Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Side 8
30
MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1988.
ö REYKJKMIKURBORG o
Aaxi&vi Stiuáci
HEIMILISHJÁLP
Starfsfólk óskast í heimilishjálp. Heilsdagsstörf eða
hlutastörf eftir samkomulagi.
Upplýsingar í síma 18800.
ÚTGERÐARMENN
RÆKJUTOGARA
Okkur vantar fyrir traustan, erlendan kaupanda mikið
magn af skelrækju, 170+ IQF frosinni. Einnig vantar
okkur soðna skelrækju, 90-120.
Áhugasamir hafi samband við okkur sem allra fyrst.
Höfóabær hf„ simar 612222 - 612221.
KNATTSPYRNUÞJÁLF-
ARI ÓSKAST
fyrir 5. og 6. aldursflokk hjá GRÓTTU
í sumar.
Upplýsingar veita:
Guðmundur Hannesson, s. 616728 og
Steinn Jónsson, s. 611899,
eftir klukkan 20.00 á kvöldin.
Gró.tta - knattspyrnudeild
Erum með acupuncture- og
leysigeislameðferð við hár-
losi og ennfremur hrukku-
meðferð og punktanudd.
mHUGEisunti 5/f
FAXAFEM 10 - i FFAMTÍÐIhtll
5ÍMI: 686086
DV
Iþróttir
• Þessi mynd var tekin í vetur í leik Vals og Fram. Handknattieikskonur hafa i nógu að snúast í sumar en lands-
liðið mun æfa á fullu í allt sumar.
KvennahandknatUeikur:
A-landsliðið við
æfingar í allt sumar
- C-keppnin í haust auk fjölda annarra landsleikja
Mikil verkefni blasa við framund-
an hjá íslenska kvenna A-landsliðinu
í handknattleik. Stórhugur er innan
Handknattleikssambandsins að rífa
upp kvennalandsliðið til vegs og
virðingar en í haust tekur liðið þátt
í C-keppninni sem verður haldin í
Frakklandi. Liðið mun æfa af fullum
krafti í allt sumar og aö auki verða
leiknir nokkrir vináttulandsleikir.
• Æflngar Uðsins hófust í apríl
undir stjórn Júgóslavans Dr. Slavko
Bambir og veröur æft alla daga vik-
unnar í íþróttahúsinu í Digranesi en
frí verður á sunnudögum. í júní tek-
ur íslenska kvennalandsliðið þátt í
alþjóðlegu móti í Portúgal en auk
íslands taka þátt í mótinu Portúgalir,
Spánverjar, Frakkar, ítalir og Sviss-
lendingar. Að loknu þessu móti
verður sumarfrí frá l.-23.júU.
• í byrjun september koma Frakk-
ar hingað til lands og leika fjóra
landsleiki. Um miðjan september
koma svo Spánverjar og leika þrjá
landsleiki við íslenskar stallsystur
sínar. Landsleikirnir við Frakka og
Spánverja eru fyrstu leikirnir hér á
landi síðan í nóvember 1986.
• Eftir landsleikina hér á landi
verður tekið að nýju við æfingar
fram að C-keppninni í Frakklandi
sem hefst 26. október. Átta þjóðir
hafa tryggt sér þátttökurétt í keppn-
inni en það eru ísland, Frakkland,
Holland, Spánn, Svíþjóð, Ítalía, Sviss
og Portúgal. Sérstök forkeppni verð-
ur haldinn stuttu fyrir C-keppnina á
milli Englands, Tyrklands, Grikk-
lands og Israel og komast tvær þjóðir
úr þeirri keppni í C-keppnina.
45 stúlkur valdar til æfinga hjá
unglingalandsliðinu
Til æflnga með unglingalandslið-
inu hafa verið valdar 45 stúlkur og
eru þær úr Reykjavík, Kópavogi,
Garðabæ, Hafnarflrði, Keflavík,
Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Vest-
mannaeyjum. Eftir er að fara til
Akureyrar og fleiri staða úti á landi
þar sem vitað er að mikið er af efni-
legum ungum handknattleikskon-
um. Hópnum er skipt í tvo hópa og
er æft 3-4 sinnum í viku og þegar
prófum lýkur i vor verða æfingar
oftar í viku.
Verkefni sem þegar liggja fyrir eru
æfinga- og keppnisferð til Ítalíu á tvö
alþjóðleg unglingamót, Noröur-
landamót 19 ára stúlkna í Finnlandi
og forkeppni heimsmeistarakeppn-
innar fyrir 20 ára stúlkur. Þá er
áætlað að fariö verði fjórum sinnum
í æfingabúðir út fyrir höfuðborgina,
fram að Norðurlandamóti. Kristján
Halldórsson er þjálfari en honum til
aðstoðar verður Slavko Bambir.
• Að auki verður válið eins konar
16 ára úrval og verður stór hópur
valinn til æfinga og er hugsað að
hafa æfingamar í formi handbolta-
skóla, þ.e. farið yrði 5-6 sinnum á
næsta keppnistímabili með stúlkurn-
ar í æfingabúðir frá föstudegi til
sunnudags og þar yrði handbolti
kenndur frá grunni. Talsvert af verk-
efnum liggja nú þegar fyrir þessum
hópi.
-JKS
Kylfingar frá íslandi hafa gert mikið að því að leika golf erlendis í vetur og á dögunum fór fram mót
á vegum Samvinnuferða-Landsýnar á Mallorca á Spáni sem Kjartan L. Pálsson fararstjóri skipulagði. Keppt var
um 13 verðlaun á mótinu og ein og sama fjölskyldan gerði sér lítið fyrir og vann fern þeirra. Lengst til vinstri er
Ólafur Þór Ágústsson, sem vann unglingaflokkinn, þá Ágúst Húbertsson, faðir hans, sem vann flokk karla með
forgjöf, kona hans, Hrafnhildur Þórarinsdóttir, sem vann til verðlauna í flokki kvenna með forgjöf, og loks Húbert
Ágústsson sem vann til verðlauna í unglingaflokki. Þess má geta að í þessum mánuði bjóða Samvinnuferðir-
Landsýn upp á aðra golfferð í viku sem mun kosta um 18 þúsund krónur.