Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1989, Page 3
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBÉR 1989.
BMW: Marka stefmma
hreinn kjörgripur - lítill bíli á lágu
verði. Þrátt fyrir heimskreppuna
seldi BMW 5.390 smábfla árið 1929
og 6.792 árið 1930.
Popp þóttist alltaf viss um að úr
kreppunni myndi rætast. Þá myndi
fólkið vilja fá glæsilegri bfla. Fyrsti
sex strokka BMW-inn hét BMW 303.
Hann var með 1182 cc vél, 30 hestöfl.
Næst kom 319/1 og svo koll af kofli.
Topptýpan varð 328:1971 cc, 80 hest-
öfl. 328 var hraðskreiðasti verk-
smiðjuframleiddi bflflnn í heiminum
á þeim tíma. Aðeins 426 bflar voru
framleiddir og stóð aldrei til að þeir
yrðu fleiri.
En þegar hér vgr komið sögu voru
enn komnir nýir tímar. Heimsstyrj-
öldin síðari var hafin.
Stríð fram undan
Þrátt fyrir framleiðslu bíla og mót-
orhjóla var BMW fyrst og fremst
verksmiðja fyrir flugvélamótora.
Stjóm Hitlers tók að kynda undir
vopnaframleiðslu þegar árið 1934.
Flugvélahreyflar voru augljóslega
verulegur þáttur í hergagnafram-
leiðslu. Framleiðsla var líka aukin á
mótorhjólum með hliðarvögnum
þegar nær dró stríðinu. Og það voru
vélbyssur í hliðarvögnunum. Ekki
fór milli mála að það stefndi í stríð.
Aðeins bflaframleiðslan dróst sam-
an og það verulega. En Popp vildi
lentu BMW-verksmiðjumar í Eis-
enach - áður Wartburg - í höndum
Sovétmanna og þannig áfram hjá
leppríki þeirra, Austur-Þýskalandi,
sem enn framleiðir bíla xmdir merki
Wartburg.
Afturmótorhjól
og bílar
BMW tókst þó að skrimta. Árið
1948 kom fyrsta BMW-mótorhjólið
eftir striðið, R 24, með eins strokks
vél, 250 cc. 1950 kom nýtt tveggja
strokka hjól, R 51/2, og skömmu síðar
590 cc hjólið R 67. Fyrsti bfllinn kom
1949, BMW 331, tveggja sæta með 600
cc mótorhjólamótor.
Jafnhliða var haldið áfram bfla-
.framleiðslu af veikum mætti. 1951
kom BMW 501 en seldist lítið. Á bíla-
sýningunni í Frankfurt áriö 1955
vöktu BMW 503 og 507 mikla at-
hygli. Þessir bflar vora þó langtum
of dýrir til að vera á færi venjulegs
fólks og vora aðeins framleiddir fáir
bflar af hvorri gerð, 252 af 503 og 413
af507.
Samhflða kom afturkippur í söluna
á mótorhjólum. Árið 1954 framleiddi
BMW 30 þúsund mótorhjól en árið
1956 var salan komin niður í tæpan
helming af þeirri tölu og 1957 seldust
ekki nema 5.400 hjól. Örþrifaráð var
að semja við ítalska fyrirtækið Iso
ISETTA, „yfirbyggt mótorhjól“ -1956-1962.
ekki hverfa algjörlega frá fram-
leiðslu sem hæfði friðartímum og
neitaðj að hætta að hugsa um bfla-
ffamleiðslu og sinna henni. „Stríðið
getur ekki staðið að eilífu," sagði
hann. Þessi þrákelkni var nærri orð-
in honum dýrkeypt. Nasistar hótuðu
árið 1942 að setja hann í einangrun-
arbúðir og hröktu hann frá BMW
eftir 25 ár í embætti stjómarfor-
manns.
í stríðslokin var BMW úrskurðuð
hergagnaverksmiðja. Sem slíkrar
voru eigur hennar í raun lagðar und-
ir annað eða fluttar burtu til hinna
ýmsu landa sigurvegaranna. T.d.
um að fá að ffamleiða hugarsmíð
þess, Isetta.
Þetta var ein af þessum svokölluðu
„kúpum" sem nutu nokkurra vm-
sælda í Evrópu fyrst eftir stríðið. ís-
lendingar muna sennilega einna
helst eftir Messerschmidt-„kúpunni“
sem sást hér á götunum skamma
hríð á sjötta áratugnum. „Kúpur“
vora nflög litlar, tveggja manna, að-
eins á þremur litlum hjólum, með
litlum vélum, gjaman mótorhjóla-
vélum. Isettan var þar að auki merki-
leg fyrir það að hún opnaðist að
framan og þá lagðist stýrisstöngin
fram og stýrið með svo ökumaðurinn
Nýi tíminn: BMW M3, blæjusportbíll.
Tíundi áratugurinn: BMW 730.
BOar
BMW 321-1939-1941.
BMW 303-1933-1934.
ætti hægara með að smeygja sér í
ekilssætið. í Isettuna vom notaðar
250 og 300 cc mótorhjólavélar sem
eyddu aðeins 5,5 lítrum á hundrað
kflómetrana sem þá taldist mjög lítil
eyðsla. Hámarkshraði var 85
km/klst.
Upp á líf og dauða _
Nú kom Denzel, umboðsmaður í
Vínarborg, með drög að alveg nýjum
bfl sem hann hafði teiknað með að-
stoð Michelottis. Þetta var BMW 700,
knúinn tveggja strokka mótorhjóla-
vél, 697 cc, 32 til 40 hestöfl eftir út-
færslum. Áhrifin frá Volkswagen-
bjöllunni leyndu sér ekki, enda hafði
hún slegið rækilega í gegn þegar hér
var komið sögu. BMW 700 er eini
bfllinn sem BMW hefur framleitt
með vélinni aftur í (Isetta taldist að-
eins yfirbyggt mótorhjól). BMW 700
kom á götima í ágúst 1959 og áður
en ffamleiðslu var hætt árið 1965
höfðu selst nærri 320 þúsund bflar í
Evrópu og Ameríku.
Það leyndi sér ekki að undir lok
sjötta áratugarins höfðu þáverandi
forráðamenn BMW misst trúna á
bláhvíta merkið sitt. Svo að segja
jafnhliða því að BMW 700 kom ffam
afskrifuðu þeir kostnaðinn við þróun
hans, 13,5 mflljónir marka. Þegarþar
bættist við 1,5 milljón marka rekstr-
artap var það nærri helmingur af
höfuðstóli fyrirtækisins. Fyrirtækið
var að leggja upp laupana. Þáverandi
ráðamenn lögðu á ráðin um að selja
fyrirtækið bönkum og Mercedes
Benz en Denzel tókst að koma í veg
fýrir það. Þá sögðu ráðamenn fyrir-
tækisins af sér og enn leit helst út
fyrir að það myndi sofna svefninum
langa. Þetta var barátta upp á líf og
dauða.
Það var á þessum punkti, í upphafi
árs 1960, sem Herbert Quand kom til
skjalanna. Quand var auðugur kaup-
sýslumaður (Varta rafgeymar, „of-
urkraftur, ótrúleg ending") og keypti
53% hlutafjár í fyrirtækinu Bayer-
ische Motoren Werke samfara end-
urskipulagningu þess. Quand lét sér
ekki nægja að eiga hlut heldur tók
hann virkan þátt í uppbyggingu fyr-
irtækisins. Hann er nú látinn fýrir
nokkrum árum en dóttir hans, Jo-
hanna Quand, heldur eignarhlutn-
um í BMW.
Borgward yfirtekinn
Borgward gafst upp árið 1961. Það-
an fengu aðrir bflaffamleiðendur
ekki aðeins framleiðslutæki, úrvals
fagfólk og sérfræðinga á flestum
sviðum heldur urðu viöskiptavinir
Borgward nú að leita á nýjar slóðir.
Þetta tómarúm fyllti BMW með 1500
bflnum árið 1962. Þetta var stór fólks-
bfll sem seldist strax vel þrátt fyrir
nokkra bamasjúkdóma. Ári seinna
kom BMW 1800: sama boddí með
öflugra og endurbættu gangverki. Á
tveimur áram seldust rúmlega 160
þúsund eintök af 1800.
Umskiptin vora líka snögg þegar
tfl skjalanna vora komnir snjallir
menn með trú á það sem þeir voru
að gera. Þegar árið 1963, á þriðja ári
eftir endurskipulagninguna, var
hagnaður af rekstrinum 3,82 mflljón-
ir marka og hluthafarnir fengu 6%
arð.
Glas yfirtekin
Um miðjan sjöunda áratuginn lenti
Glas-verksmiðjan í Dingolfing í
kröggum. Hans Glas GmbH hafði náð
vissri velgengni með framleiðslu á
Goggo „vespu“-mótorhjólum og smá-
bflnum Goggomobil. Þegar farið var
út í að framleiða stærri bíl lenti þó í
óefni. BMW yfirtók Glas GmbH og
aðstöðuna í Dingolfing. Við það jókst
framleiðslugeta BMW og veitti ekki
af.
Þegar hér var komið sögu var „5-
línan“ svokallaða komin fram í dags-
ljósið, fyrsti bfllinn úr langtímaáætl-
un sem enn er við lýði. „3-línan“ kom
1973 og „7-línan“ 1977. Að stofni til
eru þessar þijár línur enn megin-
uppistaðan í framleiðslu BMW með
eðlilegum breytingum og endurbót-
um. Þar fyrir utan era svo sérstakir
sportbflar og sportútgáfur megin-
„línanna" þriggja.
16. stærsti
bílaframleiðandinn
Að stærðinni til er BMW miðlungs
bílaframleiðandi á heimsvisu, sá 16.
talið ofan frá. i Þýskalandi er fyrir-
tækið 12. stærsta iðnfyrirtækið. Hins
vegar er BMW næststærsti vinnu-
veitandi í Miinchen og sá stærsti í
Neðra-Bæjaralandi. En verksmiðj-
umar eiga sinn trygga hóp viðskipta-
vina og framleiða bíla sína af metn-
aði. Forráðamenn fyrirtækisins
leggja mikið upp úr því að vera á
undan. „Við fylgjum ekki straumn-
um heldur mörkum stefnuna,“ segja
þeir.
Rauði þráðurinn í gegnum fram-
leiðsluna er fjölskylduyfirbragð bíl-
anna: að þeir séu í grandvallaratrið-
um hentugir og notadrjúgir brúks-
bílar til hversdagsnota þótt sumir
þeirra séu meiri gæðingar en aðrir.
Útlit hverrar „línu“ er að stofni til
eins frá bíl tfl bfls þannig að ekki ligg-
ur endilega í augum uppi hvaða bún-
aður er í hverjum bfl. Enda á ekki
að skipta máh hvort kaupandinn
notar íburðarminnsta bfl „línunnar"
með aflminnstu vélinni eða er alveg
á hinum endanum - hann á að geta
treyst því að hann hefur í höndunum
traustan bfl með góða og skemmti-
lega aksturseiginleika.
S.H.H.
Fram...
í fýrsta
sæti
Eitt mesta síu-
úrval landsins