Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Blaðsíða 1
Stöð 2 á föstudögum:
Ferðast um
tímann
Það eru ekki margir framhalds-
þættir sem gerðir eru eftir vísinda-
skáldsögum, enda þykja þannig
þættir alltof kostnaðarsamir og
hefur verið hætt við marga ein-
göngu vegna kostnaðar en ekki
vegna þess að þeir gengu illa.
Nýjasta serían sem telst til vís-
indaskáldsagnagerðar er Ferðast
um tímarin (Quantum Leap), sem
hóf göngu sína í Bandaríkjunum
síðastliðið haust og verður á dag-
skrá Stöðvar 2 í nánustu framtíð á
fóstudagskvöldum. .
Aðalpersónan er Sam Beckett
sem er snjall vísindamaður. Hann
er að gera tilraunir með tímaflakk
og það tekst hjá honum. En ekki
vill betur til en svo að hann getur
ekki losað sig við flakkið og í þátt-
unum er hann að þeytast á milli
tímasvæða í fortíðinni sem þó nær
ekki lengra en tuttugu ár aftur í
tímann. Enginn veit af þessu nema
yfirmaður hans sem reynir að leið-
beina honum inn á réttan tíma en
þaö gengur erfiölega.
Sjónvarpsáhorfendur sjá auðvit-
að alitaf sama manninn, en þær
persónur sem verða fyrir honum á
tímaflakki hans sjá allt aðra per-
sónu, persónu sem þeir þekkja og
hefur „verið tekin úr umferö í smá-
tíma.“ Á þessu tímaflakki lætur
Sam margt gott af sér leiða því eins
og gefur að skilja er þekking hans
á framtíðinni mun meiri en ann-
arra sem umgangast hann.
Það er Scott Bakula sem leikur
Sam Beckett. Hann er ekki mjög
þekktur leikari en þess þekktari
skemmtikraftur. Hann er söngvari,
dansari, píanóleikari og útsetjari.
Ungur að árum ætlaði Bakuia að
feta í fótspor fóður síns og gerast
lögfræðingur en löngun hans til að
verða tónlistarmaður varð lög-
fræðinni yfirsterkari og í New
York þar sem hann hefur dvalið
mest á ferh sínum er hann vel
þekktur.
Sá sem leikur yfirmann Sams er
mun þekktari leikari. Það er Dean
Stockwell og er þetta í fyrsta skipti
sem hann leikur í framhalds-
myndaflokki. Stockwell hefur ver-
ið að leika alla ævi. Hann byrjaði
sem bamastjarna og hefur leikið í
um það bil fjörutíu ár. Af nýjustu
kvikmynd hans má nefna Blue
Velvet, Married to The Mob, París,
Texas og Beverly Hills Cops II.
Þetta eru sjálfstæðir þættir og er
fyrsti þátturinn sem er annað
kvöld í fullri kvikmyndastærð.
Annars er um flmmtíu mínútna
þætti að ræða.
-HK
Scott Bakula, til vinstri og Dean Stockwell sem leika aðalhlutverkin i tramhaldsmyndaflokknum Ferðast um
tímann.
Stöð 2 á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Framagosar
Ben Masters leikur blaðamanninn Kleber Cabtrell. Hann er hér ásamt leik-
Framagosar (Celebrity), er míni-
sería sem verður sýnd þijú kvöld í
röð á Stöð 2. Fjallar myndin um þrjá
vini sem á útskriftardegi þeirra í
menntaskóla tengjast órofnum bönd-
um, þó ekki á þann hátt sem þeir
höföu haldið að yrði.
Vinirnir þrír voru allt vinsælir
■nemendur í skólanum og taldir lík-
legastir allra til mikilla afreka. Fyrst
skal telja Kleber Cabtrell, sem var
spáð mestum frama allra þeirra. Og
hann stóð við væntingarnar. Byijaði
sem blaðamaður við lítið blað en
vinnur sig upp í að verða einn vin-
sælasti blaðamaður í Bandaríkjun-
um. En metnaðargirnin er mikil og
setur það svip á einkalíf hans.
Mack Crawford var kosinn niynd-
arlegasti nemandinn en líf hans
verður enginn dans á rósum. Hann
byrjar sem atvinnumaður í fótbolta
en þegar meiðsli koma í veg fyrir
áframhaldandi feril á þeirri braut
notar hann útlit sitt til að koma sér
áfram í kvikmyndaheiminum og
verður brátt vinsæll kvikmyndaleik-
ari. En æskuminningarnar hverfa
aldrei úr huga hans og fylgja honum
hvert sem hann fer.
Þriðji félaginn er T.J. Luther sem
var kosinn vinsælasti nemandinn í
skólanum. Hann verður þeirra
hættulegastur. Hann leiðist fljótt inn
á braut glæpa. Þegar honum gengur
illa við þá iðju notfærir hann sér
áhrifamátt sinn til að stöfna krafta-
verkahæli utan um starfsemi sína
sem byggist á kraftaverkalækning-
um hans. Kvenfólk laðaðst að honum
og einnig allskonar geðsjúklingar.
Hvað leynist bak við dökk gleraugun
konunni Karen Austin.
veit enginn.
Þótt vegir félaganna þriggja skiljist
er eitt leyndarmál sem bindur þá
saman og lausn þess kemur ekki í
ljós fyrr en í lok myndarinnar. Aðal-
hlutverkin, vinina þijá, leika Ben
Masters, Joseph Bottoms og Michael
Beck. Aðrir þekktir leikarar eru Tess
Harper, Debbie Alælen, James Whit-
more, Ned Beatty, Jennifer Warren
og Hal Holbrook.
-HK
Nú líður að kosningum til bæjar- klukkustundar umræðuþættir á
og sveitarstjóma sem verða laugar- Rás 2 um málefni kaupstaða í Suö-
daginn 26. maí. Af því tílefni efnir urlandskjördæmi, Reykjaneskjör-
Útvarpið til framboðsfunda sem dæmi og Vesturlandskjördæmi.
útvarpað verður á Rás 1, Rás 2 og Þættirnir verða sem hér segir:
i svæðisútvarpi. 17. mai, Ölafsvík kl. 20 og Stykkis-
Byrjað er á því að útvarpa tveggja hólmur kl. 21.18. maí, Akranes kl.
klukkustunda framboðsfundum á 20 og Borgarnes kl. 21.21. maí, Sel-
Rás 1 í stærstu kaupstöðunum. foss kl. 20 og Vestmannaeyjar kl.
Fyrsti fundurinn er á sunnudag kl. 21.22. maí, Garðabær kl. 20, Kefla-
16.20 á Rás 1. Þar skiptast frambjóö- vík kl. 21 og Seltjarnarnes kl. 22.07
endur í Reykjavik á skoðunum. Á og síðasta törnin verður 23. maí,
mánudagskvöldið kl. 20.00 veröur Mosfellsbær kl. 20., Grindavík kl.
útvarpað frá Akureyri, á þriðju- 21 og Njarðvik ki. 22.07.
dagskvöld taka frambjóðendur í Útvarpað verður frá framboðs-
Hafharflrði til máls og í Kópavogi fundum í öðrum kjördæmum í
á miðvikudagskvöld. svæðisútvarpi.
Fimmtudaginn 17. maí taka við
Bylgjan:
7-8-9. Nýr morgunþáttur
Nýr morgunþáttur hefur hafið
göngu sína á Bylgjunni. Umsjónar-
menn er Hallgrímur Thorsteinsson
og Hulda Gunnarsdóttir. Hallgrímur
er aftur kominn til liðs við Bylgjuna,
en hann var einn af fyrstu starfs-
mönnum stöðvarinnar. Hulda er aft-
ur á móti einn yngsti starfsmaöurinn
og hefur starfað sem fréttamaöur.
Þátturinn 7-8-9 er á hveijum virk-
um morgni frá kl. 7-9. Á þeim tíma
er farið yfir það helsta úr fréttum
dagsins og uppátækin eru margvís-
leg. Óperusöngvarar syngja í gegn-
um síma í beinni útsendingu og
menn geta átt von á að verða vaktir
í beinni útsendingu.
„Við erum komin á fætur og viljum
fá fólk með okkur,“ sagði Hallgrímur
Thorsteinsson. „Það er svo gott að
vakna með hressu fólki og það getur
átt von á kalli frá okkur. Okkur er
ekkert heilagt.“
Á hveijum morgni er „viðskipta-
vitið". Þar eru sagðar fréttir af við-
skiptaheiminum á eðlilegu og skilj-
anlegu máli. Fréttir verða sagðar á
hálftíma fresti og langur fréttatími
er klukkan níu þar sem farið er í það
helsta sem bar á góma og spáð í frétt-
ir.