Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Side 1
Sjónvarpið sýnir breska heimildarmynd um Sir Laurence Olivier á
sunnudag og mánudag.
Sjónvarp á sunnudag:
í minningu
Oliviers
Með Sir Laurence Olivier er
horfinn af sjónarsviðinu einhver
fremsti leikari Bretlands, og þar
með heimsbyggðarinnar allrar, á
þessari öld. Sir Laurence, sem lést
fyrir nokkrum dögum rúmlega átt-
ræður að aldri, á að baki glæstan
feril, bæði á leiksviði og á hvita
tjaldinu.
Á sunnudagskvöld kl. 22 endur-
sýnir Sjónvarpiö fyrri hluta
breskrar heimildarmyndar um
Olivier til minningar um hinn látna
meistara. Myndin kallast Laurence
Olivier lítur yfir farinn veg. Þar
ræðir Melvyn Bragg við hstamann-
inn um líf hans og starfsferil. Þá
segja ýmsir frægir samferðamenn
frá kynnum sínum af Ohvier,
þ.á.m. Douglas Fairbanks yngri,
leikkonan Peggy Ashcroft, John
Gielgud, rithöfundurinn John Os-
borne og eiginkona Oliviers, leik-
konan Joan Plowright.
í fyrri- hluta myndarinnar lýsir
Sir Laurence æskuárum sínum og
leikferli til ársins 1944. Síoari hluti
myndarinnar, sem var frumsýnd í
Sjónvarpinu í kringum áramótin
1984-85, verður svo sýndur á mánu-
dagskvöld.
Stöð 2 á sunnudag:
Sovétríkin í dag
Fá ríki eru undir jafnmikihi smásjá
fjölmiðlanna um þessar mundir og
Sovétríkin þar sem landsfeður hafa
verið að reyna að koma á umbótum
á öllum sviðum. Fréttir þær sem Is-
lendingar fá austan þaðan í gegnum
sjónvarpstækiö sitt eru allajafna séð-
ar með augum engilsaxneskra frétta-
manna og sérfræðinga sem oft á tíð-
um sjá heiminn í öðru ljósi en við.
Stöð 2 ætlar að gera hér bragarbót
á með tæplega klukkustundar löng-
um þætti sem verður sýndur kl. 17.05
á sunnudag. Þá ætlar hinn víðfórh
fréttamaður, Þórir Guðmundsson, að
segja frá ferð sem hann fór til Sovét-
ríkjanna fyrr á þessu ári. Þátturinn
er samansettur úr stuttum pistlum
sem hafa veriö sýndir í 19:19 en hafa
aldrei sést í heild sinni áður.
Þórir kom víða við á ferðalagi sínu.
Hann segir okkur frá sjálfstæðis-
baráttu Eistlendinga, en í eina tið
töldust þeir og íslendingar til sömu
þjóðar, þ.e. þegar löndin voru undir
dönsku krúnunni. í Kænugarði
heimsækir hann klaustur og ræðir
við ábóta. Rússneska ríkið var stofn-
að í þessari fomu borg og þar er einn-
ig fæðingarstaður rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar. Þá er fylgst með
uppbyggingarstarfi í Leninakan í
Armeníu eftir jarðskjálftana miklu
sem urðu þar.
Hvarvetna sem Þórir fór ræddi
hann við almenna borgara Sovétríkj-
anna og leitaði áhts þeirra á umbóta-
stefnu Gorbatsjovs og félaga í Kreml.
William Holden í hlutverki foringja óaldarflokksins á Stöð 2.
Rás 1 næsta fimmtudag:
Frá Sigurði Fáfnis-
bana til Súpermanns
Stöð 2 á föstudag:
Óaldarflokkurinn
Egill Skallagrímsson er einn mesti
garpur sem uppi hefur verið á ís-
landi. Hvað hefði slikum manni
fundist um afrek nútímahetjunnar
Garps (He-man) ef hann hefði haft
tækifæri til að sjá teiknimyndir um
kappann þegar hann var að alast upp
í Borgarfirðinum? Eiga riddarasögur
miðalda eitthvað sameiginlegt með
teiknimyndasögum samtímans?
Þessum spurningum varpar Ólafur
Angantýsson fram í þætti sem hann
verður með á rás 1 kl. 22.30 næstkom-
andi fimmtudagskvöld, 27. júlí. En
Ólafur gerir meira en að varpa fram
spumingum. í þættinum mun hann
leitast við að greina teiknimyndasög-
urnar og bera þær saman við hetju-
sögur og riddarasagnir miðalda til
að komast að því hvort þetta séu aht
greinar af sama meiði.
Fróðlegar vangaveltur. En hvaö
æth Egill segi? Hvernig skyldi hon-
um líka samanburðurinn? Eitt er
víst, Garpur er ekki skáld, Súper-
mann ekki heldur.
Hvað eiga Egill Skallagrimsson og
Súpermann sameiginlegt? Um það
verður fjallað á rás 1 á fimmtudag
í næstu viku.
Sam Peckinpah gerði marga góða
myndina um dagana, yfirleitt hraðar
og blóði drifnar. Óaldarflokkurinn
er tahn vera sú besta. Hún verður
sýnd á Stöð 2 á fóstudagskvöld.
Áriö 1914 vakna fimm miðaldra
kúrekar upp við vondan draum. Þeir
eru ekki lengur í takt við tímann.
Eins og góðum kúrekum sæmir hafa
þeir lifað samkvæmt gömlum siða-
reglum villta vestursins þar sem
byssan sagði það sem segja þurfti.
Nú eru hins vegar breyttir tímar og
mennimir orðnir að hálfgerðum
geirfuglum.
Fimmmenningamir ákveða að
leggja byssubeltin á hihuna en þó
ekki fyrr en þeir hafa lokið einu stór-
verkefninu til. Nærri landamærum
Texas er miðstöð járnbrautarlesta.
Þar hyggjast þeir komast yfir ráns-
feng sem á að gera þeim kleift að
setjast í helgan stein og lifa áhyggju-
lausu lífi það sem eftir er ævinnar.
Aðalhlutverkin eru leikin af WiU-
iam Holden, Emest Borgnine, Robert
Ryan, Edmund O’Brien og Warren
Oates. Mcdtin segir allt vera fyrsta
flokks í Óaldarflokknum og gefur
henni fjórar stjömur.