Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1989, Page 3
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989.
19
Dansstaðir
Abracadabra,
Laugavegi
Diskótek fostudags- og laugardags-
kvöld.
Amadeus, Þórscafé,
Brautarhólti, simi 23333
Hafrót, hljómsveit hússins, leikur
tyrir dansi um helgina ásamt hinni
geysivinsælu færeysku hljómsveit
Viking band sem mun leika lög af
nýju plötmmi. Diskótek á fyrstu hæö-
inni.
Ártún,
Vagnhöfða 11
Gömlu dansamir föstudagskvöld kl.
21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3.
Hljómsveitin Danssporiö leikur fyrir
dansi bæði kvöldin.
Broadway,
Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500
Lokað föstudags- og laugardagskvöld
vegna einkasamkvæmis.
Casablanca,
Skúlagötu 30
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Duus-hús,
Fischersundi, sími 14446
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Glæsibær,
Álfheimum
Hljómsveit Finns Eydals, Helena og
Afli munu skemmta föstudags- og
laugardagskvöld.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavik
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld með ýmsum uppákomum.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími
11440
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld. Hollenski djasssöngvarinn
Cab Kaye skemmtir öll kvöld á Borg-
arkránni.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir föstudags- og laugardags-
kvöld. Lifandi tónlist. Opið frá kl.
19-1.
Hótel ísland
Frumsýning í kvöld á „Sumarkami-
vah“. 24 dansarar koma fram í lit-
ríkri sýningu. 2. sýning laugardags-
kvöld. Rokksveit Rúnars Júlíussonar
leikur fyrir dansi bæði kvöldin. Cab
Kaye í Café ísland laugardagskvöld.
Hótel Saga,
Súlnasalur
v/Hagatorg, Reykjavík, simi 20221
Þjóðarspaug í 30 ár, skemmtidagskrá
með Ómari Ragnarssyni, Hemma
Gunn. og Helgu Möller á laugardags-
kvöld.
Cuba,
Borgartúni 32
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld. Aldurstakmark 18 ár.
Tunglið og Bíókjallarinn,
Lækjargötu 2, sími 621625
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Vetrarbrautin,
Brautarholti 20, sími 29098
Hljómsveit André Bachmann leikur
fyrir dansi fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Zeppelin
rokkklúbburinn,
Borgartúni 32
Royal Rock, húshljómsveit, leikur
fyrir dansi um helgina.
Ölver,
Álfheimum 74, s. 686220
Opið funmtudags-, fóstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld.
Afmælishátíð bílunnenda:
85 ár frá komu
Thomsensbílsins
Djúpavogsbúar setjast að taflborðinu um helgina en þá fer fram 36.
helgarmót tímaritsins Skákar.
Djúpivogur:
Teflt í til-
efni afmælis
Tímaritið Skák gengst fyrir helg-
arskákmóti í 36. sinn um helgina.
Að þessu sinni fer það fram á
Djúpavogi í samvinnu við Búlands-
hrepp og taflfélag staðarins. Tilef-
nið er 400 ára verslunarafmæli
Djúpavogs um þessar mundir.
Þetta er í annað sinn sem svona
mót er haldið þar eystra.
Mótið fer fram með hefðþundn-
um hætti. Fyrst eru leiknar tvær
stuttar skákir en síðan fimm um-
ferðir. Glæsileg peningaverðlaun
eru í boði fyrir efstu sætin en auk
þeirra eru unghnga-, kvenna- og
öldungaverðlaun, boð á næsta
helgarskákmót og bókaverðlaun.
Taflmennskan hefst kl. 18 í dag
en heldur áfram á morgun og
sunnudag klukkan 10. Nauðsynlegt
er að keppendur hafí með sér tafl
og klukku.
Danshúsiö:
Finnur Eydal
stýrir dansi
Finnur Eydal og hljómsveit hans
leika fyrir dansi í Danshúsinu í
Glæsibæ í kvöld og annað kvöld.
Sveitina skipa auk Finns, sem leik-
ur m.a. á saxófón og klarínett, þau
Helena Eyjólfsdóttir söngkona, Al-
freð Alfreðsson gítarleikari, Árni
Ketill Friðriksson trommari og Sig-
urður Þórarinsson hljómþorðsleik-
an.
Finnur og félagar léku fyrir
skemmstu í Glæsibæ og kunnu
borgarbúar vel að meta þessa send-
ingu að norðan.
Fornbílaklúbbur íslands stendur
þessa dagana fyrir veglegri bíla-
sýningu í Laugardalshöllinni og
lýkur henni á sunnudagskvöld. Til-
efnið er ekki ómerkara en það að
20. júní síðastliðinn voru Uðin 85
ár frá upphafi bílaaldar á íslandi.
Þann dag árið 1904 kom hingað
fyrsta vélknúna ökutækið, sjálfur
Thomsensbíll sem svo var kallað-
ur. Á sýningunni eru flestir glæsi-
legustu fornbílar landsins.
Vörubílar og aðrir stórir bílar eru
sýndir á sérstöku útisvæði við
Höllina en innan dyra eru fólks-
bílar og jeppar af mörgum stærðum
og gerðum. Auk amerískra glæsi-
vagna eru þar austur- og vestur-
evrópskir kjörgripir og góð dæmi
um íslenskt hugvit og handverk.
Þarna gefur m.a. að hta fyrsta veg-
hefilinn á landinu og ævagamla
dráttarvél. Reynt hefur verið að fá
sem flesta bíla í sem upprunaleg-
astri mynd.
Fjöldi mynda úr sögu bílsins á
íslandi er á sýningunni og bíla-
smiðir og bifvélavirkjar kynna iðn-
greinar sínar.
Sýningin er opin kl. 16-23 í dag,
fóstudag, en um helgina kl. 10-23.
Það er eins gott að kerran líti vel út. Síðasta hönd lögð á undirbúning glæsivagns fyrir fornbílasýninguna í
Laugardalshöllinni.
Þórscafé:
Viking Band kynn-
ir nyjft hljomplötu
- André Bachmann í Vetrarbrautinni
Færeyska stórsveitin Viking
Band er mörgum íslendingum að
góðu kunn fyrir leik sinn. Hþóm-
sveitin er nú afiur komin til lands-
ins og ætlar að kynna lög af nýju
plötunni sinni í Þórscafé á föstudag
og laugardag. Að auki mun htjóm-
sveit hússins, Hafrót, leika fyrir
dansi.
Þá er komin ný hljómsveit í Vetr-
arbrautina. Þar verða um helgina
André Bachmann trommari og fé-
lagar hans, Gunnar Bemburg bas-
saleikari og Carl Möller hjjóm-
borðsieikari. Þeir leika fyrir dansi
á föstudags- og laugardagskvöld.
Héraðsmót
í Ijamarlundi
Vilborg Eggerlsdóttir, DV, Búðardal:
Héraðsmót Ungmennasambands
Dalamanna og Norður-Breiðfirð-
inga verður haldið að Tjamarlundi
í Dalasýslu dagana 24. og 25. júní.
Mótið hefst kl. 10 báða dagana með
fjölbreyttri dagskrá. Á laugardags-
kvöld verður skemmtun og meðal
annars kemur Valgeir Guðjónsson
með gítarinn og tekur lagiö.
Hótel ísland:
Suður-amerí sk
dansstemning
Það mun ríka suður-amerísk
stemmning á Hótel íslandi um
helgina. Ríflega tuttugu dansarar
ætla að sýna karnivaldansa og
klæðast tilheyrandi búningum af
því tilefni. Stjórnandi danshópsins
er Auður Haralds og er fyrsta sýn-
ingin í kvöld.