Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1988, Qupperneq 6
30
FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988.
Atriði úr nýjustu kvikmynd John Carpenters, Myrkrahöfðinginn.
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir
Regnboginn
Myrkrahöfðinginn
I nýjustu kvikmynd sinni,
Myrkrahöfðingjanum (Prince Of
Darkness), lætur meistari hryll-
ingsmyndanna, John Carpenter,
sögupersónur sína eiga við sjálfan
höfðingjann úr því neðra.
Myndin segir frá nokkrum há-
skólanemendum og visindamönn-
um sem safnast saman í kirkju
einni með mjög svo sérstaka til-
raun í huga. Þetta er allt ósköp
venjulegt fólk, en um leið og það
stígur inn fyrir dyr kirkjunnar á
þaö sér ekki viðreisnar von.
Þannig er máliö vaxið að kaþólsk-
ur prestur, er Donald Pleasence
leikur, hefur uppgötvað handrit
sem skýrir að í kirkjunni sé sjö
milljón ára gamall kistill sem búi
yfir ógnarkrafti...
John Carpenter hefur áður feng-
ist við dularfull öfl sem komin eru
af hinu illa. Hver man ekki eftir
háskabílnum Christine eða óþverr-
anum sem beið í milljónir ára und-
ir ísi lögðu norðurskautinu í The
Thing? John Carpenter er því á
heimaslóðum í Myrkrahöfðingjan-
um og á sú mynd ábyggilega eftir
að bregða áhorfendum í tíma og
ótíma. Aðalhlutverkin leika Don-
ald Pleasence Jameson Parker og
Lisa Blount.
HK.
Jessica Tandy og Hume Cronyn ásamt öðrum leigjendum blokkar sem
á að fara að rifa.
Laugarásbíó
Raflost
Þeir sem höfðu gaman af hinni
ágætu mynd Cocoon geta ábyggi-
lega haft gaman af Raflost (Batteri-
es Not Included) sem fjallar einmitt
um persónur sem hjálpaö er af
geimverum.
í stuttu máh fjallar myndin um
íbúa blokkar einnar í New York
sem á að fara að rífa. íbúar eru
leigjendur sem ekkert geta gert í
máhnu. Nótt eina flýgur pínulítið
geimskip inn um gluggann á einni
íbúðinni. Geimfararnir eru hinir
vingjarnlegustu og með þeirra
hjálp ákveða íbúarnir sem eftir eru
og geimfararnir að bjarga því sem
bjargað verður.
Leikstrjóri er Matthew Robbins
og aðalleikarar eru heiðurshjónin
Hume Cronyn og Jessica Tandy en
þau léku einmitt í fyrrnefndri
Cocoon.
Bíóborgin
Bannsvæði
Buck McCriff (Wlllem Dafoe) og Perkins (Gregory Hines) eru herlögreglumenn sem látnir eru rannsaka
morð sex gleðikvenna í Bannsvæði.
Bannsvæði (Off Limits) er ein
nýlegra mynda sem fylla þann hóp
er fjallar á einhvern hátt um Viet-
nam stríðið. Willem Dafoe, er gerði
garðinn frægan í Platoon, leikur
ásamt Gregory Hines lögreglu-
menn sem staðsettir eru í Saigon
1968.
Þeim er fahð að rannsaka morð
á sex gleðikonum sem ahar áttu
það sameiginlegt að eiga böm með
bandarískum hermönnum.
Ahar líkur benda til að morðingj-
amir séu hátt settir hðsforingjar. í
leit sinni að sönnunargögnum
verða þeir að heimsækja spihta
veröld næturlífsins þar sem allt
viðgengst og lenda því oft í mitólli
lífshættu. Einnig fá þeir hjálp frá
nunnu einni sem reynist þeim betri
en enginn.
Leikstjóri er Christhopher Crove
og er þetta fyrsta mynd hans, en
hann á að baki ferU innan sjón-
varpsins. Hann er einnig annar
handritshöfunda og minnir áhorf-
endur á að þótt sögusviðið sé Viet-
nam og stríðið sem þar var háö,
þá sé Bannsvæði þriller þar sem
rannsókn morða er miðpunktur-
inn. Áður hafa verið nefndir Dafoe
og Hines. Af öðrum leikurum má
nefna Fred Ward, Scott Glenn og
Amanda Pays.
McCriff fær hjálp hjá nunnunni
Nicole (Amanda Pays).
Sýningar
Listasafn ASÍ
Grensásvegi 16
Laugardaginn 4. júní var opnuð mál-
verkasýningin Fjórar kynslóðir. Sýning-
in, sem er sjálfstætt fraimlag til Listahá-
tíöar 1988, er jafnframt sumarsýning
safnsins. A sýningunni eru um 60 mál-
verk eftir á fjórða tug listamanna og
spanna timabilið frá fyrsta áramg þessar-
ar aldar fram á síðustu ár. Sýningin er
opin alla virka daga kl. 16-20 og um helg-
ar kl. 14-22. Henni lýkur 17. júlí.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvisindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að
safninu er ókeypis.
Listasafn islands
Frikirkjuvegi 7
Þar stendur yfir sýningin Norræn kon-
krethst 1907-1960. Hún er framlag Lista-
safns íslands tU hátíðarinnar að þessu
sinni. Á sýningunni eru bæði málverk
og höggmyndir. Þá stendur einnig yfir
sýning á verkum hins heimsþekkta lista-
manns Marcs Chagall. Sýningamar eru
opnar alla daga nema mánudaga kl. 11-22
til loka listahátíðar þann 19. júni en síðan
eftir að listahátíð lýkur kl. 11-17. Sýning
Marcs Chagall stendur til 14. ágúst og
sýningin Norræn konkretlist til 31. júlí.
Kaffistofan er opin á sama tíma og sýn-
ingarsalimir.
Mokkakaffi
Skólavörðustíg
Nú stendur yfir á Mokkakaffi sýning á
um það 30 ljósmyndum eftir Davíð Þor-
steinsson. Myndimar em allar teknar
inni á Mokka af gestum kaffihússins og
starfsfólki. Sýningin er haldin í tilefni af
30 ára afmæU Mokkakaffis.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóöminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
Þar stendur yfir sýning Textílfélagsins á
verkum félagsmanna og er sýningin Uður
í Ustahátíð. Á sýningunni em bæði stór
verk og smá (miniature) og em flest verk-
in til sölu. Heiðursfélagi Textílfélagsins,
Sigríður HaUdórsdóttir, sýnir vefnað,
unninn eftir sömu tækni og er á tveimur
spjaldofnum borðum á Þjóðminjasafni
íslands og varðveist hafa frá miðöldum.
Sýningamar em opnar daglega kl. 14-22.
Nýhöfn
Hafnarstræti 18
Guðrún Kristjánsdóttir sýnir málverk í
Nýhöfn. Fyrstu einkasýnmgu sína hélt
Guðrún á Kjarvalsstöðum 1986 en þetta
er fjórða einkasýning hennar. Auk þess
hefur hún tekið þátt í samsýningum.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga kl. 10-18 og frá kl. 14-18 um
helgar. Henni lýkur 19. júní.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögmn,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafn Islands
í safninu stendur yfir sýning á myndum
eftir enska fræðimanninn og málarann
W.G. CoOingwood, sem ferðaðist um
landið árið 1897, og mun sú sýning standa
til haustsins. Safnið er opið alla daga vik-
unnar nema mánudaga frá kl. 11-16.
Menningarstofnun
Bandaríkjanna
Neshaga 16
Síðasta sýningarvika Gulay Berryman á
myndum, máluðum á íslandi, Frakk-
landi, Tyrklandi og víðar. Opið daglega
kl. 8.30-20 en frá kl. 13.30-20 um helgina
en henni lýkur sunnudagskvöldið 12.
júní.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Hafnarfirði
Eirikur Smith listmálari sýnir þar verk
sín. Sýningin er opin daglega kl. 15-22 tfi
19. júní.
Málverkasýning í
Viðeyjarnausti
Anna Leós sýnir málverk í Viðeyjar-
nausti, Viðey. Ferðir út í Viðey eru virka
daga frá kl. 14 og frá kl. 13 um helgar.
Ljósmyndasýning í Eden
Michael Gunter, bandarískur ríkisborg-
ari, búsettur á Islandi, sýnir ljósmyndir
í Eden í Hveragerði. Þetta er önnur
einkasýning hans á þessu ári. Hann sýn-
ir 30 svart/hvitar Ijósmyndir og eru þær
aUar tU sölu. Sýiiingunni lýkur 13. júní.
Þrastarlundur
í Þrastarlundi stendur yfir sýning á verk-
um Ragnars Lár. Á sýningunni eru 14
gvass- og vatnsUtamyndir. Sýningin, sem
hófst um hvítasunnuna, stendur í þijár
vikur
Myndlistarsýning á Akureyri
MyndUstarsýning verður opnuð í Glerár-
kirlgu á Akureyri á morgun kl. 16. Um
er að ræða samsýningu 5 ungra lista-
manna, þeirra Grétu Sörensen, írisar
Elfu Friðriksdóttur, Ragnars Stefánsson-
ar, Ragnheiðar Þórsdóttur og Sólveigar
Baldursdóttur. Öll hafa þau útskrifast úr
myndhstarnámi á sl. 5 árum, frá íslandi,
HoUandi, Danmörku og tvö frá Banda-
ríkjunum. Munu þau sýna skúlptúrverk,
teikningar, málverk, textfiverk og verk
unnin í leður. Sýningin verðir opin til 19.
júní en flyst yfir í Safnahúsið á Sauðár-
króki dagana 2.-10. júh. Sýningamar
verða opnar á báðum stöðunum virka
daga kl. 16-21 og um helgar kl. 14-22.