Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1990, Side 2
24
MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 1990.
Iþróttir
Sveinn afneitaði
heiðursverðlaunum
- miMl spenna meðal áhugamanna um kynbótaræktun
Þaö ríkti mikil spenna meöal
áhugamanna um kynbótaræktun á
landsmóti hestamanna. Spurningin
var hvernig þeim kynbótahrossum,
sem höföu komist í gegnum hiö
þrönga nálarauga forskoðunarinnar
í vor, hefði farnast. Fimmtíu og niu
hryssur voru skráðar til leiks og
mættu þær flestar. Hryssurnar voru
gullfallegar margar hverjar og ríkti
töluverö ánægja meö þær.
Nokkurt ólán hvíldi á stóðhestun-
um. Fjörutíu einstaklingar voru
skráðir en þeir mættu ekki allir.
Nokkrir voru forfallaðir en aðrir
duttu úr leik á niótinu, meðal ann-
arra Toppur frá Eyjólfsstöðum sem
forfallaðist vegna hormónasjokks
(greddu). Gömul meiðsl tóku sig upp
hjá Pilti frá Sperðli en hann hafði
þá lokið sinni sýningu. Margir stóð-
hestanna voru ekki í stuði og vöktu
ekki þá hrifningu sem við mátti bú-
ast.
Þrír stóðhestar kepptu að heiöurs-
verðlaunum fyrir afkvæmi. Allir
náðu þeir tilskildum áfanga. Hervar
frá Sauðárkróki, sem er í eigu Hrs.
Skagafjarðar, stóð efstur. Hann hlaut
heiðursverðlaun, fékk 131 stig fyrir
87 dæmd afkvæmi og fyrsta sæti.
Hervari fylgdu meðal annarra af-
kvæma fimm stóðhestar sem voru
sýndir sem einstaklingar: Otur frá
Sauöárkróki, Prúður frá Neðraási,
Funi frá Skálá, Kopar frá Galtarnesi
og Hektor frá Akureyri, sem allir
hlutu 1. verðlaun.
Gáski frá Hofsstöðum, í eigu Hrs.
Suðurlands, hlaut heiðursverðlaun,
fékk 129 stig fyrir 72 dæmd afkvæmi
og annað sæti. Ófeigur frá Flugu-
mýri, sem er í eigu Ófeigsfélagsins,
hlaut heiðursverðlaun og fékk 125
stig fyrir 105 dæmd afkvæmi.
Þokki frá Garði gæðingafaðir
ársins
Fjórir stóðhestar voru dæmdir til
1. verðlauna fyrir afkvæmi. Þokki frá
Garði, í eigu Jóns Karlssonar, sló
heldur betur í gegn og stóð efstur
stóðhesta með 1. verðlaun fyrir af-
kvæmi en þeir hlutu reyndar allir
fjórir 1. verðlaun fyrir afkvæmi.
Þokki fékk sem einstaklingur 2. verð-
laun en hefur þrátt fyrir það sannað
sig sem gæðingafaöir. Þokki fékk 136
stig fyrir 23 dæmd afkvæmi. Viöar
frá Viðvík, í eigu Hrs. Suðurlands,
Hrs. Vesturlands og Hrs. Skagfirð-
inga, fékk 133 stig fyrir 29 dæmd af-
kvæmi. Garður frá Litlagarði, Ár-
manns Ólafssonar, fékk 128 stig fyrir
16 dæmd afkvæmi og Feykir frá Haf-
steinsstöðum í eigu Hrs. Skagfirð-
inga og Hrs. Suðurlands fékk 123 stig
fyrir 29 dæmd afkvæmi.
Kolfinnur og Gassi með jafnar
einkunnir
Einn þeirra hesta, sem hafa stöðugt
verið að bæta sig, er Kolfmnur frá
Kjarnholtum í eigu Hrs. Vesturlands
og fleiri. Hann fékk 8,45 í aðalein-
kunn í flokki stóðhesta sex vetra og
eldri en sömu einkunn hlaut Gassi
frá Vorsabæ í eigu Hrs. Eyjafj. og
Hrs. Þing. Kolfinnur hlaut 8,05 fyrir
byggingu en 8,84 fyrir hæfileika.
Gassi hlaut 8,30 fyrir byggingu en
8,60 fyrir hæfileika.
Hrossaræktarráðunautarnir voru
lengi að ákveða hvor yrði númer eitt.
Það var spurning um að velja fegurð
Gassa eða hæfileika Kolfinns.
Ástæða þess að Kolfinni var stillt í
efsta sætið var sú að þrjú afkvæma
hans voru sýnd á landsmótinu, þar
af einn stóöhestur, Dagur frá Kjarn-
holtum.
Otur frá Sauöárkróki, í eigu Sveins
Guðmundssonar, hlaut 8,05 fyrir
byggingu og 8,69 fyrir hæfileika og
8,37 i aðaleinkunn. Alls fengu tuttugu
stóðhestar, sex vetra og eldri, 1. verð-
laun en Örn 84165011 frá Akureyri
var dreginn tilbaka.
Piltur frá Sperðli efstur fimm
vetra stóðhestanna.
Gömul meiösl tóku sig upp hjá Pilti
frá Sperðli, í eigu Pilts sf., en þá hafði
hann lokið sýningu sinni og stóð
uppi sem sigurvegari. Reyndar náði
hann sér þaö vel að hann var sýndur
áhorfendum. Hann fékk 8,13 fyrir
byggingu, 8,53 fyrir hæfileika og 8,33
í aðaleinkunn. Hjörtur frá Tjöm, í
eigu Ármanns Gunnarssonar, fékk
7,88 fyrir byggingu, 8,51 fyrir hæfi-
leika og 8,19 í aðaleinkunn. Eðall frá
Hólum, í eigu Hrossakynbótabúsins
á Hólum hlaut 7,98 fyrir byggingu,
8,31 fyrir hæfileika og 8,14 í aðalein-
kunn. Alls hlutu níu fimm vetra stóð-
hestar 1. verðlaun en Kopar frá Galt-
amesi var dreginn tilbaka.
• Sveinn Guðmundsson heldur i heiðursverðlaunahryssuna Hrafnkötlu þungur á brún.
DV-mynd E.J.
DV á landsmótinu
Sjö fjögurra vetra stóðhestar voru
sýndir og hlutu þrír þeirra 1. verð-
laun. Kveikur frá Miðsitju, í eigu
Jóhanns Þorsteinssonar og fleiri,
hlaut 7,98 fyrir byggingu og 8,14 fyrir
hæfileika. Orri frá Þúfu, í eigu Ind-
riða Ólafssonar, hlaut 8,20 fyrir bygg-
ingu, 7,81 fyrir hæfileika og 8,01 í
aðaleinkunn. Sokki frá Sólheimum,
í eigu Valdimars Ó. Sigmarssonar,
hlaut 8,55 fyrir byggingu, 7,44 fyrir
hæfileika og 8,00 í aðaleinkunn.
Andvari og Seifur lækkaðir
Þijár hryssur hlutu heiðursverð-
laun fyrir afkvæmi. Hmnd frá
Keldudal, í eigu Leifs Þórarinssonar,
hlaut 8,00 og heiðursverðlaun fyrir
fimm afkvæmi. Hrafnkatla frá Sauð-
árkróki, í eigu Sveins Guömundsson-
ar, hlaut 7,99 og heiðursverðlaun fyr-
ir níu afkvæmi. Snælda frá Árgerði,
í eigu Magna Kjartanssonar, hlaut
7,97 og heiðursverðlaun fyrir sex af-
kvæmi.
Sveinn Guðmundsson afþakkaði
bikar fyrir Hrafnkötlu. „Ég er óá-
nægður með að Andvari og Seifur
voru lækkaðir," segir Sveinn. And-
vari og Seifur eru synir Hrafnkötlu.
Fjórar hryssur fengu 1. verðlaun
fyrir afkvæmi. Blesa frá Möðrufelli,
í eigu systkinahna á Hóli, hlaut 8,08
fyrir fjögur afkvæmi. Hervör frá
Sauðárkróki, í eigu Sveins Guö-
mundssonar, hlaut 7,92, Perla frá
Reykjum, í eigu Steindórs Árnason-
ar, hlaut 7,83 og Björk frá Þverá, í
eigu Ingva Eiríkssonar, hlaut 7,82
fyrir afkvæmi.
Bilið breikkar milli knaDa:
Atvinm í frem* iknapar itu röð
- settu svip Á landsmótinu var starfrækt út- varp sem sendi út reglulega upplýs- ingar til gesta og eins allt rabb þula. Þeir sem voru á ferö í nágrenni Vindheimamela gátu því hlustaö á útvarp og fýlgst með þvi sem var að gerast. Útvarpiö var fyrstu dag- á landsmótið dagana 5. ti) 11. ágúst árið 1991. Borgarstjórn Nörrköbingborgai- hefur ákveðið að styrkja Svía í mótshaldinu og útbúa keppnis- svæöi sem verður tilbúiö til könn- unar í september/október 1990. Svæöið er í útjaöri Nörrköbing-
ana tengt við símana á staðnum. Ef tóli var lyft heyrðist útvarp landsmótsins. Bilið breikkar milii knapa Atvinnuknapar settu töluverðan borgar og er stórt hótel nálægt keppnissvæðinu svo og útivistar- ■ svæði, sundlaug og ýmis önnur aðstaða sem fylgir útivistarsvæð- um í Svíþjóð Landssamband hestamannafé-
leitt 1 fremstu röð keppenda enda eru þeim oft fengnir í hendur hest: menn, þá Gunnar Bjamason, fyrr- verandi hrossaræktarráðunaut,
þessu móti kom fram mikil gjá milli þeirra og annarra knapa. Þessir knapar voru með marga landsmótlð, og Höskuld Eyjólfsson á Hofsstöðum sem kom á landsmót- ið 97 ára gamall.
voru með marga verðlaunahesta. Þetta þýddi það einnig að seinkun varö á dagskrá á hverjum degi því þrjá þekkta hestamenn: Sigurð Haraldsson i Kirkjubæ, Halldór Jónsson í Stokkhóhna og Höskuld
hesta i röð og þurftu að fá knapa fyrir sig. Það gekk stundum illa. liyjoiissöii 3. riöibSiooum. afhenti Trausti Þór Guðmundsson, formaöur F.T., Sigríöi Benedikts-
Heimsmeistaramótið í Nörrköbing dóttur viðurkenningu fyrir fágaða reiðmennsku en Sigríöur hefur keppt á mörgum mótum undanfar-
Nú hefur veriö ákveðiö að heims- meistaramótið í hestaíþróttum verði haldið í Nörrköbing í Svíþjóð in ár og verið töluvert sigursæl. EJ
Fimm vetra hryssa hlaut
hæstu einkunn
. Alls voru sýndar þrjátíu og fjórar
hryssur í flokki sex vetra og eldri og
héldu allar 1. verðlaununum frá því
í forskoðun. Gerpla frá Högnastöð-
um, í eigu Magnúsar Torfasonar,
stóð efst með 8,25 í aðaleinkunn.
Fluga frá Arnarhóli, í eigu Valgeirs
Jónssonar, hlaut 8,23 og Gná frá Efri-
brú, í eigu Böðvars Guðmundssonar,
hlaut 8,22 í aðaleinkunn.
Hæst dæmda hryssa mótsins var í
flokki fimm vetra hryssna. Það var
Þrenna frá Hólum, í eigu Hrossakyn-
bótabúsins á Hólum, sem hlaut 8,46
í einkunn. Brá frá Sigmundarstöð-
um, í eigu Reynis Aðalsteinssonar,
hlaut 8,19 og Spóla frá Húnavöllum,
í eigu Hjartar Einarssonar, hlaut
8,18. Alls voru 14 hryssur sýndar og
hlutu tíu þeirra 1. verðlaun.
Ellefu fjögurra vetra hryssur voru
sýndar og hlutu tvær þeirra 1. verð-
laun. Efstar voru Gína frá Votmúla,
í eigu Alberts Jónssonar, með 8,03,
Þóra frá Hólum, í eigu Kynbóta-
hrossabúsins á Hólum, með 8,01 og
Sunna frá Votmúla, í eigu Freyju
Hilmarsdóttur, með 7,91.
Nótt frá Skollagróf hlaut hæstu
hæfileikaeinkunn hryssna, 8,66, en
Kolfmnur frá Kjarnholtum hlaut
hæstu hæfileikaeinkunn stóðhesta,
8,84. Sokki frá Sólheimum hlaut
hæstu byggingareinkunn stóðhesta,
8,55. Þrenna frá Hólum hlaut hæstu
byggingareinkunn hryssna, 8,38.
-EJ