Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1988, Blaðsíða 6
30
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988.
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir
Prinsinn
Einu sinni var lítið kóngsríki
langt, langt í burtu. Þar átti heima
myndarlegur prins sem hafði þjóna
til að gera allt fyrir sig. Prinsinn
ákvað að hann vúdi prinsessu sem
Háskólabíó
kemur til
elskaði hann. Hann fór því langa
ferð yfir land og sjó til Ameríku
þar sem ævintýrið endar og sagan
okkar byijar...
Prinsinn er nefnilega enginn
Ameríku
annar en Eddie Murphy sem kem-
ur til New York í leit að prinsess-
unni sinni. Fljótlega laðast Akeem
prins að öllu því sem New York
býður upp á, næturklúbbum,
körfuboltaleikjum og ekki síst
hamborgurum og öðrum mat sem
vinsæll er í Ameríku.
Prinsinn finnur sína prinsessu.
Hún er sjálfstæö stúlka sem að Iök-
um fellur fyrir prinsinum.
Prinsinn kemur til Ameríku.
(Coming to America) er vinsælasta
kvikmyndin vestanhafs það sem af
er árinu. Og enn einu sinni hefur
Eddie Murphy slegið í gegn. Hann
fer á kostum í myndinni, bæði í
hlutverk prinsins og svo.í öðrum
smærri hlutverkum sem hann leik-
ur.
-HK
í Nico.
Nico er spennumynd þar sem aðal-
hlutverkið leikur Steven Seagal
sem er meistari í sjálfsvarnar-
íþróttum Austurlanda. Hér er hann
Nico Toscani sem fyrir fimmtán
árum starfaði fyrir CIA í Víetnam
og fær enn martraðir þótt hann
reyni að gleyma því sem þar gerð-
ist. Hann er lögregla og hefur orðið
að þjóðsögn i því starfi. Hann er
einnig giftur og á einn son.
Kvöld eitt hringir fyrrverandi fé-
lagi hans frá Víetnam og segir hon-
um að hann sé í mikilli hættu og
ráðleggur honum að fara með fjöl-
skyldu sína út úr borginni. Þar með
byrjar barátta upp á líf og dauða
við persónu sem hefur ásótt hann
í martröðum í fimmtán ár.
-HK
Eddie Murphy slær enn einu sinni í gegn í Prinsinn kemur til Ameriku.
Hvaö bjóöa kvikinyndahúsin upp á uin helgina?
Háskólabíó
PRINSINN KEMUR TIL AMERÍKU
- sjá umsögn annars staðar á síðunni.
Bíóhöllin
NICO
- sjá umsögn annars staðar á síðunni.
ÖKUSKÍRTEINIÐ
í annað skiptið á stuttum tíma leika táningarnir Corey Haim
og Corey Feldman saman 1 kvikmynd. í fyrra var það Lost Boys.
Nú er það Ökuskírteinið (Licence to Drive). Þeir leika tvo létta
stráka sem þrá það eitt af fá ökuskírteini svo að þeir geti húkk-
að stelpur. Þeir hafa sérstaklega eina stúlku í huga - ríka stúlku
sem litur ekki við strákum nema þeir eigi bíl. Þetta er létt gaman-
mynd sem aðallega er fyrir unglingana.
GÓÐAN DAGINN, VÍETNAM
Robin Williams hefur ekki verið heppinn með kvikmyndir hing-
að til. Enginn efast um mikla hæfúeika hans sem gamanleikara
en hann hefur verið frekar óheppinn með val á verkefnum þang-
að til nú. í Góðan daginn, Víetnam slær hann í gegn svo um
munar í hlutverki útvarpsmannsins Adrians Cronauer sem
hefur ofan af fyrir hermönnum í Víetnam þegar stríðið stendur
sem hæst árið 1965.
AÐ DUGA EÐA DREPAST
Að duga eða drepast (Stand and Deliver) er byggð á raunveruleg-
um atburðum þegar Jamie Escalante stærðfræðikennara tókst
það sem aðeins sést í kvikmyndum, að útskrifa með sæmd fyrir-
fram vonlausa nemendur í lélegum skóla. Skólinn var þekktur
fyrir eiturlyijanotkun og aíbrot og þótti afrek kennarans slíkt
að leikstjórinn, Ramon Menendez, ákvað að gera kvikmynd um
atburð þennan.
FOXTROT
- sjá Bíóborgin
BEETLEJUICE
Michael Keaton leikur aðalhlutverkið í þessari makalausu grín-
mynd sem fjallar að mestu um drauga, góða sem vonda, og við-
skipti þeirra við lifandi fólk. Titilpersónan, Beetlejuice, er feng-
in til að fæla fólk úr húsi sem ung, nýlátin hjón tileinka sér.
UNDRAHUNDURINN BENJI
Myndimar um hundinn Benji voru mjög vinsælar fyrir nokkr-
um árum. Nú hefur verið tekinn upp þráöurinn í The Hunted
en svo nefnist myndin á frummálinu. Það sem er ólíkt með
nýju myndinni og þeim eldri er að Benji fær mun meira að njóta
sín hér. Áður voru leikarar með stærri hlutverk. Ljúf kvikmynd
fyrir yngstu kynslóðina.
Bíóborgin
D.O.A.
Dimma óveðursnótt staulast maður inn á lögreglustöð og segir
varöstjóranum að hann ætli að tilkynna morð. Þegar varðstjór-
inn spyr hver hafi verið myrtur svarar háskólaprófessorinn
Comell (Dennis Quaid): „Ég.“ Þetta er upphafið að spennandi
sakamálamynd sem er endurgerð eldri myndar. Söguþráöurinn
er skemmtilegur og leikur góður.
FOXTROT
Þá hefur fyrsta íslenska kvikmyndin á þessu ári verið frum-
sýnd. Er það spennumyndin Foxtrot sem lengi hefur verið beð-
ið eftir. Myndin fjallar um tvo bræður sem taka að sér að fara
með peningasendingu úr Reykjavík norður í land. Ekki gengur
sú ferð átakalaust. Lenda þeir bræður í miklum raunum sem
enda með harmleik. Foxtrot er ágæt afþreyingarmynd, atburöa-
rásin hröð og spennandi. Leikstjóri er Jón Tryggvason. Kvik-
myndatöku annaðist Karl Óskarsson. í aðalhlutverkum eru
Valdimar Öm Flygenring, Steinarr Ólafsson og María Ellingsen.
ÖRVÆNTING
Eftir hina misheppnuðu sjóræningjamynd sína, Pirates, er Ro-
man Polanski kominn á góða ferð í nýjustu kvikmynd sinni,
Örvæntingu (Frantic), sem er hörkuspennandi og dularfull saka-
málamynd er gerist í París. Harrison Ford leikur Richard Walk-
er, bandarískan lækni sem verður fyrir óvæntri lífsreynslu þeg-
ar hann er í París ásamt eiginkonu sinni. Á óskiljanlegan hátt
hverfur hún. Örvæntingarfull leit hans leiðir hann inn í undir-
heima Parísar þar sem hann hittir unga og fagra stúlku sem
kann að vera lykillinn að hvarfi eiginkonu hans. Örvænting
bætist við þann hóp mynda Polanskis sem teljast með hans betri.
RAMBO III
Sylvester Stallone fer í þriðju myndinni um fyrrverandi Víet-
namhermanninn John Rambo til Afganistan í leit að yfirmanni
sínum og vini sem Rússar hafa tekið höndum. Eins og við er
að búast lendir Rambo í miklum og blóðugum átökum. Rambo
ni, sem er ein dýrasta kvikmynd sem gerð hefur verið, svíkur
engan sem á annað borð vill hafa spennumyndimar dálítið
krassandi.
Laugarásbíó
UPPGJÖRIÐ
Uppgjörið (Shakedown) er byggð á sönnum atburðum og fjallar
um tvo menn, lögfræðing og lögreglumann, sem lenda í vef
morða og spillingar. Peter Weller leikur lögfræðinginn Roland
Dalton og Sam Elliott leikur lögreglumanninn Ritchie Marks.
Saman reyna þeir að leysa mál þar sem koma við sögu eitur-
lyfjasali og lögreglumaður. Peter Weller og Sam Elliott eru báð-
ir þekktir spennumyndaleikarar. Weller varð frægur fyrir leik
sinn í titilhlutverkinu í Robocop og Sam Elliott á að baki langan
feril í stórkarlahlutverkum.
ÞJÁLFUN í BILOXI
Þjálfun í Biloxi (Biloxi Blues) er nýjasta kvikmynd hins þekkta
leikstjóra Mikes Nichols. Biloxi Blues er gerð eftir leikriti Neils
Simon og byggist að hluta til á atburðum í lífi hans. Fjallar
myndin um Eugene Jerome (Matthew Broderick) sem býr í
Brooklyn og gerist myndin árið 1943. Lýsir hún á gamansaman
hátt þjálfun hans í herskóla og ævintýrum sem hann og félagar
hans lenda í.
VITNI AÐ MORÐI
Aðalsöguhetjan í Vitni að morði (Lady in White) er ungur dreng-
ur sem Lucas Haas leikur. Hann hefur gaman af að segja drauga-
sögur og hræða bekkjarfélaga sína sem mest. Einnig tekst hon-
um að hræða kennarana. Gamanið gránar þegar hann lokast
inni á öskudaginn. Þá fær hann að kynnast því sjálfur hvaö það
er að vera hræddur.
UPPGJÖRIÐ
Það er ekki oft sem nýjar franskar kvikmyndir rata í kvik-
myndahúsin hér á landi. Örlög og ástríður (Les nouveaux tric-
heurs) er samt ein slík og fjallar hún um unglinga á aldrinum
16 til 19 ára. Tekið er á vandamálum þeirra af raunsæi. Myndin
er spennandi, enda lifa unglingamir sem fjallað er um hratt og
myndin þakin augnablikum sem aðeins hinir ungu geta notið
eða tárast yfir.
SÉR GREFUR GRÖF...
Sér grefur gröf... (Backfire) er sakamálamynd þar sem þrjár
persónur, tveir karlmenn og ein kona, leika sér að eldinum:
eiginmaður í hjólastól, ótrú eiginkona sem ekki þolir eiginmann
sinn og elskhugi eiginkonunnar sem er flækingur í leit að auðæf-
um. Peningarnir eru fyrir hendi en til að nálgast þá verður að
drepa.
LEIÐSÖGUMAÐURINN
Þessi norska kvikmynd, sem gerist á Samaslóðum í Norður-
Noregi, hefur hvarvetna hlotið einróma lof og var tilnefnd til
óskarsverðlauna. Ekki skemmir það að einn aðalleikarinn er
Helgi Skúlason. Það verður enginn, sem ann góðum kvikmynd-
um, svikinn af Leiðsögumanninum.
HÚNÁVONÁBARNI
Hún á von á barni (She’s Having a Baby) er nýjasta kvikmyiid
Johns Hughes en hann hefur náð ótrúlegum árangri í gerð kvik-
mynda sem beint er til ungu kynslóðarinnar. Hann leikstýrir,
framleiðir og skrifar handrit sjálfur. Kevin Bacon, sem áhorf-
endur ættu að muna eftir úr Footloose, leikur ungan mann sem
er dauðhræddur við hjónabandið og ábyrgðina sem því fylgir.
Hann leggur þó í hjónabandið enda hrifinn af unnustu sinni.
Að sjálfsögðu, eins og í sannri gamanmynd, gengur hann í gegn-
um allar sínar martraðir.
KLÍKURNAR
í Klíkunum sýnir Dennis Hooper að hann hefur engu gleymt.
Myndin fjallar um götuflokka sem sýna enga miskunn og tvo
lö'gregluþjóna sem reyna að koma á lögum og reglu á götunum.
Hooper hefur að vísu verið gagnrýndur fyrir að gera þessum
óaldarflokkum of hátt undir höfði og þar með kynda undir bar-
dögum á götum borgarinnar. Satt er það að nokkur ólæti brut-
ust út þegar myndin var frumsýnd í stærstu borgum vestan-
hafs. Þrátt fyrir þetta þykir Dennis Hooper hafa gert kröftuga
spennumynd. sem flestir gagnrýnendur hafa hælt.
KRÓKÓDÍLA-DUNDEE H
Paul Hogan er kominn aftur í hlutverki Michaels Dundee, öðru
nafni Krókódíla-Dundee. Þessi sjarmerandi hetja, sem heillaði
alla í fyrra, lendir í nýjum ævintýrum þar sem hann þarf að
hverfa aftur á heimaslóðir í Ástralíu. Linda Kozlowski leikur
sama hlutverk og áður og leikstjóri er sá sami, John Cornell.
Hinn létti húmor og ævintýrablærinn, sem einkenndu fyrri
myndina, eru hér. Sem sagt, góð skemmtun.
Þá má geta þess að allar helgar er gott úrval bamamynda í
Regnboganum.
Stjörnubíó
VORT FÖÐURLAND
Michael Cacoyannis er sjálfsagt frægastur fyrir að hafa leik-
stýrt Grikkjanum Zorba, mynd sem öllum er ógleymanleg sem
hana hafa séð. Vort fóðurland (Sweet Country) er nýjasta kvik-
mynd hans. Fjallar hún um þrjár fjölskyldur á valdaránstímum
í Suður-Ameríku. Aðalhlutverkin leika Jane Alexander, John
Cullum, Franco Nero og Irena Papas en hún hefur oft leikið
undir stjóm Cacoyannis, meðal annars í Zorba.
SJÖUNDA INNSIGLIÐ
í Sjöunda innsiglinu (The Seventh Sign) leikur Demi Moore
Abby Quinn, ófríska konu sem veit að hörmungar, sem dynja
yfir mannsbyggðina, tengjast henni að einhverju leyti. Dauða
fiska rekur á land við strönd Haiti, ísraelskt smáþorp leggst í
eyði vegna frosthörku og árvatn í Nicargua verður að blóði...
Hvemig það tengist henni veit hún ekki en það ætti að koma í
ljós í lokin.
VON OG VEGSEMD
í Von og vegsemd (Hope and Glory), sem var ein fimm mynda
sem tilnefndar vom í vor til óskarsverðlauna sem besta mynd-
in, segir leikstjórinn, John Boorman, frá æskudögum sínum í
stríðshrjáðu landi. Þykir honum hafa tekist vel að lýsa mann-
legu hliðinni á stríðinu. Myndin fjallar um Bill Rohan, níu ára
dreng, sem sá heimsstyrjöldina öðmm augum en flestir aðrir.
Honum fannst nefnilega skemmtilegt að lifa á stríðstímum.
Skólinn var lokaöur. Á nóttunni lýstu flugeldar upp himininn.
Hann þurfti sjaldan að fara snemma að sofa og í raun hafði
enginn tíma til að ala hann upp.