Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1989, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1989, Page 7
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989. 23 • Fjórir leikir fara fram i 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu um helgina. Þessi mynd var tekin í leik Víkings og Fylkis á dögunum. DV-mynd BG Toppleikurinn verður á Kapla- krikavellinum - þegar toppliö FH fær KR í heimsókn á sunnudagskvöld Fjórir leikir fara fram um helg- ina í 1. deild íslandsmótsins í knatt- spyrnu. Allir eru þeir á dagskrá klukkan 20 á sunnudagskvöldið. Toppleikur 6. umferðar verður án efa leikur FH og KR á Kapla- krikavelli. FH-ingar eru sem stend- ur í efsta sæti 1. deiidar og hafa komið verulega á óvart það sem af er sumri. KR-ingar unnu stóran sigur á Keflvíkingum í síðasta leik sínum og því má búast við hörku- leik í Hafnarfirði á sunnudags- kvöldið. Á sama tíma leika Valur og Fylk- ir á Hlíðarendavelli, Keflvíkingar fá Akurnesinga í heimsókn og KA tekur á móti Víkingi frá Reykjavík á aðalvellinum á Akureyri. Síðasti leikur 6. umferðar fer svo fram á mánudagskvöld en þá leika Fram og Þór á Laugardalsvelli klukkan 20. 2. deild karla Þrír leikir fara fram í 2. deild karla um helgina. í kvöld, föstudags- kvöld, leika Leiftur og ÍR á Ólafs- firði. Á laugardag leika síðan Ein- heiji og Selfyssingar klukkan 14 og á sama tíma leika Vestmannaey- ingar gegn Tindastóli í Eyjum. I.deild kvenna Þrír leikir í 1. deild kvenna eru á dagskrá um helgina. Tveir þeirra eru á föstudagskvöld en þá leika Valur og Akranes klukkan 20 að Hlíðarenda og á sama tíma leika Breiðablik og Stjarnan í Kópavogi. Þriðji leikurinn er síðan viðureign KR og KA á KR-velli á laugardag klukkan 14. 3. deild karla í 3. deild karla eru eftirtaldir leikir á dagskrá um helgina. Á föstudags- kvöld leika Reynir, Sandgerði, og Grindvíkingar klukkan 20 í A-riðli á Sandgerðisvelli, Dalvíkingar og Magni á sama tíma í B-riðli á Dal- vík og þriðji leikurinn er í B-riðli en þar eigast við KS og Valur frá Reyðarfirði á Siglufirði. Á laugardag leika Grótta og Leiknir frá Reykjavík á Valhúsa- velli klukkan 14, Badmintonfélag ísafjaröar og Hvergerðingar leika á ísafirði klukkan 14, Afturelding og Þróttur, Reykjavík, í Mosfellsbæ klukkan 14, Kormákur og Huginn klukkan 14 á Hvammstangavelli og loks Reynir, Árskógsströnd, og Austri á Árskógsstrandarvelli klukkan 14. 4. deild karla Alls eru 14 leikir fyrirhugaðir í 4. deild um helgina. Á föstudagskvöld leika Ægir og Ögri í Þorlákshöfn, Víkingur, Ólafsvík, og Skallagrím- ur í Ólafsvík, Baldur og Hafna- menn á Hvolsvelli, Léttir og Árvak- ur á gervigrasvellinum í Laugar- dal, UMSE-b og TBA á Laugaland- svelli og loks KSH og Höttur á Stöðvarfjarðarvelli. Allir leikirnir hefjast klukkan 20. Á laugardag leika Skotfélag Reykjavíkur og Njarövíkingar á gervigrasvellinum klukkaan 17, Ernir og Fjölnir leika á SelfossveUi klukkan 14 og á sama tíma leika Haukar og Geislinn á Hvaleyrar- holtsvelli, SM og og HSÞ-b á Mel- um í Hörgárdal, Efling og Neisti á Laugavelli í Reykjadal, Æskan og Hvöt á Svalbarðseyrarvelli og loks Sindri og Leiknir, Fáskrúðsfirði, á Hornafjarðarvelli. Síðan er einn leikur á dagskrá í 4. deild á sunnu- dag en þá leika Fyrirtak og Augna- blik á gervigrasvellinum i Laugar- dal klukkan 14.00. Golf um helgina Mikið fjör verður hjá kylfmgum um helgina samkvæmt venju og stærsta mótið er án efa opið mót á Jaðarsvelli á Akureyri. Þar er reiknáð með flestum bestu kylfing- um landsins til keppni. Leiknar verða 36 holur, meö og án forgjafar. Annað opið mót fer fram á Akra- nesi en það er opna SR-mótið á vegum Golfklúbbsins Leynis. Leiknar verða 18 holur, með og án forgjafar. -SK ER SMÁAUGLÝSINGA BLAÐID SIMINNER TILBOÐ AÐEINSIJUNI 10 tímar á kr, 2.000- 20 tímar á kr. 1000,- Nýjar perur Verid ætíð velkomin Teogkaffiákönnunni SOLBAÐSSTOFAN- GRETTISGÖTU 57. @621440 RYMINGARSALA Hankook, kóreskir vörubílahjólbarðar Frábær gæðadekk - Frábært verð 1100R20 radial með slöngu frá 18.800 1200R20 radial með slöngu frá 22.500 12R22,5 radial frá 17.800 1000X20 nælon pneumant 13.800 12R22,5 radial pneumant 15.800 1100x20 notuð herdekk 3.500 1100X20 notuð Conti/Dunlop 7.500 BARÐINN HF. Skútuvogi 2 - Símar: 30501 og 84844 Frá menntamálaráöuneytinu: Lausar stöður vlð framhaldsskóla Umsóknarfestur um áður auglýstar kennarastöður við eftirtalda skóla framlengist til 30. júní. Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki eru lausar til um- sóknar kennarastöður í þýsku, stærðfræði og eðlisfræði. Að Kvennaskólanum í Reykjavík vantar kennara í stærð- fræði. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 30. júní nk. Menntamáiaráðuneytið TiLBOÐSVERÐ TIL MÁNAÐAMÚTA HJÓLSAGIR í borðí og með stíllanlegu blaðí Vcrð aðeins kr. 25.500,- TAKMARKAÐ MAGN Pallar hf. VINNUPALLAR - STIGAR - VÉLAR - VERKFÆRI DALVEGI 16, .FlFUHVAMIVII, KÓPAVOGI, SlMAR 641020 OG 42322

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.