Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1988, Qupperneq 6
30
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988.
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Bíóhöllin
Þmmugnýr
í gær tók Bíóhöllin til sýningar
nýjustu kvikmynd vöðvatröllsins
Arnolds Schwarzenegger,
Þrumgný (The Running Man). Hún
er gerð eftir skáldsögu Stephens
King og lofar það að minnsta kosti
eftirtektarveröum söguþræði.
Mynd þessi er alveg glæný og hefur
erlendis fengið ágætar viðtökur.
Eins og endranær sýnir Bíóhöllin
margar fleiri myndir og er helst að
telja gamanmyndina Spaceballs
sem Mel Brooks leikstýrði. Þar ger-
-ir hann látlaust grin að geimmynd-
unum svokölluðu og þeir sem hafa
fylgst með Mel Brooks og séð
myndir hans vita að enginn getur
•verið naprari í háðinu.
Laugarásbíó
Hrollur 2
Fyrir um það bil tveimur árum
leit dagsins ljós Creepshow, nokk-
uð góð hryllingsmynd sem gerð var
eftir smásögum Stephens King.
Þessi konungur hrylhngssagnanna
lék meira að segja eitt aðalhlut-
verkið. Leikurinn hefur verið
endurtekinn. Hrollur 2 byggist enn
á smásögum Kings eða hugmynd-
um þótt ekki sé hann nálægur í
þetta skiptið. Þeir fjölmörgu unn-
endur ritverka Kings vita vafalaust
hverju búast má við. Hugmynda-
leysið hefur aldrei hrjáð þann
mann. Þá má geta þess að hin frá-
bæra sakamálamynd, Öll sund
lokuð (No Way out), býður upp á
allt það sem góð sakamálamynd á
að hafa; spennu, rómantík og
óvæntan endi.
Wall Street
Stjömubíó
Hættuleg
Kevin Bacon, er hlaut heimsfrægð í Footloose,
hefur átt fremur erfitt uppdráttar síðan myndir,
sem hann hefur leikið í, hafa lítið gengið.
Stjörnubíó hefur nú hafíð sýningar á nýjustu
kvikmynd hans, Hættulegri óbyggðaferð (White
Water Summer), sem fjallar um ungmenni sem
fara í fjallgöngu og fá svo sannarlega að kynnast
hættum fjallanna. Þá má benda á hina frábæru
gamanmynd, Roxanne, þar sem Steve Martin fer
á kostum, gamanmynd í hæsta gæðaflokki.
Háskólabíó
Hættuleg kyiuii
Ein af þeim myndum, sem hafa
verið tilnefndar til óskarsverð-
launa þetta árið, er Hættuleg kynni
(Fatal Atraction), mögnuð spennu-
mynd undir stjórn Adrians Lynne.
Michael Douglas leikur Don Gal-
lagher sem er hamingjusamlega
giftur en fellur fyrir ungri og glæsi-
legri konu, Alex Forrest. Eftir
næturkynni vill hann ekki meira
með hana hafa og heldur að þetta
stundargaman tilheyri fortíðinni,
en svo er nú aldeilis ekki.
Hættuleg kynni er svo sannar-
lega kvikmynd sem fær áhorfendur
til að halda niðri í sér andanum af
spennu og þeirri spennu hnnir ekki
fyrr en myndin hefur runnið sitt
skeið.
Michael Douglas og Glenn Close
sýna stjömuieik í erfiðum hlut-
verkum sem krefjast mikils af
þeim. Hættuleg kynni er mynd sem
unnendur spennumynda ættu ekki
að láta fram hjá sér fara.
-HK
Aðalhlutverkin í Wall Street leika Michael Douglas og Charlie Sheen.
Bíóborgin
Regnbogiim
Örlagadans
Hver man ekki eftir túlkun Toms
Hulce á Mozart í Amadeusi. Hann
er nú mættur í slaginn á ný í
ágætri sakamálamynd, Örlagadans
(Slam Dance). Hann leikur teikn-
ara sem fær óvænt pakka frá
fyrrverandi ástkonu sem á að hafa
verið myrt. Fljótlega er hann grun-
aður um morðið og verður því að
fmna morðingjann til að sanna sak-
leysi sitt. Örlagadans er mynd sem
vakti þónokkra athygli og góða
aðsókn á haustmánuðum vestan-
hafs.
Það efast enginn um að leikstjóri
ársins 1986 var Oliver Stone. Hann
sendi það ár frá sér tvær úrvals-
myndir, Salvador og verðlauna-
kvikmyndina Platoon sem flestir
ættu nú að vera farnir að kannast
við. Varla hefur nokkur kvikmynd
fengið jafnmikið umtal. Það þarf
víst engan að undra að beðið hafi
verið með nokkurri eftirvæntingu
eftir næstu kvikmynd Stones, Wall
Street.
Bíóborgin hefur nú hafið sýning-
ar á Wall Street sem fjallar um líf
viðskiptajöfra í þessari frægustu
götu heims. Michael Douglas leikur
viðskiptarisann Gordon Gekko,
margmilljónara sem hrærist í hin-
um miskunnarlausa heimi fjár-
málamannanna. Hann tekur upp á
arma sína ungan mann, Bud Fox,
sem á í fyrstu erfitt með að aðlag-
ast hlutunum eins og þeir gerast
en verður áður en myndin er úti
fremri lærifoðurnum.
Það eru Michael Douglas og
Charlie Sheen sem leika aðalhlut-
verkin og þykir Douglas ekki hafa
sýnt betri leik. Samvinna Stones
og Charlie Sheen heldur hér áfram
en hann lék einnig aðalhlutverkið
í Platoon. Sheen er sonur hins
þekkta leikara Martin Sheen og
leikur hann einnig stórt hlutverk í
Wall Street.
Þó ekki hafi Wall Street fengið
jafngóðar viðtökur og Platoon er
hér um að ræða eftirtektarverða
mynd, ekki síst í ljósi þeirra at-
burða er áttu sér stað á götu þessari
á síðasta ári þegar lá viö að efna-
hagskerfi heimsins hryndi.
Oliver Stone við tökur á Wall
Street.
Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn
•«Gallerí Langbrók,
Bókhlöðustíg 2,
textílgallerí. Opið þriðjudaga til fóstu-
daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Gallerí Nes,
Nýjabæ v/Eiðistorg
Opnaður hefur verið nýr sýningarsalur,
Gallerí Nes, í verslunarhúsnæði Nýja-
bæjar við Eiðistorg, III. hæð. Opið er
virka daga kl. 16-19 og laugardaga og
sunnudaga kl. 13-16.
Gallerí Svart á hvítu,
Laufásvegi 17
í kvöld kl. 20 verður opnuð í nýjum sal
í Gallerí Svart á hvítu sýning á verkum
Ólafs Lárussonar. Á sýningunni verða
teikningar og grafíkverk unnin sl. tvö ár.
Sýningin stendur til sunnudagsins 6.
mars og er opið alla daga nema mánu-
daga frá kl. 12-18.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Á morgun verða opnaðar tvær sýningar
Jl Kjarvalsstöðum. Sæmundur Valdi-
marsson opnar sýningu á verkum sínum
sem eru myndir settar saman úr steinum
og rekaviði. Sýningin stendur til 6. mars.
í vestursal Kjarvalsstaða opnar Sigurður
Þórir Sigurðsson sýningu sem hann hann
nefnir Ur hugarheimi. Myndirnar eru
flestar unnar á sl. ári. Sýningin er opin
alla daga frá kl. 14-22. Henni lýkur
sunnudaginn 6. mars.
Listasafn ASÍ
Grensásvegi 16
Þar stendur yfir sýningin Vinna og*
mannlif. Á sýningunni eru listaverk frá
ýmsum tímum sem öll eiga það sameigin-
legt að fjalla um mannlegar athafnir, leik
og störf. Sýningin er opin virka daga kl.
16-20 en um helgar kl. 14-20. Aðgangur
er ókeypis. Sýningunni lýkur 20. febrúar.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að
safninu er ókeypis.
Listasafn íslands,
Fríkirkjuvegi 7
Safnið er opið alla daga kl. 11.30-16.30,
nema laugardaga og sunnudaga er opið
til kl. 19. Þar er nú uppi sýningin Aldar-
spegill, íslensk myndlist 1900-1987.
Leiðsögn fer fram í fylgd sérfræðings alla
íostudaga kl. 13.30-13.45. Kafiistofa húss-
ins er opin á sama tima og safnið.
Mokka,
Skólavörðustíg
Þessa dagana sýnir Ameríkumaðurinn
James Francis Kwiecinski verk sín á
Mokkakafii. Sýningin stendur í þtjár vik-
ur.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
í anddyri hússins stendur yfir sýning á
grafikverkum eftir sænska listamanninn
Lennart Iverus. Á sýningunni eru teikn-
ingar og grafik, mestmegnis koparstung-
ur. Sýningin verður opin daglega fram
til 28. febrúar.
Á morgun kl. 16 verður opnuð í sýningar-
sölum hússins sýning undir nafninu Hið
græna gull Norðurianda. Þetta er farand-
sýning sem skógminjasöfnin á Norður-
löndum standa að en Skógrækt ríkisins,
Skógræktarfélag íslands og Þjóðminja-
safnið hafa veg og vanda að Islands háliú,
á'samt Norræna húsinu. Sýningin verður
opin daglega kl. 14-19 til 13. mars.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3
Laugardaginn 20. febrúar kl. 16 opnar
Finnbogi Pétursson sýningu í Nýlista-
safninu. Á sýningunni eru hljóðverk
(audio-installation) í tniðsal og neðri sal
safnsins. Sýningin verður opin virka
daga kl. 16-20 og um helgar kl. 14-20.
Henni lýkur sunnudaginn 6. mars.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opnunartími í vetur er laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk og hópar
geta pantað tíma í síma 52502 alla daga
vikunnar.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriöjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Þjóöminjasafn íslands
Nýlega var opnuð sýning í forsal Þjóð-
minjasafns íslands á ýmsum munum sem
fundust við fomleifarannsóknir á Bessa-
stöðum á sl. ári. Safnið er opið þriðju-
daga, fimmtudaga, laugardaga og
sunnudaga kl. 13.30-16.
AKUREYRI
Gallerí Glugginn,
Glerárgötu 34, Akureyri
Bjöm Bimir sýnir málverk í Glugganum.
Bjöm hefúr haldið sýningar hér heima
og erlendis. Sýningin stendur til sunnu-
dagsins 21. febrúar og er opin daglega kl.
14-18 en lokuö á mánúdögum.
ÍSAFJÖRÐUR
Slunkaríki,
Ísafirði
Birgir Andrésson sýnir myndverk sín í
Slunkaríki. Sýningin er opin á auglýstum
opnunartíma sýningarsalarins. Birgir
hefur haldið fjölmargar einkasýningar
hér heima og eriendis. Einnig hefur hann
tekiö þátt í samsýningum. •