Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1988, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1988, Page 1
17. TBL. LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988. Anna og Snati Einu sinni var lítil stelpa. Hún var 5 ára og hét Anna. Hana langaði ofsalega mikið í hund. Hún spurði mömmu og pabba hvort hún mætti fá hund. „Við sjáum nú til,“ sagði pabbi. Daginn eftir fóru mamma, pabbi og Anna á hundaheimilið og fóru að skoða hunda. Önnu leist best á hvítan hund með svörtum flekkjum. Pabba leist best á hvítan hund og mömmu leist best á alveg svartan hund. Það varð úr að þau keyptu hundinn sem Önnu leist best á. Hann kostaði 10 þúsund krónur. Hann var karlkyns og Anna skírði hann Snata alveg eins og í vísunni um Snata og Óla. Önnu fannst vísan nefnilega svo skemmtileg. Anna og Snati urðu bestu vinir og léku sér oft saman. Þegar Anna fékk Snata var hann 6 mánaða. Anna fór oft út að ganga með Snata. Halla Sif Guðlaugsdóttir, Fjölnisvegi 15, 101 Reykjavík. linda og Sámur Linda átti afinæli í dag og mamma henn- ar ætlaði að gefa henni hund. Þegar hún kom í gæludýrabúðina kom hún að girðingu og sá marga hunda en einn þeirra var hvít- ur og svartur. Maðurinn sagði að hann héti Sámur. Þá spurði mamma Lindu: „Viltu fá hann?“ „Já,“ svaraði Linda. Og hún fékk Sám og nú eru þau bestu vinir. Ingibjörg Grettisdóttir, 11 ára, Kóngsbakka 13, 109 Reykjavík. .......................... Lísa litla og hvolpurinn Einu sinni fóru mamma, pabbi og Lísa litla að skoða hvolpa en þau voru búin að lofa að gefa Lísu einn hvolp. Lísa sá ósköp sætan hvolp sem var með blett á Öðru aug- anu og Lísu langaði í hann. Mamma og pabbi gáfu Lísu hvolpinn og hún varð him- inglöð. ' Helga Ámadóttir, Heiðvangi 17, Hellu, Rangárvallasýslu. Skemmtilegur dagur Einu sinni var strákur sem alltaf hafði óskað sér að sjá hunda í gæludýrabúð. Þennan dag sagði mamma hans: „Siggi, nú skulum við fara og sjá hundana í gæludýra- búðinni.“ Siggi hrópaði upp yfir sig af ánægju og fór í úlpuna og skóna. Síðan lögðu þau af stað. Alltaf var Siggi að spyrja: „Erum við ekki að verða komin?“ Svo loks komust þau og Siggi flýtti sér strax að hundunum. Hann sá svartan og hvítan og brúnan og marga flekkótta hunda. Þegar þau komu heim fór Siggi í rúmið og sofnaði. Jóna Svanlaug Þorsteinsdóttir, 7 ára, Brekkubæ 31, 110 Reykjavík. Lappi Mamma, pabbi og Þórir voru á leiðinni í gæludýrabúð eftir að hafa ákveðið að kaupa sér hund. Þórir mátti velja. Hann valdi hreinræktaðan hvolp, karlkyns labrador. Þórir og hvolpurinn, sem hét Lappi, léku sér daglega saman. Sigurður Andrés Þorvarðarson, Laufhaga 13, 800 Selfossi. Guðfinna og Lotta Guðfinnu hefur alltaf langað í eitthvert dýr og nú rættist óskin því að hún á að fá hund. Einu sinni spurði hún hvort hún mætti fá kött. Það mátti hún ekki því að pabbi hennar var með ofnæmi fyrir köttum. Svo mátti hún ekki heldur fá páfagauk því að mamma hennar var hrædd við páfa- gauka. Allt í einu var kallað „Guðfinna, ertu að fara að koma? Við verðum að drífa okkur í hundabúðina." Það var pabbi sem kallaði. Guðfinna þaut niður stigann og beint í bílinn. Svo héldu þau af stað. Þegar þau komu sá Guðfinna marga fallega hunda. Hún var lengi að velja sér hund en svo fann hún eina mjög fallega tík og sagð- ist vilja eiga hana og foreldrar hennar voru ekkert á móti því svo þau keyptu hana. Tíkin var skírð Lotta. Lotta og Guðfinna urðu góðir vinir. Svo eftir nokkra mánuði eignaðist hún 5 hvolpa. Þeir voru mjög sætir. Foreldrar Guðfinnu vildu ekki eiga svona marga hvolpa svo að þau gáfu þá alla nema einn. Lottu var alveg sama þótt hún ætti bara einn. Hún hugsaði mjög vel um hann og Guðfinna líka. Elín Sveinsdóttir, 11 ára, Tjamarlöndum 13, 700 Egilsstöðum Systkinin Einu sinni voru þrjú systkini sem hétu Róbert, Sigrún og Heiðdís. Róbert var 15 ára, Sigrún 13 ára en Heiðdís bara 5 ára. Þau langaði svo mikið í hvolp en amma þeirra bjó hjá þeim og hún var með ofnæmi fyrir hundum. Eitt sinn sagði hún við krakkana: „Bráð- um flyt ég í aðra íbúð og þá skal ég gefa ykkur hund.“ Allir urðu sammála um það. Svo var það eitt sinn þegar Róbert og Sig- rún komu heim úr skólanum að amma var að flytja, ekki langt, bara í næsta hús. Þeg- ar þau komu inn sögðu mamma og amma við þau: „Viljið þið ekki fara með Heiðdísi og velja ykkur hund?“ Þau vildu það og gerðu. Heiðdísi langaði svo mikið í einn hundinn og þau tóku hann og skírðu hann Kát því hann var svo kátur. Bömin áttu Kát alveg þar til Heiðdís var orðin 17 ára, en þá dó Kátur því hann varð svo veikur. Óskar Atli Rúnarsson, 6 ára, Laufási, 840 Laugarvatni. Frá Bama-DV: Margar fleiri frábærar sögur bárust en því miður getum við ekki birt fleiri. Sérstak- lega vom sögumar frá HAFDÍSI EYJ- ÓLFSDÓTTUR, Stekkjarhvammi 20 í Hafnarfirði, SIGRÍÐI ÁKADÓTTUR, Sól- völlum 5, Selfossi, KRISTRÚNU LILJU SÆVARSDÓTTUR, Miðnesi 1, Skaga- strönd, og AUÐIKARENU GUNNLAUGS- DÓTTUR, Heiðarlundi 6F, Akureyri, skemmtilegar og vel unnar. Þið skrifið bara aftur og vonandi verða sögumar þá birtar! Bestu þakkir! Sagan mín Skrifið sögu um þessa mynd. Sagan birtist síðan í 20. tbl. og getur að sjálfsögðu hreppt verð- launin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.