Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1989, Síða 1
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Ingrid Jónsdóttir í hlutverkum sínum í leikrit-
inu ísaðar gellur.
Alþýðuleikhúsið:
í saðar gellur
Alþýðuleikhúsið frumsýnir fer-
tugasta og annað verkefni sitt í
Iðnó í kvöld kl. 20.30. Verkið, sem
er eftir breska höfundinn Fred-
erick Harrison og heitir á frummál-
inu Northem Lights, hefur hlotið
íslenska nafnið ísaðar gellur.
í leikritinu segir frá dvöl þriggja
stúlkna frá Hull á Englandi í sjáv-
arþorpi á norðanverðum Vestíjörð-
um. Þær hafa flúið bágt atvinnu-
ástand heima fyrir í von um betri
lífsafkomu og bjartari framtíð á
íslandi. Leikritið snýst síðan um
þann raunveruleika sem við þeim
blasir í fiskvinnu í íslensku sjávar-
þorpi og kynni þeirra af íslending-
um.
ísaðar gellur er óspart kryddað
hispurslausri gamansemi og fá ís-
lendingar sinn skammt ekki síður
en aðrir sem við sögu koma.
Frederick Harrison er innfæddur
Hullbúi og bjó þar til hann hóf nám
í hagfræði við London School of
Economics. Hann stundaði há-
skólakennslu í hagfræði á árunum
1974-1979 en sneri sér þá að skrif-
um og hefur samið ein sjö leikrit
fyrir BBC-útvarpið, auk þriggja
leikverka fyrir leiksvið.
Leikritið ísaðar gellur (Northem
Lights) var frumsýnt í Hull í apríl
síðasthðnum og vakti leikritið
mikla athygli. Hefur sýningin síðan
farið viða um England og notið
mikilla vinsælda, nú síðast á hsta-
hátíðinni í Edinborg.
Leikarar í ísuðum gellum eru
fjórir: Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Ingrid Jónsdóttir, Ása Hlín Svav-
arsdóttir og Halldór Björnsson.
Leikstjóri er Hávar Sigurjónsson.
Eins og fyrr segir er frumsýningin
í kvöld kl. 20.30. Önnur sýning
verður á sunnudagskvöld á sama
tíma.
Allt um lokaumferð
íslandsmótsins
- sjá bls. 23
Á Kjarvalsstöðum á morgun kl. 14
verður opnuð í boði Listasafns
Reykjavíkur sýning á verkum Errós
frá síðasthðnum fjómm árum.
Erró er þekktasti myndhstarmað-
ur þjóðarinnar. Hans er getið í flest-
um bókum sem fjalla um alþjóölega
samtímahst og listtímaritin víðs veg-
ar um heim færa okkur reglulega
fréttir af framgangi meistarans. Erró
hefur verið búsettur í París í meira
en þijátíu ár og er hann að vissu leyti
orðinn hluti af hstheimi stórborgar-
innar.
Erró tileinkaði sér snemma mynd-
gerð popplistarinnar sem hann hefur
kunnað að þróa á einkar persónuleg-
an hátt og þannig markað sér afger-
andi sérstöðu í listasögunni. í verk-
um Errós kemur fram ný frásagnar-
hugmynd sem byggist umfram allt á
ljósmyndatilvísunum og samhrúgun
mynda. En þessi nýja frásögn hefur
síðan ahð af sér ótal nýja möguleika
í myndbyggingu.
Erró eða Guðmundur Guðmunds-
son, eins og hann heitir réttu nafni,
fæddist í Ólafsvík 1932 en ólst upp á
Kirkjubæjarklaustri. Hann lauk
námi i Handiða- og myndhstarskól-
anum og hélt síðan til framhalds-
náms í Noregi. Þaðan lá leiðin til
Flórens. Eftir að hafa dvahö um
.tveggja ára skeið í ísrael tók hann
hvatningu kunningja síns og hélt til
Parísar. Þetta var 1958. Þar hefur
hann haft höfuðstöðvar síðan og
unnið sig upp á við í heimi listarinn-
ar og er í dag bæði eftirsóttur og virt-
ur listmálari sem íslendingar eru
hreyknir af. Mikil eftirspum er eftir
verkum Errós í dag. Hann dvelur til
skiptis í Tælandi, París og á Mall-
orca.
-HK
Erró ásamt Garðari H. Svavarssyni við uppsetningu á sýningunni á Kjar-
valsstöðum.
Kjarvalsstaðir:
Nýleg mynd-
verk eftir Erró
lifum heil - skemmtun gegn skelfingu
Söfnun í húsbyggingasjóð
Áhugahópurinn um bætta um-
ferðarmenningu hefur sett sér það
markmið að þessu sinni að vekja fólk
til umhugsunar um aðstæður þeirra
sem lent hafa í alvarlegum umferðar-
slysum. Því gengst áhugahópurinn
ásamt Stöð 2 og SEM-hópnum, sem
er Samtök endurhæfðra mænu-
skaddaðra, fyrir söfnun um helgina
til þess að aíla fjár í húsbyggingar-
sjóð SEM. Hefur verið sótt um lóð í
Reykjavík fyrir fjölbýlishús sem
hannað er með þarfir þessa fólks í
huga.
Samtök endurhæfðra mænuskadd-
aöra er að stærstum hluta ungt fólk
sem hefur lent í alvarlegumumferð-
arslysum. Slysið hefur kippt undan
því fótunum í eiginlegri merkingu
þar sem það er bundið hjólastól um
aldur og ævi.
Þjóðfélagiö hefur lagt í mikinn
kostnað til þess að bjarga þessu unga
fólki og hjálpa því á alla vegu með
þeirri bestu heilbrigðisþjónustu sem
völ er á og góðri endurhæfingu. Það
er því sorgleg staðreynd að þegar að
endapunktinum er komið, húsnæði
sem hentar mænusködduðu fólki þar
sem það getur lifað lífinu eins og
hver annar, þá er allt stopp. Nokkrar
íbúðir eru svo sáralítið miðað við það
sem á undan er gengið.
Söfnunin, sem hlotið hefur heitið
Lifum heil - skemmtun gegn skelf-
ingu, fer fram í beinni sjónvarpsút-
sendingu á Stöð 2 sunnudagskvöldið
17. september. Um er að ræða þriggja
tíma dagskrá sem hefst kl. 21 á Hótel
íslandi þar sem margir af þekktustu
listamönnum þjóðarinnar leggja sitt
af mörkum til að hvetja landsmenn
til að ljúka verkinu sem þegar er
hafið, það er að þessi fórnarlömb
nútímamenningar fái sérhannað
húsnæði.
Söfnunin fer þannig fram að áhorf-
endur geta hringt í síma 680000 og
gefið peninga eöa lagt beint inn á
póstgíróreikning söfnunarinnar sem
er númer 243000. Svarað verður í
símanúmer söfnunarinnar frá og
með deginum í dag. En á sunnudags-
kvöldið sitja tuttugu og fiórir í senn
við símakerfið sem veröur á Hótel
íslandi og taka við framlögum.
Það er von aðstandenda söfnunar-
innar Lifum heil að þjóðin taki viö
sér og hjálpi SEM-urum að hjálpa sér
sjálfir.
Garðaprýðirall '89:
Keppt til styrktar SEM-hópnum
Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavík-
ur mun á sunnudaginn standa fyrir
sprettralli í nágrenni höfuðborgar-
innar. Keppnin, sem mun heita
Garðaprýðirall, er haldin í fiáröflun-
arskyni fyrir söfnum sem Samtök
áhugafólks um bætta umferðar-
menningu stendur fyrir til styrktar
húsnæðisbyggingu fyrir SEM-hóp-
inn sem er Samtök endurhæfðra
mænuskaddaðra.
Bifreiðaklúbburinn hefur samið
við Shell, Bílaleigu Akureyrar og
ýmsa fleiri um að gefa þjónustu sína
þannig að þátttökugjöld og styrkur
Garðaprýði renna óskipt til söfnun-
arinnar.
Keppnin fer, eins og áöur sagði,
fram í nágrenni höfuðborgarinnar
þannig að auðvelt verður fyrir áhorf-
enduraðfylgjastmeð. -HK