Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Blaðsíða 1
«Rpr íwwsmr'íP f. 9íto/soh/'otjaj Álit sænskra blaðamanna eftir reynsluakstur á Volvo 440: Lipur og öruggur en lítiö spennandi Volvoverksmiðjurnar í HoUandi kynntu fyrir rúmri viku nýjasta af- kvæmi samsteypunnar fyrir sænsk- um blaðamönnum í Maastricht í Hollandi. Ekki er von á þessum nýja Volvo hingað til lands alveg á næst- unni og því bar vel í veiði að leita fregna af þessum nýja Volvo hjá sænsku blaðamönnunum sem hing- aö komu vegna Tipokynningarinnar, en flestir þeirra höfðu verið viðstadd- ir kynninguna í Hoflandi. Öryggið í fyrirrúmi Það er ekki hátækni eða fjölventl- um til að dreifa hvaö varðar Volvo 440, „fólksvagninn" frá Volvo, eins og heimamenn vilja kafla hann. Vissulega er hér á ferðinni bíll sem vel svarar kröfum nútímans, en hjá Volvo er ekki verið að reyna við neitt nýtt heldur aðeins að tileinka sér þegar þekkta tækni. Það sem hins vegar situr í fyrir- rúmi er öryggiö. Þetta er aðalsmerki Volvoverksmiðjanna og að sögn sænsku blaðamannanna er það áfram haft að leiðarljósi hér. Ekki spennandi Allir voru þeir sammála um að þetta væri ekki spennandi bíll í þess orðs fyllstu merkingu. Bíllinn byggir á sportbílnum 480 og er bæöi undir- vagn og Renaultmótorinn sá sami. Volvo hefur viðurkennt að þaö hafi ýmislegt bjátað á í smíði 480-bílsins en nú eigi það að vera komið í lag. Við kynninguna á bílnum í Hollandi á dögunum töldu margir blaðamann- anna að einn helsti galli bílsins væri vélin. Þetta er gömul Renaultvél, 1.721 rúmsentímetra, sem gefur 95 hestöfl og í turboútgáfu um 120 hestöfl. Innanrýmið dregur dám af fyrir- rennaranum og þykir heldur þröngt miðað við helstu keppinautana, sér- staklega þegar aftursætisfarþegar þurfa að fara út eða inn. Lipur Bíllinn þykir lipur í akstri, völ er á aflstýri sem gerir bílinn liprari. Þægindi í akstri eru ágæt, þökk sé lipri fjöðrun, og veggrip bílsins er sagt allgott. Turboútgáfan og GLT- gerðin eru með harðari fjöðrun og í þessum útgáfum er veghæö bílsins 3 sentímetrum minni. Til að mæta íjöðruninni er bíllinn kominn á breiöari og lægri dekk. Gírkassinn er með þannig gírhlut- fall að það þarf töluvert að hræra í honum í akstri. Við framúrakstur þarf eiginlega að hoppa beint frá fimmta niður í þriðja ef það þarf að komast á fulla ferð. GLT-bíllinn er með sömu véflnni en með annaö gír- hlutfafl sem nýtir vélaraflið betur. Þegar komið er upp í turbóútgáfuna nýtist vélaraflið betur á móti gírkass- anum þannig að hægt er að nota fimmta gírinn við framúrakstur. Eitt þaö besta við þennan nýja Volvo sögðu sumir Svíanna vera það hve hljóðlátur hann er. Þegar sett er í gang heyrist aðeins lágt murr úr vélarhúsinu og eins vel kemur út hve veghljóö í bílnum í akstri er lít- ið. Hörð samkeppni Það er erflður heimur sem þessi nýi Volvo kemur inn í. Keppinautar veröa margir og fáir sem ná hylli kaupenda. Aflir keppinautarnir bjóða upp á það sama í búnaði, og sumir betur, en endanlega verða það krónur og aurar sem skipta máli. -JR Volvo 440 lendir mitt i hópi harðra keppinauta. Spurningin er hve vel bílnum gengur í þeirri samkeppni meðal bíla sem hafa jafnvel upp á meira að bjóða fyrir minna verð. Það vakti athygli Svíanna á ferð þeirra um Vesturland hve kirkjur voru margar og sumar afskekktar. Hér er það kirkjan á eyðibýiinu Rauða- mel sem vakið hefur athyglina. Með sænskum blaðamönnum í reynsluakstri á Fiat Tipo: Landið ekki síður forvitnilegt en bíllinn - það reyndust vera töggur í Tipo er á reyndi - sjá næstu síðu MOTTURIBILINN Bfla naust OPIÐ í dag, laugardag, BORGARTUNI 26, SIMI 62 22 62 frá kl. 9-12.30 J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.