Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1989, Blaðsíða 6
22 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989. Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir Tom Selleck og Paulina Porizkova í hlutverkum sínum í Með allt í lagi sem Bíóhöllin frumsýnir i dag. Bíóhöllin: Med allt í lagi Bíóhöllin frumsýnir í dag nýja bandaríska spennumynd með gam- ansömu ívafi, Með allt í lagi. Þar segir frá Phillip Blackwood, vin- sælum spennusagnahöfundi sem leikinn er af Tom Selléck. Hann kemst í kynni við hina fallegu og dularfullu Ninu Ionescu sem leikin er af Paulina Porizkova. Stúlkan hefur verið sökuð um morð en rit- höfundurinn álitur hana saklausa og sér henni því fyrir fjarvistar- sönnun. En á meðan ástin blómstrar verð- ur rithöfundurinn fyrir alls kyns „slysum". Hann fær það því á til- finninguna að ekki sé allt sem sýn- ist, að raunverulegt hlutverk stúlk- unnar sé að koma honum fyrir kattamef. Vestan hafs er Tom Selleck þekktastur fyrir leik sinn í sjón- varpsflokknum um einkaspæjar- ann Magnum. Kvikmynd þessi er fimmta tilraun hans á breiða tjald- inu, hin síðasta var sú vinsæla Þrír menn og barn. Paulina Porizkova er fyrst og fremst þekkt sem fyrirsæta en hún hefur áður leikið í einni kvikmynd, Önnu, frá árinu 1987. Önnur stór hlutverk í kvikmynd- inni em leikin af William Daniel og James Farentino. Leikstjóri er Bmce Beresford, ástralskur maður sem á tvær góðar myndir að baki, Breaker Morant og Tender Merci- es. Fyrir þær báðar var hann til- nefndur til óskarsverðlauna í Hollywood. -«b Ég Þýska kvikmyndaleikstýran Dor- is Dörrie vakti mikla athygli fyrir einum tveimur árum með kvik- mynd sinni Menn (Mánner) sem fjallaði um samskipti kynjanna. Hún hefur nú gert aðra mynd, Ég og minn, þar sem hún rær á sömu mið. Laugarásbíó sýnir myndina um þessar mundir. Myndin fiallar um ungan lög- fræðing, hamingjusamlega giftan, sem verður fyrir þeirri ólukku að vinur hans fyrir neðan belti fer á kvennafar upp á sitt eindæmi. Maðurinn lendir síðan í hinum grátbroslegustu ævintýrum í sam- skiptum sínum við konur og menn og það sem á milli þeirra er. Aðalhlutverkin leika Griffin Dunne og Ellen Green. Hann er þekktur fyrir leik sinn í „After Hours" en hún fyrir Hryllings- búðina. Laugarásbíó: og minn Griffin Dunne á t vandræðum með konur í mynd Laugarásbiós, Eg og minn. Ellilífeyrisþegarnir úr Undrasteininum snúa aftur til jarðar I framhalds- myndinni sem frumsýnd verður í Bíóborg i dag. Bíóborgin: Undrasteinninn II - Afturkoman Undrasteinninn vakti mikla lukku þegar hún var frumsýnd vestanhafs fyrir hartnær fiórum árum. Þrátt fyrir góðan ásetning í upphafi hafa framleiðendur þeirr- ar myndar nú fallið í freistni og tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið. Fyrri myndin endaði á því að góður hluti íbúa elliheimilis eins hélt upp í himininn með geim- verum í fínu skipi, ákveðinn í því að koma aldrei aftur til jarðar. Elh- lífeyrisþegarnir fá þó tækifæri til að taka þátt í stuttri björgunarferð á heimaslóðir. Þann tíma nota þeir til að endurmeta ákvörðun sína um að yfirgefa móður Jörð og hver og einn kemst að niðurstöðu á ein- stakan og oft furðulegan hátt. Gamla fólkinu gefst hka færi á að hitta aftur fomvini sem urðu eftir. í þessari nýju mynd koma fram margir þeirra sem vora með í upp- hafi leiks, Don Ameche sem fékk óskarsverðlaun fyrir leik sinn í þeirri gömlu, Wilford Brimley, Hume Cronyn, Brian Dennehy, Jessica Tandy og margir fleiri. Nýr leikstjóri hefur hins vegar tekið við stjórntaumunum, Daniel Petrie. Myndin verður frumsýnd í Bíó- borginni í dag. Matthew Modine og Michelle Pfeiffer leika aðalhlutverkin i sem Háskólabíó sýnir. Gift mafiunni Háskólabíó: Gift mafíunni Háskólabíó sýnir þessa dagana vinsæla ameríska gamanmynd, Gift mafiunni, þar sem segir frá konu nokkurri sem vill snúa baki við tilveru sinni innan mafíunnar. Angela DeMarco heitir konan og á allt sem hla fengið fé getur keypt. En þegar maður hennar fer í vinn- una á morgnana veit hún aldrei hvort hann kemur heim í kvöld- matinn eða hvort hann hefur lent i klóm lögreglunnar. Heimili henn- ar er góður vitnisburður um það sem eiginmaður hennar, glæpa- maðurinn, og félagar hans hafa stohð síðast. Konan vhl semsé hefia nýtt líf en það er ekki hlaupið að því. Henni gefst þó óvænt tækifæri th að hrinda áætlunum sínum í fram- kvæmd þegar eiginmaðurinn káss- ast upp á viðhald sjálfs foringja mafíunnar og lendir í vondum málum. Michelle Pfeiffer leikur konuna sem vill komast undan en aðrir leikarar eru Matthew Modine o£ Dean Stockwell. Leikstjóri er Jon- athan Demme sem sló í gegn með „Something Wild“ þar sem Jeff Daniels og Melanie Griffith voru í aðalhlutverkunum. Sýningar Sýning í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opin daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Að- gangur að safninu er ókeypis. Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7 Leiðsögnin Mynd mánaðarins fer fram í fylgd sérfraeðings á fimmtudögum kl. 13.30-13.45. Safnast er saman í anddyri safnsins og er leiðsögnin öllum opin og ókeypis. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70 Yfirlitssýningin á verkum Sigurjóns, sem sett var upp í tilefni af vigslu safnsins sl. haust, mun standa óbreytt til 1. ágúst nk. Þar gefur að lita nokkur verk sem hafa aldrei áður verið sýnd á íslandi. Opið á laugardögum og sunnudögum frá kl. 14-17. Á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum er opið kl. 20-22. Lokað verður á föstudögum. Vikulegir tónleikar eru á þriðjudagskvöldum kl. 20.30. Hin vistlega kaffistofa er opin á sama tíma. Tekið er á móti hópum utan sýningar- timans samkvæmt samkomulagi við safnstjóra. Norræna húsið við Hringbraut 17. júní voru opnaðar tvær sýningar í Norræna húsinu. Sýning á málverkum eftir Jóhann Briem er í sýningarsölum. Sýnd eru um 30 málverk, öll í eigu ein- staklinga eða stofnana. Verkin eru máluð á áiunum 1958-1982. Sýningin stendur fram til 24. ágúst og er opin daglega kl. 14-19. í anddyri hússins stendur yfir sýn- ing sem neftíist Jörð úr ægi. Sýndir eru helstu sjófuglar eyjanna og algengar háp- löntur. Einnig er lýst landnámi lífvera í Surtsey. Sýningin verður opin fram til 24. ágúst kl. 9-19 nema sunnudaga kl. 12-19. Nýhöfn, Hafnarstræti 18 Kristján Davíðsson opnar málverkasýn- ingu á morgun kl. 14-16. Á sýningunni eru olíumálverk, unnin á þessu ári. Kristján hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis. Sýningin, sem er sölusýning, er opin virka daga kl. 10-18 og kl. 14-18 um helgar. Henni lýkur 12. júlí. Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, s. 52502, Ftmdur Ameríku nefnist sýning i Sjó- minjasafni íslands. Sýningin er tviskipt. Annars vegar er sýning um ferðir nor- rænna manna til Ameríku og fund Vin- lands um 1000. Hins vegar er um að ræða farandsýningu frá ítalska menntamála- ráðuneytinu um Kristófer Kólumbus og ferðir hans fyrir um 500 árum. Sýningin verður opin í sumar alla daga nema mánudaga kl. 14-18. Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning Stofnunar Áma Magn- ússonar er í Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum, fimmtudögum og laugar- dögum kl. 14-16. Póst- og símaminjasafnið, Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. Vinnustofa Ríkeyjar, Hverfisgötu Þar em til sýnis og sölu postulínslág- myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið- vikudaga, fimmtudaga og fóstudaga og á laugardögum kl. 10-16. Þjóðminjasafnið Safnið opið alla daga nema mánudaga kl. 11-16. Listkynning í Alþýðu- bankanum á Akureyri Alþýðubankinn hf. og Menningarsamtök Norðlendinga, Menor, kynna myndhst- armanninn Jónas Viðar Sveinsson. Á Ustkynningunni em 6 verk, öU unnin í akrýl á striga á árunum 1987-1989. List- kynningin er í afgreiðslusal Alþýðubank- ans á Akureyri, Skipagötu 14, og er opin á afgreiðslutíma bankans. Kynningunni lýkur 30. júní. Slunkaríki, ísafirði Rósa Ingólfsdóttir sýnir grafíkmyndir. Á sýningunni em nokkrar myndraðir sem hún hefur unnið fyrir sjónvarp og em þær aUar til sölu. Sýningin stendur yfir til 25. júní og er opin fimmtudaga til sunnudaga ki. 16-18. Vatnslitamyndir á Selfossi Grétar Þ. Hjaltason sýnir vatnslitamynd- ir í Sjálfstæðishúsinu, Tryggvagötu 8, Selfossi. Þetta er önnur einkasýning hans á Selfossi. Er þriðjungur myndanna, sem em 25 að tölu, einmitt af staðnum og næsta nágrenni. Sýningin er opin ki. 16-20 um helgar en kl. 17-20 virka daga. Henni lýkur 25. júní. Sýning í bóka- safninu á Akranesi Ásgerður Kristjánsdóttir sýnir oUu- myndir, tau- og kaffiUtun. Sýningin stendur tU 26. júní. Veitingaskálinn Þrastarlundi Nú stendur yfir í veitingaskálanum Þrastarlundi við Sog sýnipg á 13 oUumál- verkum eftir Mattheu Jónsdóttur. Matt- hea hefur haldið 11 einkasýningar og tek- ið þátt í fjölmörgum samsýningum hér heima og erlendis. Sýningin í Þrastar- lundi stendur til 26. júni. Sjóminjasafnið á Eyrarbakka, Túngötu 59 Safnið er opið daglega i sumar frá kl. 14-17 fram til 1. september.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.