Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1988.
33
parkjet n>
1~Ji_r ö h und’ZP ö /-
úiunJ
. ' -*■
Iþróttir
Islandsmeistarar Vals hlutu á dögunum fjárstyrk, að upphæð 200 þúsund krónur, frá fyrir-
tækinu Agli Árnasyni hf. Hlíðarendaliðið spilaði einmitt heimaieiki sina á parketgólfi frá fyrirtækinu í vetur en
þar tapaði Valur aðeins einu stigi i deildarkeppninni.
Á myndinni má sjá þá Þórð Sigurðsson, formann handknattleiksdeildar Vals, og Geir Sveinsson, fyrirliða
íslandsmeistaranna, veita styrknum viðtöku úr hendi Birgis Þórarinssonar, forstjóra Egils Árnasonar hf. Að
baki þeim standa tveir burðarstólpar Hlíðarendaliðsins, Valdimar Grímsson og Þorbjörn Guðmundsson.
Cruyff þegar farinn
að opna budduna
hefur áhuga á að fá Rijkaard til Barcelona
Hollendingurinn Johan Cruyff,
sem tók viö þjálfarastöðunni hjá
spánska liðinu Barcelona á dögun-
um, er nú þegar farinn að íhuga kaup
á leikmönnum til að styrkja lið sitt
fyrir næsta keppnistímabil.
Cruyff hefur lýst því yfir að hann
hafi áhuga á að fá hollenska leik-
manninn Frank Rijkaard til Barce-
lona en ekki er víst hvernig það
muni ganga. Rijkaard þessi átti
nefnilega í deilum við Cruyff þegar
hann var þjálfari Ajax í Hollandi og
hætti hjá félaginu - fór frá Ajax til
portúgalska félagsins Sporting Lissa-
bon en hefur undanfarið leikið með
spánska 1. deildar liðinu Real
Zaragoza sem lánsmaður frá Sport-
ing.
Sjálfur er Cruyff ekki í nokkrum
vafa um að Rijkaard vilji koma til
Barcelona og gerir lítið úr deilum
þeirra hjá Ajax. „Ég veit að Rijkaard
mun örugglega vilja koma til Barce-
lona,“ sagði Cruyff á blaðamanna-
fundi. Cruyff gaf það í skyn á
fundinum að hann hefði áhuga á að
kaupa íleiri leikmenn til Barcelona
en vildi ekki nefna fleiri nöfn.
Það er kunnara en frá þurfi að segja
að gengi Barcelona hefur ekki verið
upp á marga fiska á yfirstandandi
keppnistímabili og Johan Cruyff er
þriðji þjálfari liðsins á einu ári. Þjálf-
arar eru ekki hafðir lengi í vinnu hjá
félaginu skili þeir ekki árangri og það
hafa þekktir þjálfarar á borð við
Terry Venables fengið að reyna. Það
verður fróðlegt að sjá hvort Cruyff
nær árangri með liðið en hann náði
mjög góðum árangri með Ajax þegar
hann stjórnaði þar. -SK
• Frank Rijkaard, tii vinstri á myndinni. Cruytf hefur áhuga á aö fá hann
til Barcelona. Símamynd Reuter
Kílóaf
gulli fyrir
eitt mark
Þaö verður til mikils að vinna fyrir
portúgalska knattspyrnuliðið
Benfica þegar það mætir hollenska
liðinu PSV Eindhoven í úrslitaleik
Evrópukeppni meistaraliða í knatt-
spyrnu síðar í þessum mánuði.
Það verður ekki aðeins mikilvægt
fyrir Benfica að sigra í leiknum. Nú
hefur ítalskt kaffifyrirtæki heitið því
að greiða Benfica andvirði eins kíló-
gramms af gulli fyrir hvert mark sem
liðið skorar í úrslitaleiknum. Eitt
kíló af gulli er metið á um 15 þúsund
dollara eða um 60 þúsund íslenskar
krónur. í fyrra lék þetta sama fyrir-
tæki sama leikinn er Porto lék til
úrslita í keppninni og þá skoraði lið-
ið tvö mörk og varö á annaö hundrað
þúsund krónum ríkari. -SK
Þjálfari Marokkó var rekinn
Eftir aö Marokkó haíöi aðeins
náö íjórða sæti í Afríkukeppninni
í knattspyrnu, tapað fyrir Alsír í
leiknum um bronsverðlaunin, sáu
forráöamenn knattspymusam-
bandsins í Marokkó þann kost
vænstan aö reka þjálfara iandsliös-
ins, Jose Mehdi Faria, en hann er
fæddur í Brasilíu.
Landslið Marokkó kom mjög á
óvart í síðustu heimsmeistara-
keppni, 1986 í Mexíkó, er liðið
komst í 16 liða úrslitin og eftir að
hafa orðiö efst í sínum riðh þar sem
lið á borð við England, Pólland og
Portúgal kepptu. Síðan hefur hall-
að undir fæti og nú hefur Brasilíu-
maðurinn þurft aö taka pokann
sinn.
-SK
FLUGLEIÐIR
-fyrir þíg-
Höfum nú fyrirliggjandi MODEM. Hraói 1200/1200 og
300/300 bitar/sek.
Sjálfvirk upphringing með HAYES samhæfðum
skipunum.
Tenging vió allar tölvur.
MTÆKNIVALI
Grensásvegi7,108 Reykjavlk, Box 8294, S: 681665 og 686064
Góð vara - lágt verð
Marshal - Dunlop
Radial sumardekk
Stærð: Verð: 65 Seria
145x12 1600 Stærð: Verð:
155x12 1970 165/65x13 2960
135x13 1750 165/65x14 3000
145x13 1^55x13 2050 2090 195/65x15 4470
165x13 2300 60 Seria
145x14 2150 Stærð: Verð:
175x14 2700 195/60x14 4300
185x14 165x15 2800 2500 205/60x15 55 Seria 5470
70 Seria Stærð: Verð:
Stærð: Verð: 195/55x15 5700
155/70x13 2650 75 Seria
165/70/13 2690
175/70x13 2550 Stærð: Verð:
185/70x13 2850 235/75x15 5400
185/70x14 195/70x14 2850 3200 Sendibílar
205/70x14 3520 Stærð: 215x14 Verð: 7200
HAGBARÐI H/F
Hjólbarðaverkstæði - Ármúla 1, sími 687377
(ekið inn frá Háaleitisbraut).
Opið virka daga kl. 8-19,
laugardaga kl. 9-17.