Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1988, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 26. MARS 1988.
35
Bflar
Nissan Pathfinder SE 3000:
Lengd: 4.365 mm
Breidd: 1.690 mm
Hæð: 1.690 mm
Bil á milli öxla: 2.650 mm
Hæð undir lægsta punkt: 220
mm
Þyngd: 1.746 kg
Vél: V-6,2960 rúmsentímetr-
ar, 145 hestöfl
Fjöðrun: Sjálfstæð að framan,
heill öxull með gormum að
aftan. Stillanlegir loftdempar-
ar. Jafnvægisstengur bæði að
framan og aftan.
Hemlar: Diskahemlar að
framan, skálar að aftan, hjálp-
arafl.
Hjól: 31x10,5R15
Að aftan gefur varahjólið, sem er á sveiflugrind, bilnum sérstæðan svip.
Þessi staðsetning varahjólsins, i stað þess að hafa það undir bilnum að
aftan, gerir hann hæfari i ófæruakstur.
Honda Legend kominn til landsins
Um síðustu helgi var kynntur í
fyrsta sinn hér á landi toppbíllinn
frá Honda í Japan, Honda Legend.
Þessi bíll er árangur samstarfs
Honda og Rover í Englandi. Unnið
var sameiginlega að hönnun þess-
ara bíla og eru þeir í tæknilegu
tilliti nánast eins, en útlitið er dálít-
ið frábrugðið. Frá Rover heitir
hann Rover 800 Sterling.
Honda Legend er í efri milli-
stærðarflokki og er ætlað að keppa
við bíla eins og 5-línuna frá BMW,
Benz 240/300 og Volvo 760. Hann er
hlaðinn allri nýjustu tækni, búinn
rafstýringu á sætum. hraðastilli,
aflstýri sem breytir átaki miðað við
hraða, tölvustýrðri beinni innspýt-
ingu og sjálfvirku loftræstikerfi.
Legend er framhjóladrifmn og
búinn V-6 vél, 173 hestafla. Verðið
á Legend er 1.995 þúsund krónur.
Fyrir þá sem vilja kynna sér grip-
inn nánar þá er hann til sýnis í
dag.laugardag, frá kl. 13 til 17.
Mælaborð og stjórntæki eru eins og best verður á kosið. Bíllinn er hlaðinn alls kyns aukabúnaði, tvivirkri sjálf-
skiptingu, hraðastilli og ýmsu öðru góðgæti.
Góður vinnustaður ökumanns
Aðstaða ökumanns er eins og best
verður á kosið. Mælaborð er vel
hannað, allir mælar liggja vel við og
rofar eru aðgengilegir. Hér er snún-
ingshraðamælir, olíuþrýstimælir og
í hraðamæli eru þrír vegmælar. Við-
vörunarljós eru mörg og gefa góða
yfirsýn um það sem er að gerast og
jafnframt tengingu aukabúnaðarins.
Veltistýri er til staðar sem gerir það
að verkum að allir ættu að geta fund-
iö sér stillingu við hæfi.
Skiptistöngin fyrir sjálfskipting-
una er há og gefur þar með góða
tilfmningu fyrir því í hvaða skiptistig
verið er að setja hverju sinni.
Skemmtilegur I akstri
Það er gaman að aka Pathfinder,
allavega þessari gerð. Kraftmikil V-6
vélin, 145 hestöfl, gefur bílnum gott
og sportlegt viðbragð. Sjálfskiptingin
vinnur vel með vélinni og skapar
góða fólksbílstilfmningu, sérstaklega
í innanbæjarakstri.
hægt að hækka hann upp líkt og bíla
með heilli hásingu bæði að framan
og aftan. Á þessum stóru dekkjum,
sem hann er með sem staðalbúnað
er vart þörf á upphækkun fyrir
venjulega jeppanotkun.
Vegna þess að bíllinn er byggður á
heila grind, og hana sterklega, þá er
hann stinnur í akstri og veitir það
traustleikatilfinningu þótt ekið sé
um grófar slóðir.
Rúmgóður
Innanrými í Pathfmder er ágætt.
Sætin eru með þeim betri í bílum í
þessum flokki og veita góðan stuðn-
ing, einkum framsætin. Fótarými er
gott, bæði fyrir fram- og aftursætis-
farþega. Höfuðrýmið er nóg fyrir
fullorðna, ágætt í framsætum en rétt
sleppur í aftursæti. Klæðningar eru
í öllu innanrýminu, þykkar og með
góöum frágangi.
Vegna þess að hliðardyr eru aðeins
tvær er inn- og útstig fyrir aftursæt-
isfarþega frekar þröngt. Raunar er
aðeins gert ráð fyrir því að farþegar
í aftursæti noti dymar hægra megin
því þegar sætisbakið þeim megin er
lagt fram rennur stóllinn fram um
leið og þar með myndast sæmilegt
pláss fyrir þá sem vilja inn eða út.
Bak bílstjórasætisins er hægt að
leggja fram en þar sem stóllinn situr
kyrr er varla um að ræða að nota
þá hlið til þess að komast í aftursæt-
ið. Vegna sérstæðs byggingarlags
bílsins er ekki um það að ræða að
bæta við hurðum fyrir aftursætisfar-
þegana.
Farangursrými í Pathfmder er
mjög gott. Stór afturhlerinn opnast
vel upp þannig aö aögangur að því
er góður. Afturhlerinn er einnig bú-
inn þeim valkosti að hægt er að opna
afturgluggann einan sér ef stinga
þarf inn hlutum þá leiðina. Líkt og á
gamla Bronkó er varahjólið á grind
aftan á bílnum og er sveiflað til hlið-
ar þegar opna þarf afturhlerann en
ef opna á aðeins gluggann má vara-
hjólið vera kyrrt á sínum stað.
Hljóðeinangrun í bílnum er sérlega
góö, nær ekkert veghljóð heyrist inn,
jafnvel þótt ekið sé á grófum vegi.
Hemlarnir á bílnum eru til fyrir-
myndar. Þeir eru með hjálparafli óg
svara mjög vel, hvort sem stigið er
létt eöa fast á fótstigið.
Aksturseiginleikar eru allgóðir.
Bíllinn á það til að undirstýra aöeins
í beygjum, það er að leita inn úr
beygju ef ekið er á vegi með grófu
undirlagi. Þetta er trúlega einnig því
að kenna að afturendinn vill aöeins
skríða út við slíkar aðstæður. Ef ekið
er í framdrifi á grófum vegi situr
bíllinn hins vegar mun betur. Kostur
er að hægt er aö skipta í og úr fram-
drifl á ferð. Framdrifslokur eru á
bílnum en þær eru sjálfvirkar svo
ekki þarf að fara út og setja þær á
ef búið er að festa bílinn í snjóskafli.
Eins og fyrr sagði er bíllinn hlaðinn
ýmsum aukabúnaði sem gerir hann
skemmtilegan í akstri, svo sem
hraöastilli eða „cruise-control“, sem
stillt er með litlum hnappi á stefnu-
ljósastönginni. Þá er hann með lituðu
gleri, rafdrifnum útispeglum, sóllúgu
og ýmsu öðru sem undirstrikar
sportleg einkenni bflsins.
Niðurstaða: Sportbíll
fjallamannsins
Nissan Pathfmder sameinar vel
kosti jeppans og fólksbílsins og hefur
jafnframt alla kosti litlu pallbOanna.
Hann er sportlegur í akstri, nægilegt
vélaraflið og tvöfaldir notkunar-
möguleikar sjálfskiptingarinnar
falla þaö vel að bílnum að það er
hreinlega gaman að aka honum, jafnt
um breiöstræti og grófa slóða.
Stillanleg fjöðrunin er svo punktur-
inn yfir þessu öUu saman. Því má
með sanni segja að þetta sé sportbíll
fjallamannsins.
Þetta voru kostimir en helstu gall-
arnir em hve lítið bíUinn leggur á í
beygju, hann skrikar til að aftan á
holóttum malarvegum og þríhyrndu
Afturhlerinn er tvískiptur og gefur ágætan aðgang að stóru farangursrýminu.
Hægt er að opna afturgluggann sér sem er þægilegt ef stinga þarf smáhlut-
um inn aö aftan án þess að taka varahjólið frá.
gluggarnir á hliðunum takmarka
útsýni tU hliðanna.
Hér hefur verið fjallað um Path-
finder SE 3000 en til er ódýrari
útgáfa, 2400, sem er með fjögurra
strokka 101 hestafls vél og í þessari
gerö er bíllinn með minni dekk og
mun fátæklegar búinn. Verðmunur
er líka töluverður á milli gerða því
SE 3000 bOlinn kostar í toppútfærslu
1.498 þúsund en 2400 með staðalbún-
aði mun minna eða 1.088 þúsund
krónur.
Jóhannes Reykdal
Aðgangur að aftursæti er nánast aðeins þægilegur frá farþegasæti að fram-
an því það rennur fram um leið og bakið er lagt fram.