Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1988, Blaðsíða 2
34 LAUGARDAGUR 12. NÖVEMBER 1988. {jjm Brandarar K.F.U.M. fundinum var ljúka og leiðbeinandinn spurði strákana hvort þeir vildu ekki fara upp til himna. Strákarnir réttu allir upp hendurnar nema Jonni litli. - Hvers vegna vilt þú ekki fara upp til himna? spurði leiðbeinandinn undrandi. , - Vegna þess að mamma sagði að ég ætti að koma beint heim eftir fundinn! Gömul kona á ísafirði var að leggja ungum sonarsyni sín- um lífsreglurnar: - Þú átt aldrei að trúa nema helmingnum af því sem þú heyrir, Jón minn. - En hvorum helmingnum? spurði sá stutti! Berglind Óladóttir Birkihlíð 31, Sauðárkróki Einu sinni var þjófur inni í búð sem var útsala í. Svo kom hann að kassanum og þar stóð: Útsöluvörum er hvorki hægt að skila né skipta. Svo stal þjófurinn peysu og læddist út. Eftir svolitla stund kom lögreglan og náði í þjófmn: - Skilaðu peys- unni, sagði lögregluþjóninn. Þá sagði þjófurinn: - Útsöluvörum er hvorki hægt að skila né skipta! , . T1. .. , Pury Bjork 10 villur Geturðu fundið 10 atriði sem ekki eru eins á báðum myndum? Sendið lausn til: Barna-DV. KRAKKARI NAFN: Elísabet Halldórsdóttir HEIMILI: Kambahraun 38, Hveragerði BESTA DÝR: Páfagaukur FÆDD: 7. febrúar 1978 TÓMSTUNDAGAMAN: Lestur og dýr SKÓLI: Hveragerðisskóli BESTU VINKONUR: Gunnhildur Ásta BESTA HLJÓMSVEIT: B-Sveit FALLEGUSTU LITIR: Blár og gulur NAFN: Ólafía Guðbjörg Gústafsdóttir HEIMILI: Austurbraut 8, Hornafirði FÆDD: 5. janúar 1978 BESTU VINIR: Rebekka, Erla og Vala BESTI MATUR OG DRYKKUR: Rjúpur, önd, jólaöl og vatn FALLEGUSTU LITIT: Svartur og hvítur DRAUMAPRINS: Ljóshærður, æðislega sætur og er með áhuga á fótbolta T E R G R A M A V E Ö A A G G B P D Ð K S D E B É T L ö' u h R G H U R Ö 1 N '1 R A A D -Ð J N 0 P S ö R K L U 0' y M R R G A 0 B A J a L '1 A M P N R Ú A J ) S L B N T U V Ð Ð X J N y T L X V Ö P Æ N Ö' A 3 U D A M s Ð G K K S A P R A H E G R É 1 A R F A G R U D L 1 H N F A R H Ö' R R L M H 1 J K A S Ö R K N J 0 E T Ö P G 6 ö D R S T J U B ú N V X H y 7 P A A 3 K R 1 5 T 'l N D F G A í þessari stafasúpu er búið að fela nöfn allra vinningshafa sem eru á öftustu síðu Barna-DV. Nöfnin eru ýmist falin lóðrétt, lárétt, á ská, aftur á bak eða áfram. Sendið lausnina til: Barna-DV. ELSKU AMMA! Elsku amma! Ég er hrifin af strák en hann er með annarri á föstu (ég er samt ekki alveg viss). En hann er líka hrifinn af mér. Samt er hann hka með hinni á fóstu. í tíma horfir hann allt- af á mig og ég fer svo hjá mér. í frímínútunum reynir hann alltaf að ná mér og kyssa mig. Ég er hrifin af honum og ég get ekki hætt að hugsa um hann. En hvað á ég að gera? Ein ekki viss P.S. Hvað er ég gömul? Ég giska á að þú sért 13 ára. Þú segist ekki geta hætt að hugsa um strákinn og það er allt í lagi. En þú skalt ekki láta hann vera að kyssa þig og klappa ef hann gerir það líka við hina stelpuna og er með henni á fostu. Það ætti að vera auðvelt fyrir þig að ná tali af pilti þar sem hann er alltaf að elta þig. Næst þegar hann er að því skaltu tala alvar- lega við hann og segja honum að láta þig alveg í friði því þú vitir að hann sé með hinni stelpunni. Þá -verður hann að gera það upp við sig hvora hann velur. Þú skalt ekki láta bjóða þér að vera einhver varaskeifa - vertu ákveðin og stolt. Þín amma Kæra amma! Ég þarf að spyrja þig ráða. Ég er svo bálskotin í strák sem ég hitti á skátanámskeiði. Hann er sætur og skemmtilegur og allt en vandamálið er að hann býr á Akureyri en ég úti á landi. Ég veit ekki heimilisfangið hans svo ég get ekki skrifað honum en ég hugsa ekki um annað en hann þó það séu tvær vikur liðnar síðan ég hitti hann. Hvað á ég að gera? Ein að deyja úr ást Þú hlýtur að vita nafnið á piltinum og því getur þú skrifað eða hringt til þeirra sem héldu námskeiðið og beðið um heimilisfang stráksins. Hann hlýtur að vera skráður á námskeið- ið. Síðan skaltu bara skrifa honum og segja honum hvernig þér líður. Gangi þér vel! Þín amma Teiknisamkeppni Geturðu teiknað andlit á fólkið? Sendu okkur síðan myndimar og nokkur andlit verða síðan birt í næstu blöðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.