Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1989, Blaðsíða 8
24
FÖSTUDAGUR 10. MARS 1989.
Loksins datt peningastrætiö úr 1.
sæti listans eftir dágóða viöveru.
Reyndar er orðiö langt síðan Mic-
hael Douglas hefur ekki verið í 1.
sæti því banvæn kynni dvöldust
þar áður.
Það er löggumynd sem hand-
tekur sætið eftirsótta með þá Hines
og Dafoe í aðalhlutverki. Þar eru
reyndar ekki á ferðinni neinar
venjulegar löggur því þær eltast við
glæpamenn í Saigon þegar Banda-
ríkjamenn heyja þar sinn hruna-
dans.
Aðeins ein mynd er ný á listanum
en það er hetja að nafni Norris sem
vippar sér í 8. sæti
DV-LISTINN
1. (6) Saigon
2. (2) Frantic
3. (5) Planes, Trains &
Automobiles
4. (1) Wall Street
5. (3) Fatal Attraction
6. (7) Police Academy 5
7. (9) Vise Versa
8. (-) Hero and the Terror
9. (4) Colors
10. (10) Moonstruck
í guðs eigin landi
STARS & BARS
Útgefandi: Skífan
Leikstjóri: Pat O’Connor. Framleiðandi:
Shel Schrager. Handrit: William Boyd
eftir sögu sinni. Aðalhlutverk: Daniel
Day Lewis, Harry Dean Stanton og Joan
Cusack.
Bandarísk 1988. 91 min. öllum leyfö.
Myndin segir frá Englendingi í
guðs eigin landi, Bandaríkjunum,
og því hvemig honum tekst að
semja sig að siðum innfæddra.
Lewis leikur Englendinginn, sem
er listaverkasali, er það verkefni
að bregða sér til Suöurríkjanna til
að festa kaup á verðmætu mál-
verki. Þar kynnist hann sérstæðri
fjölskyldu og kemst fljótt í hann
krappann.
Þrátt fyrir satíríska uppbyggingu
myndarinnar þá er húmorinn
handan við hæðina allan tímann.
Handritshöfund, sem reyndar
einnig skrifaði söguna, skortir að
því er virðist þann skilning á
myndmálinu sem þarf til að koma
kímninni til skila. Þrátt fyrir að
mörgu leyti kostulegar andstæður
í myndinni þá vekur hún ekki þann
háðska hlátur sem hlýtur að hafa
veriö markmiðið. Eigi að síöur er
myndin vel þess virði að á hana sé
horft og er það ekki hvaö síst fyrir
góðan leik og skemmtilega sviðs-
mynd.
TVær hryllingssögur
FRIDAYS'S CURSE
Útgefandi: Háskólabíó.
Leikstjórar: David Cronenberg og Rob
Hedden.
Aðalhlutverk: John D. Le May og
Christopher Wiggins.
Bandarísk, 1988 - sýningartimi 2x45
min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Fridays Curse eru sjónvarps-
þættir sem byggja á því að bölvun
hvílir á hlutum sem hafa verið
seldir úr fomgripaverslun einni.
Fyrrverandi eigandi hafði selt sig
skrattanum og sá í neðra notfærði
sér það með því að láta fomsalann
selja saklausu fólki ýmsa hluti sem
hann svo stýrði að sinni vild.
Ekki em þessar myndir mjög
merkilegar en þó má hafa gaman
áf þegar sniðug hugmynd er vel
framkvæmd eins og í fyrri mynd-
inni af tveimur, Faith Healer, sem
er á þessu myndbandi. Fjallar hún
um blekkingarpredikara sem allt í
einu öðlust kraft til að lækna hel-
sjúka af sjúkdómum sínum. Hanski
einn, sem hann kemst óvænt yfir,
hefur nefnilega þá náttúm að þegar
hann snertir fólk fer sjúkdómurinn
úr því yfir í hann.
Til að predikarinn geti losnað
sjálfur við sjúkdóminn verður
hann að drepa einhvem. í höndum
hins þekkta hryllingsmeistara,
David Cronenberg, verður mynd
þessi langt yfir meðallagi og er
virkilega spennandi og hrollvekj-
andi.
Seinni myndin er ekki alveg jafn-
góð en hefur góða spretti inn á
miUi. Nefnist hún The Electrocuti-
oner og fjallar um fanga sem hefur
verið dæmdur til dauða. Hann er
látinn í rafmagnsstólinn en þótt
þrisvar sé straumi hleypt á þá deyr
hann ekki. Nokkrum árum seinna
þegar aðalpersónur þáttanna eru
að leita uppi stól einn sem hafði
verið á skrá hjá þeim heyra þær
af tannlækni einum sem starfar við
upptökuheimili, en margir sjúkl-
ingar hans hafa horfið...
Aðalpersónur þáttanna eru þrjár
og eru það erfingjar fomsöluversl-
unarinnar. Fyrir unnendur
spennumynda eru þættir þessir
ágæt afþreying en bent skal á að
sum atriði eru varla fyrir tauga-
veiklaöa.
-HK
Indæll feröafélagi
PLANES, TRAINS AND AUTOMOBILES
Útgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri, handritshöfundur og útgef-
andi: John Hughes. Myndataka: Don
Peteman. Aðalhlutverk: Steve Martln og
John Candy.
Bandarísk, 1987. öllum leyfð.
Fyrstu kynni af þessari mynd
hljóta að vekja forvitni. Hér koma
saman þrir menn sem hafa náð
töluverðum frama í gamanmynda-
iönaðinum vestanhafs án þess þó
að slá virkilega í gegn. Hughes legg-
ur mikið undir sem leikstjóri,
framleiðandi og handritshöfundur.
Hann hefur fengið þá Martin og
Candy í lið með sér og saman gera
þeir „road movie“ í gamansömum
tón.
Myndin segir frá Neal Page
(Martin) sem er stífpressaður bis-
nessmaður. Fyrir gráglettni örlag-
anna verður hann að ferðast með
sölumanni að nafni Del Griffith
(Candy) um vegi og vegleysur til
að komast í kalkúninn á þakkar-
gjörðardaginn. Griffith er slæmt
tilfelli af NÖRD og geðheilsu Page
hrakar með hveijum kílómetra.
Mörg skondin atvik prýða mynd-
ina sem hefur að ýmsu leyti lukk-
ast vel. Farsinn er þó ekki keyrður
í botn því inn á milli gætir fuUmik-
illar tilfinningasemi sem dregur
myndina niður. Samspil aðalleik-
aranna er með ágætum. Martin
hefur líklega aldrei verið eins al-
varlegur og Candy heldur aftur af
andlitsgrettunum. Það veit á gott.
-SMJ
POLICE ACADEMY 5
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Alan Myerson.
Aðalleikarar: Bubba Smith, David Graf,
Michael Winslow og Leslie Easterbrook.
Bandarisk, 1988-sýningartími 87 mín.
Leyfð öllum aldurshópum.
Enn einu sinni eru „lögreglu-
nemamir", sem eru í raun kennar-
ar, á ferðinni og til að fá tilbreyt-
ingu í útþynntan söguþráð eru at-
burðirnir látnir gerast á Miami.
Nú á að fara að heiðra Lassard
skólastjóra fyrir vel unnin störf og
það á að gerast í Miami. Hinn
trausti vinahópur fylgir honum að
sjálfsögðu eftir og það gerir einnig
yfirkennarinn sem að sjálfsögðu
sér sig sem næsta skólastjóra.
í flughöfninni á Miami tekur
Lassard tösku í misgripum sem
væri ekki í frásögur færandi ef í
-•O.J ww-rtJl mat <£ *
töskunni hefði ekki verið afrakstur
demantaráns. Ræningjamir kom-
ast að hver tók töskuna en það fer
um þá þegar þeir uppgötva að task-
an er á hóteh þar sem eingöngu
lögreglumenn eru gestir ...
Eins og fyrri myndir um „lög-
reglunemana" er mikið lagt upp
úr að sýna séreiginleika hvers fyrir
sig. Hæfileikar þeirra eru aftur á
móti á þröngu sviði svo endurtekn-
ingar era miklar. Þá er að mínu
mati búið að þurrausa hugmynda- j
bankann að þessari myndaröð og
tími kominn að hætta.
Police Academy 5 er annars
hvorki verri né betri en fyrri
myndir. Hún er nákvæmlega eins.
Undanskilin er fyrsta myndin sem
var virkilega skemmtileg gaman-
mynd.
-HK
Endalaus skothríð
THE GAUNTLET
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Clint Eastwood.
Aóalhlutverk: Clint Eastwood, Sondra
Locke og Pat Hingle.
Bandarisk, 1977-sýningartimi 107 min.
Bönnuö börnun innan 16 ára.
Clint Eastwood hefur eins og
flestir vitað leikstýrt mörgum
myndum með sjálfum sér í aðal-
hlutverki. Hefur honum í heild tek-
ist vel upp og er mörgum af hans
bestu kvikmyndum leikstýrt af
honum sjálfum.
Ekki verður The Gauntlet tahn
til betri mynda Eastwoods. Kemur
þar til helst að allt raunsæi er látið
flakka á kostnað skotbardaga sem
eiga sér enga lika nema í teikni-
myndum.
Eastwood leikur lögguna Ben
Shockley sem starfar í Phoenix.
Hann fær það verkefni að fara til
Las Vegas til að ná í vitni sem vitna
á gegn smáglæpamanni. Vitnið,
0
Bjór í hvert mál
BEER
Útgefandl: Skifan
Leikstjóri: Patrick Kelly. Handrit: Allan
Weisbecker. Framleiöandi: Robert Cart-
off. Tónlist: Bill Conti. Aðalhlutverk:
Loretta Swit, Rip Thorn, Kenneth Mars,
David Alan Grier og William Russ.
Bandarisk 1985. 90 min. öllum leyfö.
Það er ótvírætt að þessi mynd er
sett á markaðinn í tilefni komu
bjórsins og ekki nema gott um það
aö segja.
Myndin segir frá auglýsingastofu
einni sem hefur mikið átak til að
auglýsa upp Norbecker bjór í
Bandaríkjunum. Framleiöandi
bjórsins segir að auglýsingin sé það
eina sem skipti máli við bjórinn því
þetta sé í raun allt sama gula pis-
sið. Þrjár „amerískar hetjur" eru
fengnar til að auglýsa bjórinn með
miklum árangri.
Hér er ekki á ferðinni mjög djúp-
ristur húmor en á köflum bregður
fyrir skondnum atriðum. Því mið-
ur eru leikararnir ekki allt of sleip-
ir í ruhunum en myndin bjargast
fyrirhom. -SMJ
sem er ung stúlka og dvelur í fang-
elsi, er ekki á þeim buxunum að
fara með honum, segir að það sé
dauðadómur þeirra beggja.
Shockley trúir henni mátulega en
kemst fljótt á aðra skoðun þegar
reynt er að drepa þau á leið út á
flugvölhnn. Þau leita skjóls á heim-
ih stúlkunnar. Þegar Shockley
hringir eftir hjálp en í staðinn fyrir
hjálpina kemur stór flokkur lög-
reglumanna sem skýtur húsið í
sundur í orðsins fyllstu merkingu.
Þetta er þó aðeins byrjunin á vand-
ræðum skötuhjúanna sem fylgja
þeim aha leið á ákvörðunarstað.
Það er margt gott við The Gaunt-
let. Eastwood er sannfærandi í
hlutverki hörkutólsins sem treyst-
ir engum. Áhrifum myndarinnar
er þó algjörlega eytt í einhverju
fáránlegasta endaatriði sem sést
hefurílögreglumynd. -HK
|