Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1989, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1989, Síða 5
FÖSTUDAGUR 10. MARS 1989. 21 gunum eftir lonesco. 3g MH: ingamir nashyrningar æöa um aöalgötu bæjarins. Eftir því sem á líður birtast fleiri og fleiri nashymingar. Þetta eru borgarar sem sýkst hafa af torkennilegum sjúkdómi sem gerir þá að nashyrningum, ekki bara í úthti heldur breytir þeim einnig hugar- farslega ... Tónlistin í verkinu er eftir Hilmar Örn Hilmarsson og Óla Jón Jónsson, búninga- hönnuður er Rósberg G. Snædal og leik- myndahönnuður Magnús Loftsson. Eins og áður sagði er frumsýning á morgun. Önnur sýning á mánudaginn og þriðja sýning á miðvikudaginn. Miðapantanir í síma 39010. Landsmót íslenskra bamakóra Landsmót íslenskra bamakóra verður haldið nú um helgina. Frá árinu 1977 hafa mót þessi verið haidin reglulega annað hvert ár. Að þessu sinni er landsmótið hald- iö í Kópavogi, en lokatónieikamir fara fram í Háskólabíói á sunnudag kl. 14.00. Búist er við um að 550 þátttakendur á aldrinum 10-15 ára verði á mótinu. Á laugardaginn verður sungið og æft í hópum undir leiösögn hinna ýmsu kórstjóra, auk þess sem veitt verður tilsögn í raddbeitingu og söngtækni almennt. Hópstarf af þessu tagi hefur ávallt skilað góð- um árangri. Dagskránni á laugar- dag lýkur svo með veglegri kvöld- vöku í Þinghólsskóla þar sem kór- arnir munu flytja undirbúin skemmtiatriði. Á tónleikunum á sunnudaginn munu kórarnir syngja fyrst hver um sig en að lokum sameiginlega. Mót þessi hafa verið öllu barna- og ungmennakórastarfi ómetanleg lyftistöng og öllum þátttakendum tilhlökkunarefni í langan tíma. Búið er að leggja á sig mikla vinnu við erfiðar æfingar og árangurinn má svo sjá og heyra í Háskólabíói á sunnudaginn. Sinfóníuhljómsveit Islands: Vínartónleikar Tvennir Vínartónleikar verða í Háskólabíói um helgina. Þeir fyrri verða í kvöld kl. 20.30. Verða þar leikin verk eftir Mozart, Schubert og Strauss. Á tónleikunum á laug- eædag kl. 16.30 verða verk eftir C.M. Zierer, Johann Strauss, yngri og eldri, R. Stolz, F. Kreisler og Oscar Strauss. Hljómsveitastjóri og einleikari verður Peter Guth og einsöngvari Ulrike Steinsky. Guth kom hingað í fyrra og stjómaði eftirminnileg- um Vínartónleikum þar sem hann hreif gesti í eftirminnilegri stjórn og fjörlegum leik á fiðlu. Ulrike Steinsky hefur einnig sungið áður á Vínartónieikum með Sinfóníuhljómsveitinni. Það gerði hún 1987. Hún er Austurríkismað- ur og hefur verið tengd Ríkisópe- runni í Vín síðan 1982, fyrsta árið sem nemi við Ópemskólann en síð- an sem einsöngvari. Hún hefur á stuttum ferh sínum farið söngferð- ir víða um Evrópu. Miðar á Vínartónleikana eru seldir í Gimli við Lækjargötu. Ulrike Steisky, einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit islands. Geröubérg: Tónsmíðar Snorra Sigfúsar Birgissonar Snorri Sigfús Birgisson. Tónlistardeild Borgarbókasafns- ins gengst fyrir dagskrá á sunnu- daginn kl. 16.00. þar sem kynnt verða tónverk eftir Snorra Sigfús Birgisson. Á fyrri hluta dagskrárinnar mun Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld kynna Snorra og bregða upp tón- dæmum úr verkum hans. Flutt verða brot úr tónverkum og einnig munu þeir Hjálmar og Snorri flytja nokkur af 25 píanólögum fyrir byrj- endur sem samin voru 1984. A síðari hluta dagskrárinnar verða flutt fjögur tónverk í heilu lagi, Dans fyrir selló, Jarardreki fyrir píanó, Hymni fyrir fiðlu og selló og síðast verður frumflutt nýtt verk fyrir klarinett og píanó er nefnist Cantilena. Flytjendur tónverka auk höfund- ar og Ifjálmars eru: Nora Korn- blueh, sehó, Óskar Ingólfsson, klarinett og Þórhahur Birgisson, fiðla. Háskólabíó: Lúörasveit og léttsveit Tónmenntaskóh Reykjavíkur mun gangast fyrir tónleikum í Há- skólabíói á morgun kl. 13.30. Koma þar fram strengjasveitir og lúðra- sveitir yngri og eldri nemenda skólans ásamt léttsveit. Efnisskráin er fjölbreytt og er aðgangur ókeypis og öllum heimilt að koma og sjá unga og eldri nem- endur spreyta sig. Tilkyimingar Afmælis Þórbergs minnst í tilefni aldarafmælis Þórbergs Þórðars- sonar rithöfundar efnir MÍR tíl dagskrár í húsakynnum félagsins að Vatnsstíg 10, surmudaginn 12. mars kl. 15.00. Helgi Sig- urðsson sagnfræðingur fjallar um Þór- berg, Baldvin HaUdórsson leikari mun lesa úr verkum rithöfundarins og Einar Kristján Einarsson leikur einleik á gítar. Þá verður sýnd kvikmynd Ósvaldar Knúdsen um Þórberg. Kaffiveitingar. Aðgangur er ókeypis og öUum heimiU. Ferðahátíð Atlantik Ferðahátíðimar eru nú hafnar að nýju í Þórscafe og verða sólarlandaferðir frá AtlantUi kynntar á sunnudagskvöld. Elsa Lund ásamt hressum hópi gleði- og gáskamanna úr gleðidagskránni „Hvar er Elsa?“ koma í heimsókn. Þá verður spUað bingó og í boði eru sólarlandaferö- ir tU MaUorca með Atlantik. Hljómsveit Kjartans Magnússonar leikur fyrir dansi. Norsk bókakynning Laugardaginn 11. mars kl. 16.00 verður kynning á norskum bókum í Norræna húsinu. Tveir norskir gestir taka þátt í dagskránni. Trond B. Olsen, fram- kvæmdastjóri Stenersen-bókaútgáfunn- ar, kynnir nýjar Ustaverkabækur. Rit- höfundurinn Roy Jacobsen segir frá rit- störfum sínum og les smásögu úr nýjustu bók sinni. Þekktasta skáldsaga hans, „Nýja vatniö“, kemur út í íslenskri þýð- ingu á næsta ári. Óskar Vistdal sendi- kennari mun kynna þaö helsta í norskri bókaútgáfu á síðastUönu ári. Karvelsdagur í Njarðvík Stúkan Vík í Keflavík og bæjarstjórn Njarövikurbæjar gangast fyrir Karvels- degi í safnaöarheimUi Innri-Njarðvíkur- kirkju sunnudaginn 12. mars kl. 15.30 í tUefni af 85 ára afmæli Karvels Ögmunds- sonar. Verður m.a. lesið úr ævisögu Karvels og lesið úr óbirtu verki hans. Kaffiveitingar verða í boöi Njarðvíkur- bæjar. Tónleikar Flautu- og gítartónleikar á vegum TónUstarfélags Borgarharðar verða haldnir í Borgameskirkju sunnu- daginn 12. mars kl. 16.00. Þar koma fram Kolbeinn Bjamason flautuleikari og Páll Eyjólfsson gitarleikari. Kolbeinn og Páll hafa starfað saman frá árinu 1984 og spU- uðu síðast saman við opnun íslenskrar menningarstöðvar í Amsterdam í Hol- landi. Þessir tónleUtar em næstsíðasta verkefni TónUstarfélagsins á þessu ári. TrioCézanneí íslensku óperunni Fimmtu tónleUtar TónUstarfélagsins á þessu ári verða haldnir í íslensku óper- unni sunnudaginn 12. mars kl. 20.30. Þar kemur fram Trio Cézanne frá Bandaríkj- unum en það skipa fiðluleUtarinn Henryk Kowalski, seUóleikarinn Jakob Kowalski og píanóleikarinn Paul Schoenfield. A tónleikunum verða flutt verk eftir Haydn, Ravel og Brahms. Miðar verða tU sölu við innganginn. I i » I NU ER AÐ HROKKVA EÐA STÖKKVA Hver fær milljónir á laugardaginn? PS. Þú getur notaö sömu tölurnar, viku eftir viku - með því aö kaupa tveggja, fimm, eða tíu vikna miða. Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511 SAMEINAÐA/SlA t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.