Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Side 5
LAUGARDAGUK 3. SBPTEMBER 1988. 4S Bflar Það var VW Golf GTI sem ruddi brautina fyrir GTI-bílana, að dómi margra. Hér á landi hefur GTI-byltingin farið hægt af stað en þó er kominn fjöldi slikra bila á göturnar hér á landi, bílar eins og Suzuki Swift GTI, Corolla GTI og Peugeot 205, svo einhverjir séu nefndir. Á myndinni er nýjasta útgáfan af Golf GTI. þetta er gert til að gefa ökumannin- um meiri þægindi í akstri. Umdeildir vegna öryggis Mikið hefur verið rætt og ritað um GTI-bíla í nágrannalöndum okkar. í Noregi hefur þessi umræða orðið býsna hávær, í kjölfar fjölda um- ferðarslysa, þar sem slíkir bílar áttu hlut að máli. Rætt hefur verið um hærra aldurstakmark þeirra sem fái aö aka þessum kraftmiklu bílum og eins hafa sum tryggingafélög neitað að taka slíka bíla í tryggingu. Margir hafa talið það óforsvaranlegt að leyfa unglingum akstur á þessum litTu kraftmiklu bílum með óþijötandi hestöfl undir húddinu. Um þetta er það að segja aö GTI- bíllinn er yfirleitt hannaður til þess frá upphafi að vera fjölskyldusport- bíll, bíll sem þolir mikinn hraða og mikið álag, án þess að slakað sé á á nokkru sviði. Hvað fjölskyldubílinn varðar er hann samansafn málamiðlunar. Hann á að vera eins þægilegur og hægt er, og það þýðir að ef bíllinn er skoðaður ofan í kjölinn er hann ætlaður til aksturs um venjulegar götur og þolir ekki sama álag og GTl-bíllinn. Hins vegar á GTI-bíllinn að vera búinn betri aksturseiginleik- um en venjulegur fjölskyldubíll. Við hönnun fjölskyldubílsins hefur veriö tekið tilÚt til fjölmargra óska og málamiðlana. Þetta þýðir að bíll- inn stendur sig ekki vel gagnvart hliðarvindi og áhrifum frá vegyfir- borði. Slíkt þýðir verri aksturseigin- leika en á fjölskyldubílnum á góðum vegi með bundnu slitlagi. Byggt á BT Bilen QDýRT Boddívarahlutir Driföxlar - Drifliöir Vatnskassar-Bílrúöur BÍLLINN Skeifunni 5 S 688510 Rýmingarsala á bílum Vegna endurnýjunar á bílakosti sínum býður BÍLALEIGA ARNARFLUGS til sölu alla bíla sína ELDRI EN ÁRGERÐ 1988. Um er að ræða 1987 árgerðir af Fiat Uno, Volkswagen Golf, Chevrolet Monza, Lada Sport og Bronco II, einnig nokkra bíla af gerðinni Lada Sport 1988, fjögurra og fimm gíra. Bílarnir verða til sýnis við Arnarflug innanlands hf. á Reykjavíkurflugvelli laugardaginn 3. og sunnudaginn 4. sept. Þeir eru eknir 25.000-35.000 kílómetra, vel við haldið og í góðu lagi. Lada Sport 1988 eru eknir 8.000-14.000 kílómetra. Frá mánudeginum verða bílarnir svo til sýnis og sölu hjá Bílasölunni Blik í Skeifunni 8. Símar: 686477 og 686642. Verð og greiöslulcjör við allra hæfi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.