Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1989, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1989.
17
fa í kvölden þá glima þeir við Hollendinga. Vinni þeir með miklum mun kann svo að
rslitum. Á myndinni fagnar Guðmundur Guðmundsson sigri yfir Pólvérjum á síðasta
lið gegn okkur hin síðustu ár.
iraði og tækni
lar Elnarsson um íslenska landsliðið
á æflngar því Cherwinsky var í annarri
vinnu og mátti ekki þjálfa okkur. Við
fengum aldrei ætan bita í marga daga.
Einu sinni komumst við þó í andarsteik
og það þótti mikil veisla. í dag eru breytt-
ir tímar og strákarnir standa sig frábær-
lega vel,“ sagði Gunnar.
„Vörnin varfrábær
gegn V-Þjóðverjum“
„Leikur íslenska liðsins gegn Vestur-
Þjóðverjum er einhver besti lansleikur
,sem ég man eftir að hafa séð með ís-
lenska landsbðinu. Sérstaklega var
varnarleikurinn góður og vinnslan í
vörninni. Þá varði Einar einnig mjög
vel. Leikurinn gegn Sviss var líka góður
og það fór eins og mig grunaði að síð-
ustu flmm mínúturnar réðu úrslitum.
Þá skipti öllu máli hver einbeitingin yrði
hjá leikmönnum liðanna. Okkar menn
eru greinilega betur þjálfaðir og unnu
sanngjarnan sigur.“
„Allt annar bolti
en fyrirtíu árum“
Hver er að þínu mati munurinn á þeim
handknattleik sem íslenska liðið leikur
í dag eða þegar þú varst upp á þitt besta.
„Það er fyrst og fremst mun meiri
hraði í boltanum núna og leikmenn hafa
yfir miklu meiri tækni að ráða en í minni
tíð. Léttleikinn er hka mun meiri og
menn hafa meira gaman af því sem þeir
eru að gera enda gengur liðinú mun
betur í dag en fyrir tíu árum.“
Sjónvarpiö:
Beint í
Leikur íslendinga og Hollendinga
verður sýndur í beinni útsendingu í
Ríkissjónvarpinu í dag. Hefst útsend-
ing klukkan 17. Það er Bjarni Fel.
sem lýsir leiknum frá Strasbourg.
„Þorgils Óttar hefur
leikið óaðfinnanlega"
Er eitthvað sem vakið hefur sérstaklega
athygh þína hér í Frakklandi.
„Já, get ekki neitað því að sigur Vest-
ur-Þjóðverja gegn Rúmenum kom mér
mjög á óvart en nú vita allir hvernig
stóð á þeim sigri. Þá hefur frammistaða
Þorgils Óttars Mathiesen vakið athygli
mína en hann hefur verið hreint stór-
kostlegur í vörninni og einnig mjög góð-
ur í sókninni. Héðinn Gilsson stóð sig
mjög vel gegn Vestur-Þjóðverjum og mér
fannst það magnaö að strákurinn skyldi
hafa staðið undir því mikla álagi sem á
honum var eftir að búið var að reka
Kristján og Alfreð af leikvelli."
„Við vinnum Frakka
í leik um 3.-4. sætið“
Nú spá menn í gang mála á næstu dögum
B-keppninnar. Hver heldur þú að verði
gangur mála í næstu leikjum?
„Eg spái íslandi sigri gegn Hollandi,
25-18. Ég hef ekki trú á því að Svisslend-
ingar vinni Rúmena og spái því að sá
leikur fari 21-19 fyrir Rúmeníu. Vestur-
Þjóðverjar vinna síðan Búlgari með 25
mörkum gegn 19. Ég held því að íslend-
ingar leiki um 3.^1. sætið í keppninni
gegn Frökkúm og það verður erfiður
leikur gégn Frökkum á heimavelh í Par-
ís. En við ættum samt að vinna með eins
marks mun, 22-21, í hörkuleik," sagði
Gunnar Einarsson.
íþróttir
Knattspymulandsliðið - World Soccer:
íslendingar
eru aftarlega
á merinni
- eru í 31. sæti á afrekalista Evrópu
Samkvæmt röö tímaritsins
virta, World Soccer, er íslenska
knattspymulandsliðið heldur aft-
arlega á merinni með hliösjón af
aírekum ársins 1988.
í kjölfar þess árs, sem ekki var
mjög fengsælt þrátt fyrir tvö ágæt
afrek i Evrópukeppni, faha íslend-
ingar um mörg sæti en þeir vom
í því 20. árið 1987. Nú era íslend-
ingar komnir óþægilega nærri
botninum eða í 31. sæti.
íslendingar léku 7 landsleiki á
síðasta ári samkvæmt töflu World
Soccer, gerðu tvö jafntefli í for-
keppni Evrópumótsms, fyrst gegn
Sovétmönnum i Reykjavík, 1-1, og
síðan gegn Tyrkjum í Miklagarði,
1-1. Islendingar töpuöu hinum
leikjimum 5. Þeir lágu, 2-0, gegn
A-Þjóðverjum í Berlín í forkeppni
Evrópumótsins, 1-0, gegn Dönum
í Kaupmannahöfn í vináttuleik,
3-0, og 0-3 gegn Ungverjum, einnig
í vináttuleikjum sem fóru fram í
Búdapest annars vegar og Reykja-
vík luns vegar, og 2-3 gegn Búlgör-
um í vináttuleik í Reykjavík.
íslendingar skoruðu 4 raörk í
þessum 7 leikjum, fengu á sig 14
og vinningshlutfallið er 14,28 af
hundraði. Frændur okkar Svíar
standa best að vígi í afrekatöflu
Evrópuþjóðanna, þeir spiluðu 11
landsleiki á síðasta ári, unnu 6,
geröu 4 jafntefli og töpuðu aðeins
einum.
Svíar gerðu 19 mörk í þessum
11 leikjum en fengu á sig 8. Vinn-
ingshlutfall hjá sænska landslið-
inu er 72,72 prósent.
Taflan
1 Svíþjóð......11 6 4 1 19-8 72,72%
2 Ítalía.......11 7 2 2 17-7 72,72%
3 V-Þýsk.......11 6 4 1 15-5 72,72%
4 Júgósl....... 9 5 3 1 16-9 72,22%
5 PóUand.......10 6 2 2 18-13 70,00%
6 Tékkósl......11 6 3 2 15-11 68,18%
7 Rúmenia...... 9 5 2 2 19-10 66,66%
8 Frakkl....... 9 4 4 1 12-9 66,66%
9 íriand.......10 5 3 2 13-5 65,00%
10 Holiand.;...ll 6 2 3 14-8 63,63%
11 Sovétr......16 8 4 4 23-16 62,50%
12 Búigaría ........13 6 4 3 23-17 61,53%
13 Belgia...... 6 3 1 2 9-7 58,33%
14 Ungvl.......11 4 4 3 12-14 54,54%
15 GrikkL.......12 5 3 4 15-16 54,16%
16 England.....12 3 6 3 9-11 50,00%
17 Malta......09 3 3 3 11-13 50,00%
18 Tyrkland....05 2 1 2 9-7 50,00%
19 Portúgal....02 1 1 0 1-0 50,00%
20 Skotland.... 8 1 5 2 6-8 43,75%
21 Wales....... 6 2 1 3 8-11 41,66%
22 Fmnland.....11 2 5 4 9-13 40,90%
23 Austurr.....10 3 2 5 14-17 40,00%
24 Sviss....... 9 3 1 5 11-11 38,88%
25 Spánn.......13 3 4 6 15-16 38,46%
26 Danmörk.....12 3 3 6 12-16 37,50%
27 N-írland.... 7 1 3 3 6-9 35,71%
28 A-Þýska!....10 2 3 5 11-16 35,00%
29 Noregur..... 8 1 3 4 9-10 31,25%
30 Kýpur ...... 5 0 2 3 2-10 20,00%
31 ísland.... 7 0 2 5 4-14 14,28%
32 Albanía
........... 4 0 13 1-6 12,50%
33 Lúx.... 4 0 0 4 1-10 00,00%
Tvö Evrópulönd, Liechtenstein og
San Marino, léku ekki landsleiki
á síðasta ári en eru samt á lista
World Soccer, í 34. og 35. sæti.
JÖG
íslendingar
spá í spilin
United
áfram
Manchester United sigraði
Boumemouth, 1-0, í ensku bikar-
keppninni í knattspymu á Old
Trafford í gærkvöldi. United leik-
ur því gegn Nottmgham Forest í
átta hða úrshtum keppninnar,
-JKS
Danir
lágu á
Tveir vináttulandsleikir fóra
fram í knattspyrnu í gærkvöldi.
ítaha vann Danmörk í Pisa, 1-0.
Fyrirhöi ítala, Bergomi, skoraði
eina mark letkins sem þótti harð-
ur. Jan Mölby þótti leika best
Dana í leiknum en hann lék sinn
fyrsta leik meö danska höinu í
flmm mánuöi.
Þá sigruöu Grikkir Norömenn,
4-2, i Aþenu. Rune Braseth og
Jöran Sörloth skoruðu mörk
Norðmanna í leiknum.
-.IKS
1, deild kvenna:
Fram sigraði Hauka, 20-17, í 1.
deild kvenna i handknattleik í
gærkvðldi.
Á sama tima tapaði Valur fyrir
Stjömunni, 29-25, en leikurinn
fór fram í Digranesi.
Stefin Kiistjánsson, DV, Strasbourg:
Stuðningsmenn íslenska hand-
knattleikslandsliðsins hér í Stras-
bourg hafa stutt vel við bakið á ís-
lenska liðinu. Hér fer á eftir spá átta
þeirra um leikina í okkar milliriðli í
kvöld og einnig spá þeir um úrslitin
í París:
Kjartan L. Pálsson
fararstjóri
ísland vinnur Hohand 33-15, Vestur-
Þýskaland vinnur Búlgaríu 30-19 og
Rúmenía vinnur Sviás 18-16. Um
1.-2. sætiö leika því ísland og Pólland
og ísland sigrar 16-14. Rúmenía
vinnur Frakkland í leiknum um 3.-4.
sætið, 23-22.“
Óli N. Sigmarsson,
Reyðarfirði
„ísland vinnur Holland 35-13, Vest-
ur-Þýskaland Búlgaríu 27-20 og
Rúmenía og Sviss gera jafntefli,
23-23. Pólland vinnur Island í úrslit-
um 20-18, og Rúmenar vinna Frakka
22-18.“
Heimir Helgason,
Reyðarfirði
„ísland vinnur Holland 33-15, V-
Þýskaland vinnur Búlgaríu 26-18 og
Rúmenía vinnur Sviss 24-23. Síðan
vinnur ísland Pólland 20-18 og Rúm-
enar vinna Frakka 23-19.“
Kjartan Sigurðsson,
Akureyri
„ísland vinnur Holland 34-16, V-
Þýskaland vinnur Búlgaríu 22-18 og
Rúmenía vinnur Sviss 20-19. í úrslit-
um vinnur ísland Pólland 22-20 og
Rúmenía vinnur Frakkland 18-17.“
Björn Pálmason,
Akureyri
„ísland vinnur Holland 32-20, V-
Þjóðverjar og Búlgarir gera jafntefli
25-25 og Sviss vinnur Rúmeníu 20-19.
í úrslitaleikjunum vinnur ísland Pól-
land 19-18 og Frakkland vinnur Sviss
23-21.“
Hannes Jóhannesson,
Kópavogi
„ísland vinnur Holland 29-13, V- '■
Þýskaland vinnur Búlgaríu 24-18 og ]
Sviss vinnur Rúmeníu 21-20. Síðan f
vinnur ísland Pólland 22-21 og Sviss ■
vinnur Frakkland 24-22.“
I
Birgir Sigurðsson,
Kópavogi
„ísland vinnur Holland 24-14, V-
Þjóðveijar vinna Búlgari 24-17 og |
Sviss vinnur Rúmeníu 19-18. Síðan ’
vinnur ísland Pólland 23-19 og Sviss
vinnur Frakkland 20-18.“
Stefán Baldursson,
fsaflarðardjúpi
„ísland vinnur HoUand 23-18, V-
Þýskaland vinnur Búlgaríu 22-20 og
Sviss og Rúmenía gera jafntefli,
22-22. ísland vinnur síðan Pólland í
úrshtum 21-18 og Rúmenar vinna
Frakka 21-19.“