Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1988, Síða 3
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988.
19
Dansstaðir
ABRACADABRA,
Laugavegi 116
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
ÁRTÚN,
Vagnhöfða 11, sími 685090
Gömlu dansamir fóstudagskvöld
kl. 21-03. Danssporið ásamt söngv-
urunum Ömu Karls og Grétari. Á
laugardagskvöldið nýju og gömlu
dansarnir. Hljómsveitin Dansspo-
rið ásamt Ömu Karis og Grétari.
BROADWAY,
Álfabakka 8, Reykjavík, sími
77500
Húsið lokað í kvöld vegna einkas-
amkvæmis. Á laugardagskvöldið
verða Stjömur Ingimars í 20 ár.
I
CASABLANCA,
Skúlagötu 30
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
DUUS-HÚS, N
Fischersundi, sími 14446
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
EVRÓPA
v/Borgartún
Royal Ballet of Senegal í fyrsta
skipti á íslandi í Evrópu fóstudags-
og laugardagskvöld.
Diskótek fóstudagskvöld. Á laugar-
dagskvöld leikur Músikbandið
fyrir dansi.
GLÆSIBÆR,
Álfheimum
Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir
dansi á föstudags- og laugardags-
kvöld. Opið kl. 22.00-03.00.
HOLLYWOOD,
Ármúla 5, Reykjavík
„Týnda kynslóðin" föstudags- og
laugardagskvöld. GB og Ingibjörg
leika fyrir dansi á laugardags-
kvöldið.
HÓTEL BORG,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími
11440
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
HÓTEL ESJA, SKÁLA-
FELL,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík,
sími 82200
Dansleikir fóstudags- og laugar-
dagskvöld. Kaskó leikur. Tískusýn-
ingar öll fimmtudagskvöld.
HÓTEL ÍSLAND
KK-sextett leikur um helgina.
HÓTELSAGA, SÚLNA-
SALUR,
v/Hagatorg, Reykjavík, simi 20221
Súlnasalur lokaður föstudags-
kvöld. Á laugardagskvöld verður
sýndur söngleikurinn „Næturgal-
inn - ekki dauður enn“ sem byggist
á tónlist Magnúsar Kjartanssonar
í gegnum tíðina.
LEIKHÚSKJALLARINN,
Hverfisgötu
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
LENNON
v/Austurvöll, Reykjavík, sími
11630
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
LÆKJARTUNGL,
Lækjargötu 2, sími 621625,
Á fóstudags- og laugardagskvöld
verður leikin „tónlist Tunglsins". Á
sunnudagskvöld verður „Kram-
húsarkvöld". Þar munu hinir ýmsu
dansarar frá Kramhúsinu koma
fram með dansatriði iir mörgum
áttum. Má þar m.a. nefna tangó og
djassdansa.
ÚTÓPÍA,
Suðurlandbraut
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
ÞÓRSCAFÉ,
Brautarholti, s. 23333
Þórskabarettinn Svart og hvltt á tjá
og tundri bæði fóstudags- og laug-
ardagskvöld. Hljómsveitin Bur-
geisar leikur fyrir dansi að lokinni
sýningu bseði kvöldin.
ÖLVER,
Álfheimum 74, s. 686220
Opiö frá kl. 18-03 fóstudags- og
laugardagskvöld. Tríóið Prógramm
spilar frá kl. 22 fimmtudaga til
sunnudaga.
Næturgalinn
Pálmi Gunnarsson
Nú standa yfir sýningar á söng-
leiknum Næturgalinn - ekki
dauður enn á Hótel Sögu.
Þessi söngleikur er byggður á
gömlum og nýjum lögum Magnús-
ar Eiríkssonar. Með stærsta hlut-
verkið í söngleiknum, hlutverk
popphetju sem þráir frægð og
frama, fer Pálmi Gunnarsson. Þyk-
ir hann sjaldan eða aldrei hafa
verið betri, sumir tala jafnvel um
að þetta sé hápunkturinn á ferli
han's sem dægurlagasöngvara.
Lítil saga úr hversdagslífinu
„Þessi htla saga, sem sögð er í
Næturgalanum, er dæmigerð lífs-
ferð einstaklings sem gæti verið
hver sem er,“ segir Pálmi.
„Flest lögin hans Magnúsar Ei-
ríkssonar eru smámyndir sem lýsa
hverdagslegum atvikum úr mann-
lífinu. Það er svo áhorfenda að geta
í eyðurnar við hvem sé átt, sagan
gæti verið mín, hún gæti líka allt
eins verið saga Jóns í næsta húsi.
Það dreymir alla um aö ná árangri
í lífmu og draumamir geta verið
ansi glæstir en á sama tíma eru
þeir hverfuhr."
- Er popparinn í söngleiknum þá
ekki þú sjálfur?
„Magnús sækir yrkisefni sín í
fóík á fómum vegi, ef ég hef kom-
ist þar á blað þykir mér það
einungis heiður að hafa orðið hon-
um að yrkisefni."
Endurskoða afstöðu mína
Að vanda hefur Pálmi mörg járn
í eldinum, bráðlega fáum við að sjá
hann á skjánum í forkeppni Euro-
visionkeppninnar hér heima en þar
kemur hann til með að syngja lag
eftir Kristin Svavarsson við texta
Pálmi Gunnarsson hefur mörg járn
Halldórs Gunnarssonar. „Þetta er
gullfallegt lag en ekki í þessum
hefðbundna Eurovisionstíl, hver
í eldinum um þessar mundir.
DV-mynd Ragnar Sigurjónsson
svo sem hann er nú. Ég geri mér
engar sérstakar vonir um aö viö
vinnum keppnina. En ef svo fer
mun ég endurskoða afstöðu mína
um áframhaldandi þátttöku. Hins
vegar finnst mér persónulega á-
gætt að vera búinn að klára
Eurovisionkvótann. En hver veit?“
- Hvað annað hefur þú fyrir
stafni þessa dagana?
„Ég er að gera plötu með félögum
mínum í Mannakorn, á þeirri plötu
verða ný lög eftir Magnús Eiríks-
son. Von mín er sú aö við klárum
vinnslu plötunnar eftir tvær til
þrjár vikur.“
Farinn að þrá sól og sumaryl
„Það er búið að vera svo mikið
að gera hjá mér upp á síðkastið að
það má eiginlega líkja þvi við góöa
togaravertíð. Enda er mig farið að
dreyma um nætur sól, sumaryl og
veiðiferðir. En um daginn stofnuð-
um ég og nokkrir félagar mínir
veiðiklúbb sem nefnist því virðu-
lega nafni Doktor Krókur. Á
stefnuskrá klúbbsins er að fara í
veiðiferöir á sumrm og jafnvel að
fara til Grænlands næsta haust til
að veiða.
Einnig er á stefnuskrá klúbbsins
að berjast fyrir þvi aö lax og sil-
ungsár hér á landi verði ekki
eyðilagar með slæmri umgengni og
vitlausri ræktunarpóhtík. Það er
til að mynda verið að eyðileggja
mjög margar silungsveiðiár hér á
landi með því að reyna að rækta í
þeim lax.
í sumar er svo ætlunin að ég geri
stuttan sjónvarpsþátt fyrir ríkis-
sjónvarpið um stangveiði, en
sjónvarpið er miðih sem ég gæti
sem best hugsað mér að vinna við
í framtíðinni," sagði Pálmi að lok-
um.
-J.Mar
Anna
Pavlova í
bíósal MÍR
Á sunnudag kl. 16.00 verður sovéska kvikmyndin Anna Pavlovg sýnd
í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Eins og nafnið bendir th ijallar myndin um
eina frægustu dansmey ahra tíma, rússnesku baherínuna Önnu Pavlovu
sem uppi var 1881-1931 og kom fram á leiksviði stærstu óperu húsa um
ahan heim. Rakin eru ýmis atriði úr æviferh listakonunnar og koma við
sögu margar nafnkenndar persónur. Þetta er löng kvikmynd, sýningar-
tími hennar er 2 klukkustundir og 20 mínútur. Skýringartextar eru á
ensku.
GaHabuxur -
og gott betur
Ahir hlutir eiga sína sögu - svo er einnig um gallabuxur. í Nordiska
museet í Stokkhólmi hefur, auk fastasýningar, verið gerð farandsýning
um upprunasögu og þróun gallabuxna. Nordiska museet hefur nú lánað
Norræna húsinu og Þjóðminjasafni íslands sýningu þessa sameiginlega.
Verður sýningin í forsal safnsins frá 20. febrúar - 20. mars og verður opin
á opnunartíma safnsins.
í tengslum við sýninguna mun höfundur hennar, Inga Wintzeh þjóð-
háttafræðingur, flytja erindi um gallabuxur og gahabuxnamenningu 20.
febrúar kl. 17.15, daginn sem sýningin verður opnuð. -J.Mar
Helgarskákmót
á Selfossi
Tímaritið Skák gengst fyrir sínu 34. helgarskákmóti á Hótel Selfossi í
samvinnu við Taflfélag Selfoss og hæjaryfirvöld.
Mótið hefst í dag kl. 17 með því að tefldar verða tvær léttar umferðir
fram að kvöldmat. Kl. 20 hefst svo hiö eiginlega skákmót. Á morgun verða
tefldar tvær umferðir og einnig tvær á sunnudag og hefjast þær kl. 10 og
15 báða dagana. -J.Mar
Glæsilegir tangótaktar.
Lækjartungl:
Tangó-,
calypso-
og blús-
tórúist
Á sunnudagskvöldið verða kenn-
arar og nemendur Kramhússins
með einnar klukkustundar sýn-
ingu í Lækjartungli. Endurtekin
verður sýning karldansara á „The
Moving Men“ sem sýnd var 31. jan-
úar síðastliðinn.
Þá verður tangósýning, blues-
nútímadans og „samba a la
Kramhús". Leikin veröur tangó-,
caiypso- og bluestónlist á undan og
eftir sýningunni.'
-J.Mar