Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Page 8
24
FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990.
Vinsældalistinn tekur miklum
breytingum þessa vikuna. Eins og
við mátti búast fer Back To the
Future II í fyrsta sætið og verður
þar sjálfsagt næstu vikumar. Fjór-
ar nýjar kvikmyndir koma inn á
listann og eru tvær þeirra úrvals-
kvikmyndir sem enginn kvik-
myndaunnandi ætti að láta fram
hjá sér fara, Sex, Lies and Videota-
pes, sem vakti mikla athygli í fyrra
og var valin besta kvikmyndin á
j DV-LISTINN
1. (2) Back to the Future II
2. (-) Sex, Lies and Videotapes
3. (5) January Man
4. (1) Johnny Handsome
5. (-) Dead Poets Society
6. (9) Lean on Me
7. (8) The Package
8. (-) LastRites
9. (-) Say Anything
10. (7) Ghostbuster II
kvikmyndahátíðinni í Cannes, og
hin frábæra kvikmynd Peter Weir,
Dead Poets Society, sem fjallar um
nokkra skóladrengi og kennara
þeirra. Tvær aðrar kvikmyndir
koma inn á hstann, Last Rites, með
Tom Beringer í aðalhlutverki, og
táningamyndin Say Anything.
Kúrekar á mannaveiðum
FOR A FEW DOLLARS MORE
Útgefandi Steinar hl.
Leikstjóri: Sergio Leone.
Aðalhlutverk: Clint Eastwood, Lee van
Cleef og Glan Maria Volonte.
itölsk, 1965 - sýningartimi 130 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
For a Few Dollars More er mið-
kaflinn í tríólógíu Sergio Leones
um „nafnlausa manninn". Á undan
hafði komið Fistful of Dollars og á
eftir kom svo The Good, The Bad,
and The Ugly sem er best þessara
þriggja mynda. í óbeinu framhaldi
kom svo Once Upon a Time in the
West sem er sjálfsagt besta kvik-
mynd Sergio Leones.
For a Few Dollars More er jafn-
góð skemmtun vestraaðdáendum
nú og hún var þegar hún kom á
cx-iiT,!rl
V t íirmiíA ABl
FÖR A FEW DOLLÁRS MORE
markaðinn 1965. CUnt Eastwood og
Lee Van Cleef leika tvo mannaveið-
ara sem eru á eftir sama mannin-
um þótt ólíkar ástæður liggi að
baki. Þeir sameinast um leitina en
vantreysta hvor öðrum. Hápunkt-
ur myndarinnar er löng lokasena
þar sem þrjá aðalpersónumar
mynda þríhyming undir stórkost-
legri tónlist Ennio Morricone. At-
riði þetta er langt en magnað og
Uður sjálfsagt mönnum seint úr
minni.
For a Few DoUars More ásamt
hinum , ,dollaramyndunum‘ ‘ gerði
Clint Eastwood að stórstjömu. Lee
van Cleef, sem ekki var síðri en
Eastwood í For a Few Dollar More
og The Good, the Bad and the Ugly,
náði aldrei sömu frægð. Hann hélt
áfram að leika í „spaghettivestr-
um“ og ómerkilegum sjónvarps-
þáttum þar til hann lést á síðasta
ári.
Sergio Leone er emnig horfinn til
feðra sinna og þar með hvarf af
sjónarsviðinu einn mest spennandi
kvikmyndageröarmaður vorra
tíma, leikstjóri sem geröi fáar
myndir en aUar eftirtektarverðar.
í For a Few DoUars More er til aö
mynda áhrifamikU notkun á nær-
myndum þar sem myndavéhn
dregur fram hvem drátt í andUti
viðkomandi persónu. Að gera slík-
an hlut æ ofan í æ án þess að áhorf-
andinn fái leið á er aðeins á færi
snUlingaísínufagi. HK
Táningaást
SAY ANYTHING
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Cameron Crowe.
Aöalhlutverk: John Cusack og lone Sky.
Bandarisk, 1989-sýningartimi 96 min.
Say Anything er nokkuð vel gerö
kvikmynd um margtuggið efni.
Kemur þar tU fyrst og fremst gott
handrit þar sem nokkuð hefur ver-
ið lagt í að gera aðalpersónumar
trúveröugar.
John Cusack leikur Lloyd Dobler
sem öðrum þykir sérvitur. Þegar
hann hittir fyrst gáfnaljósið Diönu
Court er það ást við fyrstu sýn.
Diana hrífst einnig af Lloyd, aðal-
lega vegna þess að hann fær hana
tíl að hlæja. Faðir hennar er ekki
eins ánægður með þróun mála
enda hafði Diana fengið skóla-
styrkt tíl að stunda nám í Eng-
landi. Þar að auki á faðirinn yfir
höfði sér dóm fyrir fjárdrátt.
Say Anything er frumraun Ca-
meron Crowe sem leikstjóra en
hann er þekktur handritshöfund-
ur. Ekki verður annað hægt að
segja en að honum hafi tekist bæri-
lega upp. Say Anything er ekki
mikU átakamynd heldur ljúf af-
þreying þar sem hinir ungu aðal-
leikarar, John Cusack og Ione Sky,
gera hlutverkum sínum góð skU.
HK
Naflaskoðun
SEX, LIES AND ViDEOTAPES
Útgefandi: Arnarborg.
Leikstjóri og handritshöfundur: Steven
Söderberg. Framleiöendur: Robert
Newmyer og John Hardy. Aðalhlutverk:
James Spader, Andie Macdowell, Peter
Gallagher og Laura San Giacomo.
Bandarísk 1988. 96 mín. Bönnuö yngri
en 16 ára.
Það svona rétt hvarflar aö manni
að líklega hefði S.L.A.V. varla náð
þessari frægð nema af því að hún
er bandarísk. Ef hún hefði verið
gerð af evrópskum leikstjóra hefði
hún sjálfsagt fengið aðra umfjöUun
pg athygh og tæpast komið út á
íslandi á myndbandi. En þetta er
útúrdúr.
S.L.A.V. er ágætis mynd sem án
efa vekur upp ýmsar spurningar
um þann lífsmáta sem bandarískt
millistéttarfólk hefur tamið sér.
Reyndar kemur efnið ekkert á
óvart heldur efnistökin. Söderberg
heldur sig við fjórar persónur og
varla að öðrum bregði fyrir. Hann
flettir ofan af innbyrðis tengslum
þeirra sem virðast mótast mjög af
leg af bandarískri mynd að vera en
Söderberg er smekklegur alveg til
loka.
Mér finnst hins vegar lausnin í
lokin fremur ódýr og myndin svar-
ar engan veginn þeim spurningum
sem hún vekur. Hlutverkin eru vel
skrifuð og leikarahópurinn nær
mjög vel saman. Spader virðist
reyndar vera að slá í gegn og um
þessar mundir geta kvikmynda-
húsagestir séð hann í Bad Influen-
ce sem sýnd er í Regnboganum.
Sem byrjendaverk er S.L.A.V.
mjög athyghsverð og greinUegt að
Söderberg hefur hitt fullkomlega á
efni sem hann kann skU á. Verður
forvitnUegt að fylgjast með þessum
pUti en það má kannski skjóta því
að að Orson WeUes var á svipuðum
aldri þegar hann gerði Citizen
Kane!
kynlífi þeirra. Erótíkin er óvenju- -SMJ
Ákveðinn skólastjóri
LEAN ON ME
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: John G. Avildsen.
Aðalhlutverk: Morgan Freeman, Be-
verly Todd og Robert Guillaume.
Bandarisk, 1989-sýningartími 109 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Snati á
talnámskeiði
Lean on Me er saga Joe Clark sem
gekk undir nafninu „vitlausi Joe“.
Myndin er byggð á sönnum at-
burðum úr ævi þessa dökka krafta-
verkamanns.
Þegar skólayfirvöld voru búin að
gefast upp á Eastside menntaskól-
Stefrisg............
_______ aiHESSÍ OœilSERj
OBB MUUfEY
ÍSI KNSKUR TFAll
K-9000
Útgefandi: Myndform.
Leikstjóri: Kim Manners. Handrit: Ste-
ven Souza og Michael ParL Aðalhlut-
verk: Catherine Oxenberg og Chris
Mulkey.
Bandarisk 1990. Bönnuð yngri en 12
ára.
Talandi leikarar úr dýraríkinu eru
að mínum dómi vís aðferö til að
kála meðalmynd nema ef hún fjall-
aði um Dagfinn dýralækni. Það
hefðu framleiöendur þessarar
myndar betur haft í huga áður en
þeir kenndu hundinum K-9000
(mjög skáldlegt nafn) að tala.
Myndin fer bara alveg ágætlega
af staö og virðist við fyrstu sýn
bærilegur þrfller um dulafullar
dýrarannsóknir með tilheyrandi
samsærum. En um leið og dýrið fer
að tala fer aUt í hundana. Um leið
fer maður að taka eför lélegu hand-
riti og ömurlegum leik aðalkven-
hetjunnar sem aö sögn fróðra
manna mun leika í þeirri merku
þáttaröð, Dynasty. Frammistaða
Catherinu Oxenberg verður ekki
til þess að hvetja mann til að horfa
á þá þætti.
-SMJ
anum; þar sem glæpir og eiturlyfja-
notkun vorur daglegt brauð, var
síðasta hálmstráið að leita til Joe
Clarks og fá honum skólann til
meðferðar og Clark er ekki lengi
að koma nemendunum í skUning
um að hann taki starfið alvarlega.
Hann byrjar á því aö reka aUa úr
skólanum sem orðaðir eru við eit-
urlyf, þar með er hann búinn að fá
upp á móti sér foreldrafélag sem
og skólayfirvöld. Clark lætur samt
ekki segjast og heldur hörkunni
áfram þar til hann er búinn að
hreinsa til í skólanum og fá nem-
endur til að fá áhuga á náminu.
Lean on Me er leikstýrð af John
G. AvUdsen sem eru oft mislagðar
hendur. Hér hefur honum tekist
sæmUega upp en hann getur þó
þakkað aðaUeikara sínum, Morgan
Freeman, hversu vel hefur tekist.
Freeman, sem sló heldur betur í
gegn í Driving Miss Daisy, fer á
kostum í hlutverki Clarks sem er
mjög óhkt hlutverki bUstjórans í
Driving Miss Daisy. Að öðru leyti
er fátt sem kemur á óvart. Áhorf-
andinn veit frá byrjun hver endir-
inn verður. Myndir um einstakl-
inginn sem bjargar skólanum eru
ekki nýjar af náhnni og eins og í
Lean on Me er oftar en ekki farið
með rétt mál í slíkum myndum.
HK
í leit að minningum
MEMORIES OF ME
Útgefandi: Arnarborg
Leikstjóri: Henry Winkler. Handrit: Eric
Roth og Billy Crystal. Framleióandi: Al-
an King og Billy Crystal. Aóalhlutverk:
Billy Crystal, Jobeth Williams og Alan
King.
Bandarisk 1988. 99 min. Öllum leyfð.
Crystal hefur smám saman verið
að þoka sér upp á við í kvikmynda-
heiminum en sjálfsagt muna marg-
ir eftir honum sem hommanum í
flíiíy jo&cii; Aiar.
CRYSTAL WILLIAMS KING
'Myfathen
justlikc ason
Löðri. Hann átti afbragðs takta í
When Harry Met SaUy sem hefur
falUð vídeóglápurum vel í geð að
undanfomu. Hér leggur hann tölu-
vert undir þvi auk þess að fara með
aðalhlutverkið er hann annar
tveggja handritshöfunda. Þá fram-
leiðir hann myndina með King.
Myndin er á köflum bráö-
skemmtUega skrifuð en því miður
virðast handritshöfundar ekki hafa
haft nógu markvissa hugmynd tíl
að ganga út frá. Myndin veröur því
eins og fjölmargar myndir af sama
sauðarhúsi, vemmUega skemmti-
leg og án nauösynlegs uppgjörs.
Crystal leikur hér ungan skurð-
lækni sem fær hjartaáfaU sem
verður honum hvatning til að leita
uppi fóöur sinn og koma lagi á
minningarnar en samband þeirra
feðga hefur verið á fremur yfir-
borðskenndum nótum.
King fær aUar skemmtilegu lín-
umar og virðist kunna því vel.
SamspU þeirra félaga, King og
Crystal, er bærilegt en eins og áður
segir verður stefnuleysið þeim að
falli. Myndin er þó vel þess virði
að eyða yfir henni kvöldstund.
Leikstjórinn, Winkler, er hér að
reyna fyrir sér á nýjum vígstöövum
en hann er einmitt frekar kunnur
fyrir frammistööu sína sem aukal-
eikari. Enda er leikstjóm hans
greinUega í aukahlutverki.
-SMJ