Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Síða 1
9. TBL. LAUGARDAGUR 5. MARS 1988, Magnús leyfði Palla að reyna sleðann. Svo voru þeir alltaf að renna sér á sleðanum hans Magnúsar. Björk Sigursteinsdóttir, Skjólbrekku, 311 Borgarnesi Sleðaferðin Gunnar spurði Sigga bróður sinn hvorf hann vildi koma út á sleða. „Hvar?“ spurði Siggi. „Á hólnum,“ svaraði Gunnar. „Já, já,“ sagði Siggi. „Við skiptumst á að vera með þinn sleða, Siggi,“ sagði Gunnar. Svo fóru þeir út á sleða. „Þetta er mjög gaman,“ sagði Siggi við Gunnar. „Já, það er mjög gaman,“ sagði Gunnar. Helgi Þór Þorsteinsson, 6 ára, Hvassaleiti 87, 103 Reykjavík Snjórinn Siggi leit út. Þá sá hann að það var kom- inn mikill snjór. Siggi fór í stígvél, úlpu, regnbuxur og húfu. Svo fór hann út. Þá kom stelpa sem heitir Anna. Hún kom með snjó- þotu. Anna var voða montin af því að hún var nýbúin að fá snjóþotuna. Svo fór hún að renna sér. Siggi var bara með poka. Þá fékk Siggi að renna sér með Önnu. Svo urðu Siggi og Anna bestu vinir. Anna Vallý Baldurdóttir, 10 ára, Grenigrund 38, 300 Akranesi Davíð og Valdimar Þegar Valdimar var búinn að borða fór hann út með sleðann sinn. Hann renndi sér í brekkunni fyrir ofan húsið. Hann renndi sér á maganum óg bakinu og líka sitjandi. Hann var að renna sér á maganum þegar Davíð kom. Hann var með blöðru. Davíð vinkaði til Valdimars en þá missti hann blöðruna. Þá sagði Valdimar: „Eigum við ekki að reyna að ná blöðrunni?“ „Nei, þetta er allt í lagi,“ sagði Davíð. „Ég ætla að hlaupa heim og ná í sleðann minn.“ Davíð náði í sleðann sinn og þeir renndu sér margar ferðir niður brekkuna langt fram á kvöld. Aldís Hilmarsdóttir, 10 ára, Vesturási 51, 110 Reykjavík Jói og blaðran Einn morguninn þegar Jói litli vaknaði var farið að snjóa. Jói klæddi sig í flýti og spurði mömmu sína hvort hann mætti fara út með nýju blöðruna sína. Mamma hans sagði: „Nei, hún getur bara týnst.“ En Jói fór samt með blöðruna út. Þegar hann kom út sá hann Bjarna vin sinn koma brunandi niður brekkuna á sleðanum sínum. Og þá var Jói að heilsa Bjarna þegar hann missti nýju blöðruna sína. Hann fór að hágráta. Jói hljóp grátandi heim og sagði mömmu sinni alla söguna. En mamma gaf Jóa nýja blöðru og sagði: „Þú mátt aldrei gera þetta oftar.“ Jói litli fór nú aftur út en með enga blöðru. Svo fór hann bara að renna sér með Bjarna á sleðanum. Ása Ingibergsdóttir, 10 ára, Höfðavegi 45, 900 Vestmannaeyjum Sleðinn Einn vetrarmorgun, þegar Grímur vakn- aði, var byrjað að snjóa. Hann langaði svo mikið út en hann átti engan sleða. Þegar Grímur kom niður var stór pakki. Á pakk- anum stóð: Til Gríms. Frá mömmu og pabba. Hvað haldið þið að hafi verið í pakkanum? Jú, það var sleði, risastór sleði. Grímur þakkaði fyrir sig og sagði mömmu að hann ætlaði strax út að renna sér. Grímur fór í stærstu brekkuna. Allt í einu kom Kalli, besti vinur Gríms. Þeir fóru að renna sér á sleðanum til skiptis. Lára Marta F., 8 ára, Breiðvangi 3, 200 Hafnarfirði Dísa átti heima fyrir utan bæinn en Óli átti heima í bænum. Óli var besti vinur Dísu. Dísa átti fallegan sleða sem pabbi hennar hafði smíðað. Það var vetur og Dísa var á sleðanum sínum fyrir utan. Þá sá hún Óla koma með blöðru. Hann veifaði til hennar og Dísa kallaði í hann og bað hann að vera með sér. Dísa sagði við Óla: „Mamma er að baka kleinur og hita kakó.“ Þegar þau voru búin að leika sér til hálf- fjögur kallaði mamma Dísu á þau að koma inn að drekka. Ólöf Ásta Benediktsdóttir, 8 ára, Seljahlíð 13 E, 600 Akureyri Palli og Magnús Sagan mín Skrifið sögu um þessa mynd. Sagan birtist síðan í 12. tbl. og getur að sjálfsögðu hreppt verðlaunin. Óli og Dísa Einu sinni þegar Palli kom til Magnúsar þá var Magnús að renna sér á nýja sleðan- um sínum í brekkunni við húsið sitt. Palli spurði hvort hann mætti prófa sleðann og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.