Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1990, Qupperneq 1
Sænska sjönvarpið skýröi frá þvi
í fréttatíma sínum i gærkvöldi að
Bo Johanson, landsliðsþjálfari ís-
lendinga, væri annar tveggja sem
kæmi til greina að tækju við sænska
landsliðinu í knattspjTnu. Bo var
nefhdur líklegur eftirmaður Ole
Norden, {ynTerandi landsliðsþjálf-
ara Svía, sem hætti störfum eftir
HM-keppnina á Ítalíu í þessum mán-
uði. Þá var einnig minnst á að Thor
Grip, sem starfar hjá Malmö FF, sem
mögulegan landsliðsþjálíara.
Hefekkert heyrt
frá stjórnarmönnum
„Ég hef ekkert heyrt um þetta frá
stiömarmönnum sænska knatt-
spyrnusambandsins. Ég hef ekki
fengið neitt tilboð og þar af leiðandi
get ég ekkert sagt um þetta. Það eru
auðvitað allir sænskir þjálfarar
sem hafa áhuga á þessu starfi því
þetta er stærsta og besta starfið í
sænska boltanum og það er vissu-
lega gaman að vera nefndur í þessu
sambandi. Ég hef hins vegar mjög
gott starf sem þjálfari íslenska
landsiiðsins og ég hef engan áhuga
á sleppa því,“ sagði Bo Johanson í
spjalli við DV í gærkvöldi.
Bo var nefndur sem líklegur
landsliðseinvaldur Svía árið 1985
en að eigin sögn fékk hann aldrei
beint tilboð frá sænska knatt-
spymusambandinu. Sænskir fjöl-
miðlar höfðu samband við Bo seint
í gærkvöldi í framhaldi af frétt
sænska sjónvarpsins. Það er aug-
Jjóst að starf hans sem þjálfari ís-
lenska landsliðsins hefur vakið
mjög mikla athygh í Svíþjóð. Bo er
hins vegar samningshundiim ís-
lenska landshðinu næstu tvö árin.
Kemur alls
ekki á óvart
„Þetta kemur mér alls ekki á óvart
en ég tel óliklegt að Sviamir geri
sér míklar vonir um að fá Bo þvi
þeir vita að hann er samnings-
bundinn á íslandi. Alla vega væru
það skrýtin vinnubrögö hjá þeim
að tala ekki við sfjóm KSÍ áður en
þeir tihiefna hann sem landsliðs-
þjálfara," sagði Eggert Magnússon,
formaður Knattspymusambands
íslands, í spjalh við DV.
„Þetta er mikil viðurkenning fyr-
ir okkur hjá KSí og vinnubrögð
okkar og sýnir að við höfum ráðiö
mjög hæfan þjálfara. Það er mikil
ánægja hér á landi með störf hans
og hann er einnig mjög ánægður
hér að því ég er best veit,“ sagði
Eggert ennfremm-.
-RR
• Bo Johanson.
|x^íííí:;í:-J:xííí:Jíí;::S:ÍS;
• Sigurvegararnir í bikarkeppni FRÍ, HSK-menn, fagna ákaft glæsilegum sigri i Mosfellsbæ. Þetta var í fyrsta skipti sem HSK vinnur sigur í bikarkeppn-
inni. Fjallað er um bikarkeppni FRÍ á blaðsíðum 20 og 21. DV-mynd GS
Töp hjá
drengja-
liðinu
íslenska drengjalandshðið í
knattspyrnu tapaði tveim fyrstu
leikjum sínum á Norðurlanda-
móti landsliða sem fram fer í
Finnlandi. íslenska liðið tapaði í
fyrradag 0-4 fyrir Englendingum.
Tapið var stærra en leikurinn gaf
til kynna en íslendingar misnot-
uðu vítaspyrnu og nokkur önnur
góð færi.
í gærkvöldi tapaði liðið síðan
fyrir Finnum, 1-2. Finnar komust
tveimur mörkum yfir og komu
bæði mörkin eftir varnarmistök
íslendinga. Undir lok leiksins
fengu Islendingar vítaspyma
þegar Guðmundi Benediktssyni
var brugðið innan vítateigs og
Pálmi Haraldsson, fyrirliði ís-
lendinga, skoraði úr vítinu.
íslenska hðið er þar með neðst
í mótinu eftir tvær fyrstu um-
ferðirnar. Þeir Pálmi Haraldsson
og Guðmundur Benediktsson
hafa verið bestu menn. hðsins í
þessum leikjum og hafa báöir
vakið mikla athygh.
íslendingar mæta Dönum á
þriðjudag. -RR
Bow til KR?
- sovéskur landsliösþjálfari tekur líklega viö liði Vals
Eftir áreiðanlegum heimildum DV
eru taldar miklar líkur á því að
bandaríski leikmaðurinn Jonathan
Bow leiki með íslandsmeisturum KR
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
vetur. KR-ingar hafa átt í samninga-
viðræðum við Bow undanfama daga
og hefur hann lýst yfir miklum
áhuga á að koma til íslands á nýjan
leik og leiká með KR-ingum. Bow lék
með Haukum á síðasta keppnistíma-
bili og KR-ingar fengu hann að láni
í Evrópukeppninni og þar stóð Bow
sig nyög vel.
Fyrrum landsliðsþjálfari
Sovétmanna til Vals?
Valsmenn eiga í viðræðum við sov-
éskan þjálfara að nafni Vladimir
Obukov um að hann þjálfi Uðið í vet-
ur.
Aö sögn Jóns Steingrímssonar, for-
manns körfuknattleiksdeildar Vals,
eiga þessi mál að skýrast í næstu
viku en Valsmenn hafa mikinn
áhuga á að ráða þennan þjálfara til
félagsins. Obukov, sem er 53 ára að
aldri, er míög reyndur þjálfari og
hefur meðal annars þjálfaö A-lands-
hð Sovétmanna um tveggja ára skeið
og einxtig unglingalandshðið.
Lazslo Nemeth til
furstadæmanna
Lazslo Nemeth, sem þjálfaði KR og
íslenska landsliðið á síðasta vetri,
skrifaði í síðustu viku undir eins árs
samning hjá félagshði í Sameinuðu
arbísku furstadæmunum. Samning-
urinn var svo góður að Nemeth gat
með engu móti hafnað honum.
-JKS
• Jonathan Bow lék með KR í Evr-
ópukeppninni í fyrra.
Kirby áfram
Þrátt fyrir afleitt gengi Skaga-
hðsins í sumar hefur stjórn
knattspymudeildar ÍA ákveðið
að halda George Kirby, þjálfara
hðsins. Þetta var ákveðið á fundi
deildarinnar sl. fimmtudag áður
en hðið lék hinn mikilvæga leik
gegn KA sem Akurnesingar töp-
uðu.
„Það verða engar breytingar
gerðar og menn hafa ákveðiö að
standa saman. Það er ekki á dag-
skrá að skipta um þjálfara," sagði
stjórnarmaður knattspymu-
deildar ÍA í spjalh við DV í gær.
Samkvæmt heimildum DV dvel-
ur George Kirby nú í sumarbú-
stað sínum og slappar þar af fyrir
næsta leik hðsins.
Staða Akumesinga er mjög
slæm þessa dagana og liðið er í
fallsæti 1. deildar. -RR/SS