Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1988, Side 7
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER1D88.
Indíánatjöld
Taktu útlínur tjaldsins í gegn á annað blað. Þú getur haft öðruvísi munstur á tjaldinu
og litaðu það vel. Klipptu síðan tjaldið út og límdu það eins og sýnt er á teikningunni.
Þú þarft svo þrjár eldspýtur í stoðir fyrir hvert tjald. Hvernig væri að búa til heilt indí-
ánaþorp? Góða skemmtun!
Besta BARNA-DV!
Fær maður myndimar til baka sem maður sendir í
myndasamkeppni?
Geturðu lesið úr skriftinni? Er ég vinsæl: Hvað er ég
gömul?
B.Ó.
Kæra B.Ó!
Ljósmyndirnar eru sendar til baka. En það getur tekið
nokkurn tíma, svona 2-3 vikur eftir birtingu.
Skriftin segir mér að þú sért athafnasöm og mjög vin-
sæl. Þú átt marga vini og munt eignast enn fleiri. Þú
ert svona 13 eða 14 ára.
Lítið ljóð
Veturinn er kominn
og sumarið er burt.
Samt er sólskin
og alveg þurrt.
Brynhildur, 10 ára,
Reykjavík
39
Kæra BARNA-DV!
Ég á hund sem heitir Hnota Týra Stormsker. Hún er úr
sveit og ég sótti hana á hestbaki. Hvað lestu úr skriftinni
minni? Hvað er ég gömul?
Jóna Guðný
Kæra Jóna!
Líklega ertu 11 ára. Þú ert skapgóð, blíðlynd og dugleg.
En þú mátt vanda skriftina og stafsetninguna betur.
Kæra BARNA-DV!
Mig langar svo að fá heimilisfangið hjá Michael Jackson.
Geturðu útvegað mér það?
Aðdáandi.
Frá BARNA-DV!
Eins og svo oft áður leitum við til lesenda og biðjum þá
sem vita að senda okkur heimilisfangið og þá munum við
þegar birta það.
Besta BARNA-DV!
Ég bíð alltaf spennt á laugardögum þegar blaðið kemur.
Við erum tvær systur sem skiptumst á að leysa þrautirn-
ar og lesa blaðið. En við settum saman þessa vísu:
BARNA-DV er besta blað
og allir vilja lesa það.
Um helgar er alltaf gaman
því þá lesum við BARNA-DV saman.
Helga og Anna, Kópavogi.
Veislan
HVER fær eiginlega HVAÐA rétt?
Sendið lausn til: BARNA-DV.