Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1989, Qupperneq 8
24
FÖSTUDAGUR 23. JÚNl 1989.
Mynd-
bönd
Umsjón:
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Kar|sson t
............'}
Það eru ekki miklar sviptingar á
myndbandaiistanum þessa vikuna.
Big og Midnight Run halda efstu
sætunum og eru í nokkrum sér-
flokki hvað vinsældir varðar. Að-
eins ein ný mynd kemur inn á Ust-
ann þessa vikuna. Er það gaman-
myndin The Great Outdoors með
Dan Aykroyd og John Candy i aðal-
hlutverkum. Þar leika þeir félagar
tvo heimilisfeður sem fara í sum-
arfrí og er samkomulagið vægast
sagt ekki gott. Cyndi Lauper hlýtur
að eiga miklum vinsældum að
fagna því Vibes, sem hún leikur
aðalhlutverkið í, tekur stórt stökk
upp listann, úr tíunda sæti í það
þriðja.
DV-LISTINN
1. (1) Big
2. (2) Midnight Run
3. (10) Vibes
4. (5) Red Heat
5. (3) Coming to America
6. (4) Nico
7. (7) Shy People
8. (7) Deadly Pursuit
9. (-) The Great Outdoors
10. (9) Good Morning
Vietnam
★★★ Vz
Stór strákur
BIG
Útgefandi: Steinar
Leikstjóri: Penny Marshall. Handrit:
Gary Ross og Anne Spelberg. Mynda-
taka: Barry Sonnenfield. Aóalhlutverk:
Tom Hanks, Elizabeth Perkins, Robert
Loggia og John Heard.
Bandarísk 1988. öllum leyfö. 100 min.
Á tímabfli var sem myndir um
aldursskiptinga væru í hverju
kvikmyndahúsi. Þessi er án efa
fremst þeirra. Hún var þó ekki fyrst
á ferðinni en sérlega skemmtflegt
handrit ásamt frábærum leik
Hanks í aðalhlutverkinu gerir
gæfumuninn.
Um efnið þarf í sjálfu sér ekki aö
orðlengja. Ungttr pfltur er orðinn
leiður á að bíða eftir fullorðinsár-
unum og óskar sér þess að vera
orðinn stór. Því miður verður hann -
fyrir því aö mark er tekið á óskinni.
En þó að hann sé orðinn stór vexti
varð hugurinn eftir. Engin skflur
neitt í neinu og hann heldur til New
York til að hugsa ráð sitt. Á meðan
fær hann sér vinnu og að sjálfsögðu
við leikfangagerð. Fljótlega bíður
hans glæstur starfsframi og eldist
pflturinn fljótt.
Það eru engin dýpri sannindi hér
á ferð en allt unnið af þeirri hlýju
og trúmennsku sem þarf til að gera
efni sem þetta að góðri og vandaðri
söluvöru. Eins og áður sagði er
Hanks frábær í aðalhlutverkinu en
einnig er vel skipað í önnur hlut-
verk. Hér er því á ferðinni fyrsta
flokks íjölskylduskemmtun.
-SMJ
Hver fékk hundinn?
WHO GETS THE FRIENDS?
Útgefandi: Steinar
Leikstjóri og framleióandi: Lila Garret
Aóalhlutverk: Jill Claybourgh, James
Farentino. Handrit: Lila Garret og Leigh
Taylor Young.
Bandarisk 1988. öllum leyfð.
Úr því að annað hvert hjónaband
í Bandaríkjunum endar með skfln-
aði er ekki nema von aö þeir geri
öðru hvoru kvikmynd um slík
„vandamál". Sem betur fer fylla
þessar kvikmyndir ekki helm-
ingskvótann.
Myndin segir frá ríku miflistétt-
arpakki sem ákveður að skflja eftir
18 ára sambúð. Það er ekki einfalt
mál, sérstaklega þegar kemur að
þvi að skipta búi og vinum.
Svona hjónauppgjörsmyndir eru
yfirleitt sem hjóm eitt eftir að hafa
séð kanadísku myndina The Dic-
line of the American Empire (í leik-
stjóm Denys Arcand). Sú mynd
týndist að sjálfsögðu eftir stutta
viðdvöl í sölum Laugarásbíós og á
líklega ekki framhaldslíf fyrir
höndum á myndbandamarkaðn-
um.
í sjálfu sér er vel hægt að sitja
yfir þessu skilnaðardrama en held-
ur er gamansemin þunn. Betur
tekst til með persónusköpun sem
verður dálítið lúmsk í höndum
þeirra Claybourgh og Farentino.
En eftir stendur spumingin: Hver
fékk hundinn?
-SMJ
Rónalíf
IRONWEED.
Útgefandi: Bióhöllin.
Leikstjóri: Hector Babenco.
Aðalhlutverk: Jack Nicholson, Meryl
Streep, Caroll Baker og Tom Waits.
Bandarísk, 1987 - Sýningartími 138 mín.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Brasilíski leikstjórinn Hector Ba-
benco vakti mikla athygli þegar
hann kom með mynd sína Kiss of
the Spider Woman fyrir íjórum
árum. William Hurt fékk óskars-
verðlaun fyrir leik sinn í myndinni
og myndin hlaut alls staðar ein-
róma lof.
í Kiss of the Spider Woman fjall-
aði Babenco um tvær ólíkar per-
sónur er höíðu orðið undir í lífs-
baráttunni. í Ironweed íjallar hann
einnig um tvær persónur sem hafa
orðið útundan þótt tilefnið sé mjög
ölíkt. Ironweed er byggð á þekktri
skáldsögu eftir Wilham Kennedy
og gerir höfundur sjálfur kvik-
myndahandritið.
Áðalpersónurnar tvær eru Fran-
cis og Helena. Þau eru það sem al-
menningur mundi kalla róna eða
útigangsfólk. Francis (Jack Nic-
holson) kaus sjálfur að fara á ver-
gang þegar hann missti nýfæddan
son sinn í gólfiö með þeim afleið-
ingum að hann dó.
Hann er þó alltaf með fyrrverandi
heimili sitt í sjónmáli þótt ekki vflji
hann hafa samband við eiginkonu
og böm. Það gerir hann þó eftir
tuttugu og tveggja ára útivist þegar
hann hefur eytt dágóðri stund við
leiði sonar síns.
Helena (Meryl Streep) er fylgi-
kona hans á verganginum. Ekíti er
um jafnskýra persónu að ræða frá
höfundar hendi. Það kemur þó í
ljós að hún er af fínu mflhstéttar-
fólki og hafði verið dágóður píanó-
leikari. Af hverju hún fór á vergang
er einnig óljóst en geðræn vanda-
mál hafa sjálfsagt átt sinn hlut í því.
Francis og Helena hafa verið
saman í níu ár og á þeim tíma hef-
ur myndast með þeim sérstakur
kærleikur. Hið harða rónalíf hefur
þó sett sitt mark á þau. Eftir mikla
drykkju er Francis farinn að sjá
ofsjónir og Helena er orðin líkam-
lega og andlega þjáð.
Ironweed væri ekki mikið fyrir
augað ef ekki kæmi tfl snihdarleik-
ur Jack Nicholson og Meryl Streep
í aðalhlutverkunum. Sagt er að
leikarar séu hrifnir af að leika róna
því að þá geti þeir ofleikið og kom-
ist upp með það. Engu þvílíku er
fyrir að fara hjá Nicholson og Stre-
ep, þau eru alltof góðir leikarar tfl
þess, enda er styrkur þeirra mestur
í atriðum án orða. Innvortis þján-
ing þeirra er það mikil að engin orð
geta lýst því.
Ironweed er virkflega vönduð og
góð kvikmynd. Hún lætur engan
ósnortinn sem á annað borð leggur
sig niður við að horfa á hana. HK
Ákærð fyrir læknisstörf
JESSE
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Glenn Jordan.
Aðalhlutverk: Lee Remick og Scott Wil-
son.
Bandarisk, 1988 - sýningartími 96 mín.
Leyfð öllum aldurshópum.
I Jesse leikur Lee Remick sjúkra-
hðann Jesse sem hefur stundað
læknisstörf í smábæ á afskekktum
stað í Kaliforníu þar sem er 250
kílómetrar í næsta lækni.
Þessi störf hennar hafa farið fyrir
brjóstið á einhverjum bæjarbúan-
um, því að dag einn birtist útsend-
ari heilbrigðiseftirhtsins á lækna-
stofu Jesse, lætur sem hann sé
veikur og fær lyfseðfl fyrir meðul-
um.
Þetta atvik verður tfl þess að
Jesse er ákærð fyrir að stunda
læknastörf í óleyfi og er handtek-
inn. Verður mikið uppistand í smá-
bænum þar sem hún hefur starfað.
Og þegar kemur að réttarhöldun-
um mæta bæjarbúar ahir til aö
styðja við bakið á henni.
Jesse er byggð á sönnum atburð-
um. Gahinn er aðeins sá að myndin
hefur frá htlu öðru en réttarhöld-
um að segja. Reynt er að koma inn
sektarkennd hjá fulltrúa hefl-
brigðiseftirhtsins og æsingi bæj-
arbúa þegar Jesse er handtekin er
gerð góð skil. Sjálf býr Jesse í góðu
hjónabandi þar sem skilningur eig-
inmannsins á störfum hennar
eykst þegar erfiðleikarnir steðja að.
Lee Remick fer vel með hlutverk
Jesse enda þrælvön slíkum hlut-
verkum. Jesse gerð fyrir sjónvarp
og ber þess merki. Atburðarásin
Á fréttavaktinni
SWITCHING CHANNELS
Útgefandi: Bióhöllin.
Leikstjóri: Ted Kotcheff.
Aöalhlutverk: Kathleen Turner, Burt
Reynolds og Christopher Reeve.
Bandarísk, 1988 - sýningartimi 93 min.
Kathleen Turner er þegar henni
tekst upp sérstaklega heillandi
leikkona en hún getur verið jafn-
fráhindrandi þegar miður fer eins
og gerist í Switchin Channels. Hér
leikur hún fréttahaukinn Christy
Coheran sem á erfitt með að gera
upp á mihi vinnu sinnar, þar sem
henni er þrælað út af fyrrverandi
eiginmanni, og nýfundins drauma-
prins sem ekki aðeins er myndar-
legur heldur einnig ríkur.
Persónuleg vandamál Coheran
falla þó í skuggann fyrir harðvít-
ugri baráttu tveggja frambjóðenda
um ríkisstjóraembættið og þar er
öllum brögöum beitt, meðal annars
að flýta opinberri aftöku svo að
mótframbjóðandi geti ekki náöað
fanga einn sem taka á af lífi.
Nokkrir góðir sprettir eru í
Switching Channels sem því miður
eru of fáir tfl að gera myndina að
heilsteyptri gamanmynd.
HK
er frekar hæg en í heild er myndin
hin þægflegasta á að horfa þótt
ekki megi hún vera mínútu lengri.
Konur í
fangelsi
Útgefandi: Háskólabió
Leikstjóri: Bernard Kowalski. Aðalhlut-
verk: Ida Lupino. Lois Nettleton, Jessica
Walter, Belinda Montgomery.
Bandarísk 1971. Bönnuð yngri en 16
ára. 73 mín.
Mflrið geta sumar myndir elst illa
og á það sérstaklega við um þessa
18 ára gömlu bandarísku sjón-
varpsmynd. Má vera að hún hafi
uppfyllt meðaltalskröfur markaðs-
ins á sínum tíma en hún gerir það
greinflega ekki lengur. En íslenski
myndbandamarkaðurinn er óút-
reiknanlegur og hér er hún komin!
Myndin segir frá skilorðsforingja
sem vill rannsaka af eigin raun það
sem gerist innan fangelsismúranna
í kvennafangelsi. Fljótlega missir
hún stjóm á athurðarásinni og
lendir í blóðugum deilum innan
múranna þar sem fangaverðirnir
eru verstir.
Slíkar myndir eru víst best af-
greiddar með klisjukenndum hætti
eöa þannig er alla vega metnaður
þeirra sem þær framleiða. Kannski
að „plotið“ hefði getað staðist ef
handritshöfundur hefði getað ráðið
fram úr því. Það reyndist þó ekki
vera og því fer flest í vaskinn.
-SMJ