Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1988, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1988, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 1988. Landslið íslands í opnum flokki sem spilar á ólympíuleikunum á Ítalíu, frá vinstri, örn Arnþórsson, Hjalti Elíasson fyrirliði, Karl Sigurhjartarson, Jón Baldursson, Valur Sigurðsson, Sigmundur Stefánsson fararstjóri, Guðlaugur R. Jóhannsson og Sævar Þorbjörnsson. DV-myndir GVA / IS Aframhaldandi velgengni íslenska bridgeliðsins? Nú þegar ólympíuleikunum í Seoul er nýlokið taka aðrir ólymp- íuleikar við í Feneyjum. Þar safn- ast saman hundruð spilara sem ætla að etja kappi saman, og íslend- ingar eru þar méðal þátttökuþjóð- anna, bæöi í opnum flokki og kvennaflokki. í hvoru liði -eru 6 spilarar sem æft hafa stift undan- fama mánuði. Eru framfarirnar raunveru- legar? Bridgeíþróttin virðist vera í upp- sveiflu hér á landi og til marks um það má geta' þess að landsliðið í opnum flokKi hefur náö mjög góð- um árangri á tveimur síöustu al- þjóöamótum. Á Evrópumótinu í Brighton árið 1987 hafnaði lands- liöiö í opnum flokki í 4.-5. sæti af 23 þátttökuþjóðum, og nú í sumar varð landsliöið í opna flokknum Norðurlandameistarar, og skaut landslið íslen'dinga þar meðal ann- ars Evrópumeisturum Svía aftur fyrir sig. Þessi góði árangur er eiginlega betri en bjartsýnustu menn þorðu að voha, og því vaknar sú spurning hvort íslenska landsliöið sé í raun- inni oröiö svona framariega í al- þjóðabridge og hvort framfarirnar séu raunverulegar. DV leitaði svara við þeirri spurningu hjá þremur mönnum, landshðsspilur- unum Jóni Baldurssyni og Emi Arnþórssyni og hjá Hjalta Elías- syni, landsliösþjálfara í bridge: Jón Baldursson: „Viö erum kannski ekki eins góöir og úrslitin á EM og NM gefa til kynna, en að mínu áliti hafa oröiö framfarir hér á síöustu 6-8 árum. Menn leggja á sig meiri tíma nú en áöur, sam- keppnin hefur aukist og breiddin er meiri. Hjalti Elíasson hefur síð- an náö að reka endahnútinn á þetta,“ sagði Jón. Óm Amþórsson: „Ég held að ís- lenskir bridgespilarar séu ekkert betri nú en fyrir nokkrum árum síðan, þessi góöi árangur er að mínu áhti vegna þess aö betur hef- ur verið staöið aö undirbúningi, æflngum og framkvæmd okkar manna á mótsstaö. Framfarirnar í islenskum bridge eru þó vonandi einhveijar, fjöldi góðra spilara hef- ur aukist. Auk þess er mUcil gróska í bridgelífinu og fleiri um hituna í mótum nú en áður,“ var álit Arnar á stöðunni. Hjalti Elíasson sagði að framfar- irnar væru vissulega raunveruleg- ar. „SpUamennskan er ekki endi- lega þetri, heldur hefur tekist aö bæta árangurinn með betri undir- búningi. Færri stööur eru óræddar í bridge nú en áður, félagslegur og sálrænn undirbúningur er betri, og það hefur ekki lítið að segja. Stöðugt þarf aö vinna aö samstööu í landsliðshópnum, einbeitingu og inum. TU þess aö það verði er ljóst að nokkur stórveldi í bridge verða fyrir neðan okkur. Viö höfum aftur á móti sett markið á að vera meðal tíu bestu þjóða á ÓL1992. Árangur- inn á síðustu tveimur mótum er eíginlega betri en viö þorðum að vona, og því ekki óeðlUegt þó við lækkum flugiö eitthvað," var álit Hjalta. Jón Baldursson sagði að draumurinn hlyti að veröa á meðal efstu þjóða í riðlinum og taka þátt í 8-liöa úrslitum, en sá draumur væri vissulega ijarlægur. stæöi í þessu. Þess má geta að 3 konur landsliðsmannanna í opnum flokki spila saman í spilaklúbbi heima fyrir, og er því áhugi fyr- ir hendi hjá- ijölskyldum spUar- anna. Hjalti landsliðsþjálfari, sem starf- að hefur að þessum málum í tugi ára, hefur reynsluna. „Það er alveg ljóst aö fjölskyldan sem slík verður að vera með í þessu meö jákvæðu hugarfari til þess að þetta geti geng- iö. Það væri allavega lifsins ómögu- legt fyrir mig ef Guöný M. Páls- Úrn Arnþórsson og Jón Baldursson I liði islands í bridge eru báðir margreyndir landsliðsmenn. Hjalti Elías- son er fyrirliði án spilamennsku, en hann hefur náð góðum árangri með liðið siðustu tvö árin sem landsliðs- þjálfari. sigurvilja. Erfiðasti hjallinn var að ná upp einbeitingu, en þaö hefur að miklu leyti tekist. Gæta veröur- þess þó að aðstaða íslenskra spUara er miklu verri en flestra erlendra, þvi þeir hafa spilamennsku ein- göngu sem áhugamál, á meöan aðr- ir stunda hana sem atvinnu. Þaö getur oft verið erfltt að halda ein- beitingu eftir erfiöan vinnudag," sagöi Hjalti. Hvar stöndum viö? Hvaða væntingar gera menn sér um landslið íslands i bridge, hvaða sæti á ólympíuleikunum væri t.d. viðunandi? Hjalti Eliasson: „Það er mjög viðunandi að vera í miðjum flokki meðal bridgeþjóöa, svo smá- ir sem við erum. Aftur á móti er það ótrúleg staöreynd að ísland hefur á að skipa mjög góöum spil- urum sem gætu þokaö liðinu upp í 20. sæti í heildina (af 57 þátttöku- þjóðum), þ.e.a.s. í 10.-12. sæti í riðl- Mikil vinna fer í undirbúning Æfingar hafa verið tvisvar í viku, frá klukkan 17-22 síðustu mánuði, og auk þess hefur verið spilað þijár heilar helgar á síðustu mánuðum. Til viðbótar er til þess ætlast af spilurum að þeir hitti spilafélaga sína oftsinnis þar á milli til að ræða kerfið sem spilað er. Jón Baldurs- son hefur haldið bókhald yfir þann tíma sem fer í bridge hjá honum aö jafnaöi á mánuði hveijum, og réiknast honum til að það hafi ver- ið um 78 klst á mánuði frá áramót- um. Hinir spilararnir eyða senni- lega svipuðum tíma og jafngildir þetta um 50% vinnu. Hjalti, Jón og Öm voru allir sam- mála um að þetta væri fyrirhafnar- innar viröi þrátt fyrir allt, en þetta væri ekki mögulegt nema þess hve aðrir fjölskyldumeðlimir væru já- kvæðir gagnvart fyrirbærinu. Jón Baldursson taldi þó að það hlyti að vera erfitt að vera gift manni sem dóttir, kona mín, hefði ekki veriö' stoð mín og stytta í þessu efni í gegnum tíöina. En þaö hefur veriö talsverður áhugi á bridge á mínu heimili, tveir af sonum mínum, Páll og Eiríkur, hafa verið í ungl- ingalandsliði íslands í bridge." Allir spilararnir í íslenska lands- liðinu eru orðnir nokkuö leik- reyndir, og hafa áður spilað í ís- lenska landsliðinu. Örn Amþórs- son hóf að spila með félaga sínum, Guðlaugi R. Jóhannssyni, árið 1972, og þeir spiluðu fyrst í landsliðinu árið 1974. Þeir eru að spila í níunda sinn í landsliöi íslendinga í bridge í keppninni sem framundan er. Jón Baldursson var fyrst í landsliðinu árið 1975, og er nú í 10. sinn í lands- liöi íslands. Hjalti lándsliðsþjálfari er þeirra leikreyndastur, en spilar þó ekki á mótinu nú. Hann var fyrst í landsliöinu á ólympíuleikunum áriö 1960, og hefur alls 14 sinnum verið í landsliði íslands í bridge, og tvisvar að auki sem landsliðs- þjálfari. Mikið álag á spilurum Spilamennska í svona móti er ekkert grín, og þarf mikið úthald. Menn fara á fætur klukkan 9 á morgnana og undirbúa sig undir fyrsta leikinn af þremur (20 spila leikir) sem hefst klukkan 11. Má segja að menn séu síöan stöðugt viö græna boröið fram til klukkan 23.30 þegar síðasta leiknum af þremur lýkur, en þá gefst loks örlít- ill tími tii að funda um árangurinn og skipuleggja næstu skref. Menn komast í svefn um klukkan 1 eftir miðnætti. Þannig gengur þetta fyr- ir sig í hálfan mánuö og reynir því mikið á þrek og úthald manna. Sterkustu þjóðir utan Evrópu Þjóöum á ólympíumótinu á Ítalíu er skipt niöur í tvo riðla í opna flokknum, en þijá í kvennaflokkn- um. í opna flokknum eru 57 þátt- tökuþjóðir. Landslið íslands í opna flokknum er skipað þeim Guðlaugi R. Jóhannssyni, Erni Arnþórssyni, Karli Sigurhjartarsyni, Sævari Þorbjörnssyni, Jóni Baldurssyni og Val Sigurðssyni. Landsliösþjálfari er Hjalti Elíasson. Kvennalandslið- ið er þannig skipað: Esther Jakobs- dóttir, Valgerður Krsitjónsdóttir, Kristjana Steingrímsdóttir, Erla Sigurjónsdóttir, Anna Þóra Jóns- dóttir og Hjördís Eyþórsdóttir. Þjálfari þeirra er Jakob R. Möller. Vegna þess góöa árangurs sem landsliðið í opna flokknum náði á EM í Brighton 1987, er forvitnilegt að sjá hvaða sterku þjóöir bætast í hóp þátttakenda á ólympíuleikun- um nú. Þar ber fyrsta að nefna Bandaríkjamenn, núverandi heimsmeistara. Síöan er talsverður fjöldi sterkra þjóöa eins og Brasilía, Taiwan, Pakistan, Indónesía, Kanada, Kina, Indland, Ástralía og Thailand. Af Evrópuþjóðunum eru Svíar, Pólverjar, Bretar, Austur- ríkismenn, Frakkar Danir, ítalir og Norðmenn allir stórveldi í bridge. Það verður því efiður róð- urinn hjá íslensku landshðsmönn- unum í bridge dagana sem mótið fer fram. Mótið hófst í gær, sunnu- dagog því lýkur 23. þessa mánaðar. ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.