Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1990, Síða 1
Óperusmiðjan og Frú Emilía í kvöld kl. 20 og 22:
Tvoföld framsýning
á Systur Angeliku
Óperusmiðjan og leikhúsiö Frú
Emilía frumsýna í kvöld, fóstudag-
inn 27. apríl, kl. 20 óperuna Systir
Angelika eftir Giacomo Puccini.
Önnur sýning verður einnig í kvöld
kl. 22. Sýnt er að Skeifunni 3c.
Óperusmiðjan er nýr sönghópur
sem stofnaður var í janúar og er
eingöngu skipaður konum enn sem
komið er. Óperusmiðjan ætlar sér
að flytja óperur og einnig kirkju-
lega tónlist þegar fram líða stundir.
Systir Angelika er fyrsta verkefni
hópsins.
Tvær söngkonur skipta með sér
aðalhlutverkinu. Það eru þær Est-
er Helga Guðmundsdóttir, sem
syngur á fyrri frumsýningunni, og
Inga Backman sem syngur á þeirri
síðari. Síðan munu þær skipta með
sér sýningum.
Leikhúsið Frú Emilía hefur starf-
að í liölega þrjú ár. Óperan verður
Ester Helga Guðmundsdóttir og Inga Backman skipta með sér titilhiutverkinu i óperunni Systir Angelika.
sjöunda verkefni leikhússins. Fjöl-
margir söngvarar taka þátt í sýn-
ingunni og einnig átján manna
hljómsveit. Hljómsveitarstjórn er í
höndum Hákonar Leifssonar.
Óperan Systir Angelika er miö-
hluti þriggja óperueinþáttunga.
Þessir einþáttungar voru frum-
fluttir í New York árið 1918. Óperan
gerist í klaustri í lok sautjándu ald-
ar. Angelika hefur verið send þang-
að nauðug vegna óskilgetins sonar.
Þegar óperan gerist hefur Angelika
veriö þar í sjö ár og eina ósk henn-
ar er að fá einhverjar fréttir af fjöl-
skyldu sinni.
Föðursystir hennar og höfuð fjöl-
skyldunnar vill að hún afsali sér
öllum veraldlegum eignum sínum.
Hún færir henni þær fréttir að son-
ur hennar sé dáinn og Angelika
örvinlast. Hún fremur sjálfsmorð
með því að taka inn eitur en á
dauðastundinni biður hún heilaga
Maríu fyrirgefningar.
Ein sýning á óperunni er áætluð
á kvöldi eftir frumsýningarnar
tvær í kvöld. Eftirleiðis hefjast sýn-
ingarnar kl. 21.00. Sú síðasta er
áætluð þann 15. maí. Sýnt er í hús-
næði Frú Emilíu að Skeifuni 3c og
er miðasala opin alla daga frá kl.
17 til 19 og sýningardaga til kl. 21.
Ef ~
■T7/ H’Bift? yl
The California E.A.R. Unit er kammersveit þekkt fyrir frjálslega framkomu.
Kjarvalsstaðir í kvöld kl 20.30:
Bandarísk kammersveit
leikur á Kjarvalsstöðum
I kvöld, fostudaginn 27. apríl, kl.
20.30 heldur bandaríska kammer-
sveitin The California E.A.R. Unit
tónleika á Kjarvalsstöðum.
The California E.A.R. Unit er níu
manna hópur sem hefur sérhæft sig
í flutningi nýrrar tónlistar og er mjög
þekkt á því sviði. Efniskrá tónleik-
anna spannar vítt svið tónlistar og
hefur hópurinn ferðast víða um
heima við góðar undirtektir. Einnig
hafa meðlimir hópsins getið sér gott
orð sjálfir sem tónskáld.
Þeir hafa unnið náiö með mörgum
af frægustu tónskáldum samtíðar-
innar; mönnum eins og John Adams,
Milton Babbit, John Cage, Elliott
Carter, Peter Maxwell Davies, Mor-
ton Feldman og Morton Subotnick.
Á þessum tónleikum mun The Cali-
fornia E.A.R. Unit flytja verk eftir
Elliott Carter, Arthur Jarvinen,
Stephen Mosko, Steve Reich og Fred-
erick Rzewsky og auk þess frumflytja
nýtt verk eftir Hilmar Þórðarson.
Á morgun, laugardaginn 28. apríl
kl. 10.00 til 12.00 mun hópurinn halda
námskeið í sal Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar við Hraunberg í
Breiðholti. Þar mun hann sýna ýms-
ar aðferðir til þess að miðla nútíma-
tónlist til barna og leikmanna auk
þess að leyfa þátttakendum að
spreyta sig sjálfir við tónsköpun.
Aðgangur er ókeypis og öllum heim-
ill.
The California E. A.R. Unit er þekkt
fyrir fijálslegan klæðaburð, líflega
sviðsframkomu og óvenjulega takta
aö öðru leyti. Það verður því örugg-
lega um einhveijar skemmtilegar
uppákomur að ræða.
Norræna húsið laugardag kl. 16.00:
Norrænir tónleikar
Laugardaginn 28. apríl kl. 16.00
verða tónleikar í Norræna húsinu
þar sem tónlistarmennirnir Matts
Eriksson fiðluleikari og Carl Otto
Erasmie píanóleikari leika verk eftir
norrænu tónskáldin Lars-Erik Lars-
son, Einar Englund og Edward Grieg.
Þetta er í fyrsta skipti sem þeir
halda tónleika hér saman en Carl
Otto Erasmie hefur tvívegis áður
leikið á tónleikum í Norræna húsinu
ásamt einleikurum.
Eriksson og Erasmie hófu að leika
saman haustið 1986. Þeir leggja
áherslu á að spila sem fjölbreyttust
tónverk frá ýmsum tímabilum og
kynna tónskáld sérstaklega. Á þess-
um árum hafa þeir haldið tónleika
bæði heima og erlendis. Frumraun
þeirra var í Stokkhólmi veturinn
1987.
Norræni menningarsjóðurinn hef-
ur veitt þeim styrk til tónleikaferða
um Norðurlöndin og hafa þeir leikið
í Munch-safninu í Osló auk tónleika
í Finnlandi. Þeir hyggjast halda tón-
leika í Danmörku og síðar á Græn-
landi, Færeyjum og Svalbarða.
Eriksson leikur með Kammersveit
Stokkhólms og í Swedenborgkvart-
ettinum. Hann hefur ferðast með
Matts Eriksson og Carl Otto Erasmie leika í Norræna húsinu annaðkvöld.
þessum sveitum um flest lönd Evr-
ópu, Bandaríkin og Suður-Ameríku.
Erasmie hlaut píanómenntun sína
í Gautaborg, London og Brussel.
Hann hefur leikið á Norðurlönd-
unum, í Frakklandi og Egyptalandi.
Þá hefur hann leikið mikið með ein-
söngvurum og einnig fengist við
hlj ómsveitarstj órn.