddles og Young Frankenstein. Hann hefur á seinni árum tekið th við að leikstýra sjálfum sér með misjöfnum árangri. Sjálfsagt tókst honum best upp með Woman in Red þar sem hann aldrei þessu vant hélt sér á mottunni varðandi ofleik. Því er því miður ekki fyrir að fara í nýjustu kvikmynd hans, Haunted Honeymoon, sem er farsi í anda Mel Brooks og hefur Gene Whder greinilega tekið hann sér til fyrirmyndar. Whder leikur útvarpsleikarann Larry Abbot sem er stjarnan í vin- sælu framhaldsleikriti. Hann ætlar að fara að giftast meðleikkonu sinni, Vicky Pearle (Gilda Radner). Aðeins eitt kemur í veg fyrir það. Abbot fær áköf hræðsluköst. Sál- fræðingar segja að aðeins ofsa- hræðsla geti komið endanlega í veg fyrir þennan leiða ávana. í samráði við tilvonandi eigin- konu er skipulögð brúðkaupsferð í gamalt hús þar sem frænka Abbots ræður ríkjum. Það sem skötuhjúin vita ekki er að frænkan er búin að gera aum- ingja Abbot að einkaerfingja sínum og flykkjast ættingjarnir nú að ætt- arsetrinu. Verður nú einn alls- herjar bardagi upp á líf og dauða hjá Abbot sem vhl aö sjálfsögðu endilega halda lífi... Eins og Gene Whder er von og vísa eru mörg atriðin stórskemmti- leg og tilþrifamikil en sé htið á heildina er þunnur þrettándinn og ofleikur allra aðaheikaranna leið- inlegur th lengdar. HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.