Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Side 4
36
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988.
Bílar
Hvað gerir GH -bí 1
öðruvísi?
- sumir telja þá hættulegri en venjulega bíla og þá sérstaklega
í höndum ungra og óreyndra ökumanna
Sportlegir bílar eru æ meira aö
ryöa sér til rúms hér á landi. Þar eru
svokallaðir GTI-bílar fremstir í
flokki, kraftmiklir bílar sem hafa upp
á meira aö bjóða en venjulegir bílar,
bæöi í útliti og vélarafli auk búnaðar.
Það má segja aö þaö hafi verið
Volkswagen sem hratt þeirri flóö-
bylgju af staö sem síðan hefur flætt
yfir heiminn meö því að senda frá
sér Golf GTI á sínum tíma. Aö vísu
voru flestir bílaframleiðendur búnir
að senda frá sér svonefnda GT-bíla,
en þeir slógu ekki jafnglæsilega í
gegn og GTI-bílarnir geröu síðar.
Skilningur flestra á GTI-bilum nær
ekki lengra en aö þetta eru hraö-
skreiðir, kraftmiklir bílar sem eru
betur búnir en gengur og gerist.
Flestir eru þeir með sportlegt útlit,
meö GTI-bókstafi á fram eöa aftur-
enda. En þaö liggur meira á bak við
þessa skilgreiningu.
„Harðari“ undirvagn
Einn veigamesti munurinn á GTI-
bíl og venjulegum fjölskyldubO sömu
geröar er að GTI-bfllinn er meö mun
stífari íjöðrun. Meö því nást fram
sportlegri eiginleikar en jafnframt
veröur viökomandi bíll ekki eins
þægflegur í akstri fyrir farþegana.
Veghæö GTI-bílsins er minni en
venjulegs bíls, þetta er meðal annars
vegna styttri Tjaðragorma. Þetta leið-
ir af sér snögg viðbrögð GTI-bílsins
í akstri.
Höggdeyfar þessara bíla eru einnig
breyttir og eru mun kröftugri en
venjulegir höggdeyfar. Þetta er gert
til þess að hindra að hjól bílsins
hoppi viö minniháttar ójöfnur á veg-.
inum. Þetta orsakar hins vegar, og
þaö vita allir sem reynt hafa GTI-bíl
í akstri, að alhr sem í bílnum eru
veröa varir við minnstu ójöfnur í
yfirboröi vegarins. Þetta gefur öku-
manninum sérlega góöa tilfinningu
fyrir bílnum í akstri.
Nær alhr bflar eru búnir sérstök-
um jafnvægisstöngum, sem koma
eiga í veg fyrir að bíllinn eigi aö snúa
snöggt upp á sig í beygjum eða snögg-
um hliðarvindi. Þessar stengur eru
hafðar mun kröftugri í GTI-bílunum.
Allt er gert sem hægt er í tæknilegu
tflliti tfl þess að bæta aksturseigin-
leikana, bæði í beinum akstri og í
beygjum.
Önnur dekk og aðrar felgur
Eitt helsta einkenni GTI-bílsins er
annar hjólabúnaður en á venjulegum
fjölskyldubíl. Hjólbarðarnir eru
venjulegast breiðari og lægri og felg-
urnar úr léttmálmi.
Þessi „fótabúnaður“ gerir þaö að
verkum að lág-prófíldekkin fjaðra
minna og eru rásfastari á góöum
vegi en venjuleg dekk. Samanlagt
gefa slík dekk betri og sportlegri
aksturseiginleika, en jafnframt
minni þægindi í akstri.
v
Mun öflugri hemlar
Jafnframt því að styrkja undir-
vagninn þá eru hemlarnir hafðir
mun öflugri. Hemladælurnar eru •
stærri og að jafnaði eru hið minnsta
hafðir loftkældir diskar að framan.
Þessi kæling hefur það í för með sér
að diskahemlarnir eru kældir í notk-
un og það gefur jafnari og öruggari
hemlun, einkum við shkar aðstæður
á miklum hraða.
Yfirleitt er skálabremsunum að aft-
an skipt út fyrir diska eins og að
framan. Þetta gefur öruggari og jafn-
ari hemlun, einkum vegna hitans
sem myndast ef hemlað er á miklum
hraða. Þetta hafa menn lært af
reynslunni frá kappakstursbílunum.
Þá eru hjólaupphengjur allar og
hjólabúnaður, eins og legur, af
öflugri gerð til að þola aukið álag.
Háþróaðar vélar
Líkt og allt annað í þessum GTI-
bílum hafa vélarnar fengið sérstaka
meðhöndlun og oft og einatt sér-
hannaðar af tæknimönnum verk-
smiðjanna tfl að gera viðkomandi bíl
sérstæðan.
Nær allir GTI-mótorar í dag eru
búnir einhvers konar beinni innspýt-
ingu eldsneytis.
Þessi kerfi gera það að verkum að
vélin fær alltaf nákvæmlega það
magn bensíns sem hún þarf, við
hvaða aðstæður sem er. Þessi elds-
neytiskerfi eru flest rafeindastýrð og
sér lítil örtölva um að skammta elds-
neytið og stjórna kveikingu þess eftir
upplýsingum frá fjölda skynjara í og
við véhna. Endanleg útkoma úr
þessu öhu er að vélin gefur mun
meira og sneggra afl en venjuleg bíl-
vél með venjulegum blöndungi.
Að jafnaði er veriö að ræða um vél
með átta upp í 16 og jafnvel 32 ventla,
mismunandi eftir tegund bílsins. Það
er þó rétt að undirstrika að venjuleg
átta ventla vél getur gefið svipað afl
og önnur jafnstór með 16 ventlum.
Snöggt viðbragð er aðalein-
kennið
Séreinkenni GTI-bíla er að þegar
stigið er á bensíngjöfina svarar vélin
án tafar.
Yfirbygging GTI-bíls er oftast nán-
ast sú sama og á venjulegu gerðinni
en þó eru oft og einatt gerðar smá-
breytingar, brettaskálar eru stærri
og annað smávegis breytt. Þá þarf
stundum að breyta öðru til þess að
yfirbygging bílsins standist það álag
sem GTI-gerðin getur orsakaö fram
yfir venjulega ljölskyldubílinn. Útlit-
ið er þá einnig sveigt í áttina að sport-
legra útliti.
Innrétting GTI-bíla er einnig sér-
hönnuð og gerð til að gefa GTI- bíln-
um sportlegra útlit. Ymsum auka-
mælum er bætt viö í mælaborðið og
annar aukabúnaður, eins og raf-
drifnar rúður, rafstýrðar læsingar,
skálaformaðir stólar í framsætum,
leðurstýri og ýmislegt fleira gefur
GTI-bílnum sérstakt yfirbragð. Allt
TOYOTA
BÍLASALAN
Sími
6
8
7
1
2
0
Toyota Corolla special series árg.
1987,1300, 5 gfra, 4ra dyra, hvitur,
ekinn 25.000. Verð 510.000. Fall-
egur bíll.
Salan sem selur!
TOYOTA
BÍLASALAN
SKEIFUNN115, SÍMI 687120
Pétur Pétursson sölustj.
Jón R. Harðarson sölum.
Jóhann H. Jóhannsson sölum.
Egill Matthíasson sölum.
Hermann Jónasson sölum.
TOYOTA
BÍLASALAN
Toyota MR2 árg. 1986,1600, 5 gíra,
2ja dyra, hvítur, ekinn 39.000. Verð
980.000. Töff sportbíll.
Suzuki Swift 6Ti árg. 1988,1300i, 5
gíra, 3ja dyra, hvítur. Verð 640.000.
Sprækur bill.
Subaru 1800 station 4x4 árg. 1987,
1800, 5 gíra, 5 dyra, Ijósblár, ekinn
31.000. Verð 730.000. Góður bíll.
Sími
6
8
7
1
2
0
Líttu inn. Opið virka daga kl. 9-19, laugardaga kl. 10-16,
mmmmmmmmmm