Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 2
Nafn: Rakel Friðriksdóttir Heimili: Böggvisbraut 9, 620 Dalvík Aldur: 11 ára Besti matur og drykkur: Píta, pizza Og kók Uppáhalds-popparar: Michael Jackson, Madonna og Whitney Houston Besta hljómsveit: Bros og A-ha Áhugamál: Hjólaskautar, skíði og pennavinir Fallegustu litir: Blár og hvítur Bestu vinkonur: Stína, Birna, Magga, Alla og Karen Systkini: Þóra Hlín og Kolbeinn Draumaprins: Hann er með gráblá augu og hann er dá- lítið lágvaxinn. Hann er einu ári eldri en ég og æðislega góöur í fótbolta. Hann er alveg sjúklega sætur! ..........................Nafn: Dagbjört Hjartardóttir Heimili: Snæfellsás 13, 360 Hellissandi Skóli: Grunnskólinn og ég er í 4. bekk Besti matur og drykkur: Kjúklingur og annar grillmat- ur, Mix, kók og ananassafi Besti vinur: Erla Lind Þórisdóttir Áhugamál: Sund, leikfimi, strákar og dýr Óskaprins: Hann er skolhærður, bláeygur, hæfilega mjór og mjög sætur Halló, kæra BARNA-DV! Okkur langar að senda tvær vísur: Óskar er lítill, svolítið stór. Óskar er sætur strákur. Svolítiö feitur, en þrekinn þó, sterkir og góðir fætur. Mundu lottó, vetur. Vindur blástur setur. Kannski þú litla tetur, taktu stigin betur. P.S. Bestu þakkir fyrir gott blað. Þórður Guðsteinn og Óskar Laxdal Péturssynir, Há- holti 33, Akranesi Kæra BARNA-DV! Fá allir þeir sem senda mynd í ljósmyndasamkeppnina verðlaun? Getur þú lesið úr skriftinni? Bless, bless og takk fyrir gott blað. Hólmfríður Ása Guðmundsdóttir Borgarvík 2, Borgarnesi. Kæra Hólmfríður! Bestu þakkir fyrir bréfið. Það færi aðeins einn verðlaun í hverri ljósmyndakeppni. Vinningshafmn er sá er fær flest stig frá lesendum. Nafn vinningshafa er ávallt birt með nöfnum vinningshafa fyrir þrautirnar. Eftir skriftinni að dæma ert þú traustur og áreiðanlegur persónuleiki. Þér á eftir að vegna vel í framtíðinni sem hingað til. Þér gengur vel í skóla. Aldurinn er um ferm- ingu. Bestu kveðjur! BARNA-DV 5 y K A D E G 1 K fi F J A B L N E 0 R s D T U A K 1 T S U L G E R H S P V X P D y Æ Ö A P K F y B D E K F 1 6 1 H 1 N N E P 1 A Ö j K F Ö L M R y D N E 0 y Ö y T P R B S L T U V A X N P y K Ö B A F É R B A D N A L D B A S H 1 j L N K L M T N L 0 P S D R M T K U 'O Y X y P A Æ Ö A i B D y F E S <3 K H 1 J TT S L M N 0 P T R S T N u S V X y B~ K A K S L P A T S R E K l u R G u A •Ð J Ö H M A D A G H ELSKU AMMA! Elsku amma! Ég er hérna ein að deyja úr ást. Strákurinn þekkir mig en ég veit ekki hvort hann veit að ég er hrifin af honum. Ég kynntist honum í sumar úti í löndum og hann kemur bráðum heim. Ég græt oft þegar ég hugsa um hann því ég er svo hrifm af honum. Ég er að reyna að hætta að hugsa um hann en ég get það ekki. Hann á heima í Reykjavík en ekki ég. Ég held samt að hann hafi verið hrifmn af mér. Hvað á ég að gera? Ég er svo hrifin af honum. Ein ástfangin í vanda Kæra „í vanda“! Þegar þetta birtist geri ég ráð fyrir að pilturinn sé kominn til landsins. Ef þú ert enn svona hrifm af honum skaltu einfaldlega hringja til hans og spyrja hvernig hann hafi þaö og hvernig gengið hafi í útlöndum frá því að þú fórst. Þú heyrir nokk á piltinum hvort hann verður glaður að heyra í þér og ef svo er getur þú stungið upp á því að þið skrifist á í vetur. Vitir þú hins vegar ekki símanúmerið hjá honum getur þú haft þetta öfugt og byrjað á að skrifa til hans og spjalla svo við hann í síma þegar hann hefur gefið þér upp símanúmerið. Með von um farsæla lausn! Þín AMMA 6 villur »85* d? Geturðu fundið 6 atriði sem ekki eru eins á báðum myndunum? Sendið lausnina til: BARNA-DV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.