Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1990, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1990, Side 7
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990. 23 íþróttir helgarinnar: íslandsmótið í innanhúss- knattspymu á sunnudag - fjórir leikir 1 bikarkeppni KKÍ Körfuboltamenn veröa í aðal- hlutverki um þessa helgi í íþrótta- hfinu hér innanlands um helgina. Þá fara fram fjórir spennandi leikir í bikarkeppni Körfuknattleikssam- bandsins. Sem kunnugt er hefur verið gert hlé á 1. deildar keppn- inni í handknattleik fram yfir heimsmeistarakeppnina í Tékkó- slóvakíu. Bikarleikirnir íjórir í körfunni eru á dagskránni á sunnudaginn. Klukkan íjögur leika lið Þórs frá Akureyri og Tindastóls frá Sauðár- króki og fer leikurinn fram á Akur- eyri. Verður örugglega hart barist enda nágrannar á ferð og erkifjend- ur. • Stórleikur verður í Valsheim- ilinu á sunnudag klukkan 20.00 en þá taka Valsmenn á móti Haukum. • Tvö Suðurnesjalið leiða saman hesta sína á sunnudag en þá leika Keflvíkingar gegn Reynismönnum. • Loks taka Njarðvíkingar á móti 1. deildar liði ÍS í Njarðvík og hefst leikur liðanna klukkan íjög- ur. • Leikið er heima og heiman í bikarkeppninni og síðari leikir hð- anna eru á dagskrá þann 1. febrúar. Blak íslandsmótið í blaki heldur áfram um helgina og verða nokkrir leikir í 1. deild karla og kvenna. í 1. deild karla leika lið KA og ÍS klukkan 14.00 og verður þar um slag toppliða að ræða. Á sama tíma leika í Hagaskóla lið Þróttar og Fram. • í 1. deild kvenna er einn leikur á dagskrá en þá leika hð KA og ÍS á Akureyri og er leikurinn á dag- skrá strax að karlaleiknum lokn- um, um klukkan 15.15. Knattspyrna innanhúss Mikið verður um að vera hjá knattspyrnumönnum um helgina en þá ráðast úrslit í 1. deild karla í innanhússknattspyrnu. Keppnin í 1. deild hefst í Laugardalshölhnni á sunnudaginn og henni lýkur sama dag. Á laugardag verður leik- ið í 4. deild og þá fara einnig fram úrslitaleikir í kvennaflokki. íþróttir - íþróttir Jonathan Bow, bandaríski leikmaðurinn í liði Hauka, sést hér í baráttu gegn ÍR-ingum en á sunnudag leika Haukar gegn Val í Valsheimilinu í 16 liða úrslitum bikarkeppni KKÍ. DV-mynd S Sýningar Art-Hún, Stangarhyl 7, Reykjavík Að Stangarhyl 7 eru sýningarsalur og vinnustofur. Þar eru til sýnis og sölu olíu- málverk, pastelmyndir, grafik og ýmsir leirmunir eftir myndlistarmennina Erlu B. Axelsdóttur, Helgu Ármanns, Elín- borgu Guðmundsdóttur, Margréti Salome Gunnarsdóttur og Sigrúnu Gunnarsdóttur. Opið alla virka daga kl. 13- 18. Árbæjarsafn, sími 84412 Opið eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 84412. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 í safni Ásgríms stendur yfir sýning á myndum Ásgríms frá Þingvöllum. Á sýn- ingunni eru 25 verk, aðallega vatnslita- myndir, en einnig nokkur olíumálverk. Sýningin stendur fram í febrúar og er opin um helgar og á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13.30-16. FÍM-salurinn, Garðastræti Samsýning félagsmanna stendur yfir í FÍM-salnum og galleríinu. Opið frá kl. 14- 18 virka daga. Gallerí Borg, Pósthússtræti 9 Sýning á, verkum „gömlu meistar- anna“. Öll verkin eru til sölu. í Grafík-gallerí Borg, Austurstræti 10, er nú blandað upphengi. Grafik-myndir eftir um það bil 50 höfunda, htlar vatns- .. Uta- og pastelmyndir og stærri oliumál- verk eftir marga af kunnustu listamönn- um þjóðarinnar. Gallerí „einn-einn“, Skólavörðustíg 4a Samsýning hstamanna af yngri kynslóð- inni. Opiö daglega kl. 14-18. Gallerí List, Skipholti 50 Til sölu verk eftir þekkta íslenska hsta- menn. Opið á afgreiðslutíma verslana. J. Hinriksson, Maritime Museum, Súðarvogi 4 Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku- daga, fimmtudaga, fóstudaga og laugar- daga. Kjarvalsstaðir v/Miklatún Á morgun verða opnaðar þrjár sýningar á Kjarvalsstöðum. í vestursal opnar Þor- lákur Kristinsson (Tolli) sýningu á ohu- málverkum. í vesturforsal opnar Guðný Magnúsdóttir sýningu á leirmunum. í austurforsal opnar Bragi Þór Jósefsson sýningu á ljósmyndum. í austursal er sýningin „Kjarval og landið", verk í eigu Reykjavíkurborgar. Kjarvalsstaðir eru opnir frá kl. 11-18 daglega og er veitinga- búðin opin á sama tima. Listasafn ASÍ, v/Grensásveg Þar stendur yfir sýning á verkum Sigur- jóns Jóhannssonar leikmyndateiknara og málara. Sigurjón á að baki langan hst- feril, fyrst sem málari, síðan sem leik- myndateiknari hjá Þjóðleikhúsinu en þar var hann í meira en 10 ár starfandi sem yfirleikmyndateiknari. Sýningin er opin virka daga kl. 16-20 og um helgar kl. 14-20. Listasafn Einars Jónssonar er opið alla daga kl. 13.30-16 nema mánu- daga. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega kl. 11-17. Katel, Laugavegi 20b (Klapparstígsmegin) Til sölu eru verk eftir innlenda og er- lenda listamenn, málverk, grafík og leir- munir. Sýning í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opin daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri listamenn þjóöarinnar. Að- gangur að safninu er ókeypis. Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7 Mynd mánaðarins heitir „Mynd“ og er eftir Gunnar Örn Gunnarsson. Leiðsögn í fylgd sérfræðings er á fimmtudögum kl. 13.30-13.45. Safnast er saman í and- dyri safnsins og er leiðsögnin öllum opin og ókeypis. Sýning á íslenskri myndhst 1945-1989 í eigu safnsins stendur nú yfir í öllum sýn- ingarsölum. Almenn leiðsögn um þá sýn- ingu er á sunnudögum kl. 15. Listasafniö er opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18. Veitingastofa safnsins er opin á sama tíma. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70 Þar stendur yfir sýning á verkum er Sig- uijón gerði á árunum 1960-62. Þetta eru aðahega verk úr járni. Þá eru einnig sýnd aðfóng og gjafir sem safninu hafa borist undanfarin ár, þar á meðal myndir frá árunum 1936-46 sem hafa verið í einka- eign í Danmörku. Sýningin, sem mun standa uppi í vetur, er opin laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 og öll þriðjudags- kvöld kl. 20-22. Norræna húsið v/Hringbraut Þar stendur yfir sýning á ljósmyndum eftir Bruno Ehrs. Á sýningunni eru ljós- myndir af höggmyndum eftir Einar Jóns- son, íslandi, Rudolph Tegner, Danmörku, Gustav Vigeland, Noregi, Wáinö Aaltoen, Finnlandi, og Carl Milles, Svíþjóð. Bruno hefur haldið nokkrar einkasýningar og sýning hans „Stokkhólmsröðin" var í Norræna húsinu 1988. Sýningin stendur til 11. febrúar. Þá stendur einnig yfir sýn- ing á málverkum Péturs Hahdórssonar og lýkur þeirri sýningu á sunnudags- kvöld. Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Guðrún Einarsdóttir opnar málverka- sýningu í Nýhöfn, laugardaginn 27. jan- úar kl. 14-16. Á sýningunni verða olíu- málverk unnin á sl. ári. Þetta er önnur einkasýningGuðrúnar. Sýningin stendur th 14. febrúar. Hún er opin virka daga kl. 10-18 og um helgar kl. 14-18. Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8, Hafnarfírði, s. 52502 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18 eða eftir nánara samkomulagi í síma 52502. Póst- og símaminjasafnið, Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. SPRON Álfabakka 14, Sunnudaginn 28. janúar nk. kl. 14-17 mun Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis opna sýningu á múrristum eftir Gunn- stein Gíslason í útibúinu, Álfabakka 14, Breiðholti. Gunnsteinn heur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í Úölda samsýninga. Sýningin mun standa yfir th 27. aprh nk. og verður opin frá mánudegi th fóstudags kl. 9.15-16. Sýn- ingin er sölusýning. Vinnustofa Ríkeyjar, Hverfisgötu Þar eru til sýnis og sölu postulínslág- myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslunartima þriðjudaga, mið- vikudaga, fimmtudaga og fóstudaga og á laugardögum kl. 10-16. Þjóðminjasafnið Safnið er opið aha daga nema mánudaga kl. 11-16. Myntsafnið á Akureyri, Aðalstræti 58, s. 24162 Opið er kl. 13.30-17 alla daga vikunnar. Listkynning á Akureyri Menningarsamtök Norðlendinga og Al- þýðubankinn hf. kynna að þessu sinni hstakonuna Rut Hansen. Á kynningunni eru 9 málverk, unnin með ohu á striga, og eru 2 verkanna frá 1985 en önnur frá árinu 1989. Kynningin er í útibúi Al- þýðubankans hf. á Akureyri, Skipagötu 13, og er opin á afgreiðslutíma. Henni lýkur 2. febrúar 1990.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.