Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1989, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1989, Síða 5
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1989. ið var sýndur við miklar vinsæidir síðastlið- úrik Haraldsson, Júlíus Brjánsson og Edda ójan: jgatan - •nesið valdsdóttir, Bríet Héöinsdóttir, Rúrik Har- aldsson, Kjartan Bjargmundsson og Bessi Bjarnason. Höfundar gamanleiksins eru Edda Björgvinsdóttir, Júlíus Brjánsson og Gísli Rúnar Jónsson sem jafnframt er leik- stjóri. Gríniöjan býður starfshópum, félaga- samtökum og stórfjölskyldum afslátt á gamanleikinn. Eins og fyrr segir er fyrsta sýningin á nýju leikári í kvöld. Önnur sýning er á morgun og fyrirhugaðar eru þrjár sýningar um þarnæstu helgi. íslenska óperan: Píanósnillingurinn Dmitri Alexeev Rússneski píanósnilhngurinn Dmitri Alexeev mun heíja vetrar- starf Tónlistarfélagsins með tón- leikum í íslensku óperunni næst- komandi mánudag kl. 20.30. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Alexeev kemur til landsins. Heim- sókn hans 1987 og tónleikar hans með Sinfóníuhljómsveit íslands og fyrir Tónlistarfélagið eru öllum ógleymanlegir sem heyrðu. Á tónleikunum á mánudags- kvöldið leikm- hann Sónötu í a- moll K 310 eftir Mozart, Camival eftir Schumann og Sónötu í h-moll op. 58 eftir Chopin. Á vegum Tónlistarfélagsins verða haldnir sex tónleikar í vetur. Auk tónleikanna á mánudag mun frnnska sópransöngkonan Margar- eta Haverinen halda tónleika, Paul Zukofsky og Anna Guðný Guð- munsdsdóttir halda tónleika í jan- úar, einnig munu Einar Jóhannes- son og Phihp Jenkins flytja verk fyrir klarínett og píanó í janúar. í mars kemur mezzosópransöng- konana Rannveig Bragadóttir heim og heldur tónleika og að lokum mun finnski sellóleikarinn Arto Noras leika ásamt Gísla Magnús- syni. Aflir tönleikarnir verða í ís- lensku óperunni. Rússneski píanósnillingurinn Dmitri Alexeev. Nýhöfn: Málverk og höggmyndir Páll Guðmundsson frá Húsafelli opnar sýningu í Listasalnum Ný- höfn, Hafnarstræti 18, laugardag- inn 16. september kl. 14. Á sýning- unni eru málverk af fólki og högg- myndir unnar í grjót úr Húsafelli. Páll er fæddur i Reykjavík 1959. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann 1977-81. Einnig var hann við nám í Listaskólanum í Köln hjá prófessor Burgeff. Þetta er ellefta einkasýning Páls og hann hefur einnig tekið þátt í samsýn- ingum. Sýningin, sem er sölusýning, verður opin virka daga frá kl. 10-18 og kl. 14-18 um helgar. Henni lýkur 4. október. fatlaðra í Reykjavík, Iþróttafélagið Ösp og Trimmklúbbur Eddu Bergmann ákveðið að efna til sameiginlegs trimm- dags sunnudaginn 17. september nk. kl. 14. Þó svo trimmdagurinn sé í umsjón ofangreindra aöila eru allir velkomnir. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Hana nú i Kópavogi verður á morgun, laugardag- inn 16. september. Lagt af stað frá Digra- nesvegi 12 kl. 10. Markmið göngunnar er: samvera, súrefni og hreyfmg. Verið með í bæjarröltinu. Nýlagað molakaffi. Doktorsvörn Laugardaginn 16. september 1989 fer fram doktorsvöm við læknadeild Há- skóla íslands. Hallgrímur Magnússon læknir ver doktorsritgerð sína, sem iæknadeild hafði áöur metið hæfa til doktorsprófs. Ritgerðin fjaliar um far- aldsfræðilegar rannsóknir á geðsjúk- dómum aldraöra. Heiti ritgerðarinnar er: „The Mental Health of Octogenarians in Iceland. An Epidemiological Study". Andmælendur af hálfu læknadeildar verða Erik Strömgren, prófessor við há- skólann i Árósum, og Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir. Prófessor Helgi Valdimarsson, varadeildarforseti lækna- deildar, stjómar athöfninni. Doktors- vömin fer fram i Odda, stofu 101, og hefst kl. 14. Öllum er heimili aðgangur. Afmæli Kvæðamanna- félagsins Iðunnar Kvæðamannafélagið Iðunn minnist 60 ára afmælis félagsins með hátíðarsam- komu í samkomuhúsi Garðabæjar, Garðaholti, í dag, fóstudag 15. september. Samkoman hefst kl. 20 með borðhaldi. Fjölbreytt dagskrá. Dansað til kl. 2. Ættarmót niðja Ama Einarssonar og Þómnnar Ól- afsdóttur, sem bjuggu að Kirkjulæk í Fljótshhð, verður haldið laugardaginn 16. september í félagsheimili Fóstbræðra, Langholtsvegi 109-111. Hjólreiðakeppni í Hafnarfirði Hjólreiöakeppni JC Hafnarflarðar og Hjólreiðafélags Reykjavíkur fer fram á götum Hafnarfjarðar sunnudaginn 17. september. Keppnin hefst við Lækjar-' skóla kl. 10 f.h. Keppt verður i þremur ílokkum: 1. keppnisílokki, 19 km. 2. al- mennum flokki 14 ára og eldri, 10 km. 3. upglingailokki, 13 ára og yngri, 5,5 km. Hjólreiðamenn í keppnisflokki munu keppa um Iðnaðarbankaskjöldinn en sá skjöldur er farandgripur. Auk þess fá þrír efstu menn í hverjum flokki verð- launapeninga. Eftir keppnina munu keppendur og þeir sem hafa áhuga á hjóla hring í bænum og enda síðan við Lækjar- skóla þar sem verðlaunaafhending fer fram. JC Hafnarfjörður fer þess á leit við ökumenn að þeir sýni keppendum fyllstu tilhtssemi. Smáskáldsaga eftir Guðmund Björgvinsson Bókaútgáfan Lífsmark hefur sent frá sér smáskáldsöguna „Að vera eða hafa verið, þúsundasti og annar dagurinn í lífi Hah- dórs Guðbrandssonar" eftir Guðmund Björgvinsson. Þetta er fimmta bók höf- undar. Smáskáldsagan er beint framhald annarrar skáldsögu höfundar, „Nætur- flug í sjöunda himni, þúsund og einn dagur í lífi Hahdórs Guðbrandssonar". Bókin verður fyrst um sinn til sölu hjá höfundi, í strætinu á dagirrn en á öldur- húsum um nætur. Frá bókaútgáfunni Lífsmarki eru væntanlegar tvær aðrar bækur í haust, báðar eftir Guðmund Björgvinsson. í fyrsta lagi barnabókin „Sjóferðin mikla“ og í ööru lagi skáldsag-. an „Burt, burt“. íslandsdeild Amnesty International er 15 ára í dag, 16. september. Af þvi th- efni verður hóf á Gauki á Stöng og hefst það kl. 18. Þar verður stutt dagskrá í tah og tónum og sameiginlegt borðhald. Hóp- matseðih á hóflegu verði. Allir félagar í samtökunum eru hvattir th að mæta. Réttarkaffi í Kópaseli Árleg kaffisala Lionsklúbbs Kópavogs verður sunnudaginn 7. september í Kópa- seh en þá er réttardagur í Lögbergsrétt (Fossvaharétt). Ahur ágóði rennur th líknarmála. Spilakvöld í Hafnarfirði Um 40 ára skeið hafa stúkurnar í Hafnar- firði haldið spilakvöld í Góðtemplarahús- inu þar í bæ. Á þessu hausti heflast þau með félagsvist fimmtudaginn 21. sept- ember kl. 20.30 og verður síðan sphað annan hvern fimmtudag. Allir eru vel- komnir á sphakvöldin. 21 Ferðalög Haustferð Jöklarannsókna- félags Islands Hin árlega „13. september ferð“ félagsins í Jökulheima verður farin nú um helg- ina, 16.-17. september. Lagt verður af stað í kvöld kl. 20 frá Guðmundi Jónassyni hf., austurdyr. Þátttaka tilkynnist th Stef- áns Bjamasonar, vs. 686125, hs. 37392, eða Ásvalds Guðmundssonar, vs. 686312. Útivistarferðir Helgarferðir 15.-17. sept. 1. Þórsmörk - Goðaland. Gist í Útivist- arskálunum í Básum. Gönguferðir við allra hæfi. 2. Veiðivötn - Jökulheimar. Gist í skála. Gönguferöir um tilkomumikið landslag. Gróðurvinjar, fjallavötn og eldstöðvar. Sunnudagur 17. sept. kl. 10.30: Leggjabrjótur - Botnsdalur. Landnámsgönguferð. Gengið verður frá Svartagih í Þingvahasveit um þessa skemmthegu þjóðleið niður í Botnsdal í Hvalfirði. Ferðin sem margir hafa beðið I eftir. Verð kr. 1.000. Kl. 13: Botnsdalur - Glymur. Haustht- imir að byrja. Gengið aö hæsta fossi landsins og nágrenni. Létt ganga. Verð 1.000, frítt f. böm m. fuhorðnum. Eins dags ferð í Þórsmörk kl. 8. Stansað í Mörkinnl 3-4 klst. Brottfór frá BSÍ. Sunnudagur 17. sept. kl. 13.30: Tvær hjólreiðaferðir - nýjung i ferðastarfseminni: Mæting við Árbæjarsafn kl. 13.30. Tveir möguleikar: 1. Heiðmerkurhringurinn. Shungapollur - ^raunslóð - Vífhsstaða- hhð. Að í Gjárétt. Styttri og léttari ferð. 2. Bláíjallahringurinn. Shungapohur - Bláfjahavegur. Hjólaö ofan byggðar. Lengri ferð. Ferðanefnd og stjóm Utivist- ar munu fylgja hjólreiðamönnunum úr hlaöi trá Árbæ á eftirminnilegan hátt. Reyndir hjólreiðamenn við fararstjóm. Viðurkenning veitt fyrir þátttöku. Takið þátt í fyrstu hjólreiðaferðunum. Kynn- ingarverð kr. 2.000. Nánari upplýsingar á skrifst. Símar: 14606 og 23732. Munið hausthta- og grhlveisluferðina í Þórsmörk 22.-24. september. Ferðafélag íslands Helgarferðir 16.-17. sept. 1. Emstrur - Þórsmörk kl. 8. Ekiö um Fljótshhö inn á Emstrur. Þar verður nýja brúin á Emstmá tekin formlega í notkun. Þeim sem vhja gefst kostur á að ganga í Þórsmörk (ca 20 km). Hinir fara með bh- um th Þórsmerkur. 2. Kl. 8: Þórsmörk. Þetta er fyrirhuguð fjölskylduferð þar sem boðiö verður upp á léttar gönguferðir, ratleik, thsögn í meðferð ljósmyndavéla og örstutt nám- skeið í notkun brodda og ísaxa. Um kvöldið veröur svo kvöldvaka. Sunnudagur 17. sept. 1. Kl. 10.30: Hrafnabjörg (765 m y.h.). Gengið frá Gjábakkavegi á fjallið. Farar- stjóri Jón Viðar Sigm-ðsson. Verð kr. 1.000, gr. v/bílinn. 2. Þingvellir - þjóðgarðurinn. Ekið á Þingvöh og gengið um þjóðgarðinn. Nú ættu aö vera komnir hausthtir á Þing- vöhum. Verð kr. 1.000, gr. við bhinn. Frítt fyrir böm og unglinga, 15 ára og yngri. Ferðimar eru farnar frá Umferðarmið- stöðinni að austanverðu. Allmikiö af pskhafatnaði úr sæluhúsunum á skrif- stofunni. Sjóferðir um helgina Náttúruverndarfélag Suðvesturlands og Eyjaferðir standa fyrir sjóferðum á laug- ardag og sunnudag með farþegabátnum Hafrúnu. Á laugardag, 16. sept., kl. 14 verður farin skoðunarferð um ahan Kohaflörð, milh Kjalarness og Gróttut- anga. Skemmtheg útsýnisferð. Kl. 17 verður farið út í Þerney og gengið um eyna með Guövarði Sigurðssyni. Kl. 21 verður boðið upp á siglingu í tunglskini um Sundin. Á sunnudag, 17. sept., kl. 10 verður farin náttúruskoðunarferð um Sundin og að öhum eyjunum á Kohafirði undir leiðsögn Konráðs Þórissonar sjáv- arlíffræðings. Kl. 14 verður siglt út En- geyjarsund og suður í Skerjaflörð. Sögu- ferð og ömefnaferð undir leiðsögn Páls Líndal. Einstakt útsýni. Kl. 17 verður náttúruskoðunar- og söguferð út í Engey. Björgunardehdin Ingólfur aðstoðar við flutning á fólki mhh lands og eyja. Farið verður í ahar ferðimar frá Grófar- bryggju. Öhum er heimh þátttaka í ferð- unum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.