Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1990, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1990, Síða 3
MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 1990. 19 - alls 308 kylfingar sem leika á Jaðarsvelli Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyii 49. landsmótið í golfi, sem stendur yfir á Jaðarsvelli á Ákureyri þessa dagana, verður fiölmennasta lands- mótið sem haldið hefur veriö til þessa. Alls verða keppendur 308 tals- ins og þar af hafa 162 þeirra þegar lokið leik, keppendur í 3. flokki karla og 2. flokki karla og kvenna. Meistaraflokkur æfir í dag í dag er fyrri æfingadagur fyrir kepp- endur í meistaraflokki og 1. flokki og eru allir bestu kylfingar okkar í karlaflokki mættir til leiks með Úlfar Jónsson íslandsmeistara í farar- broddi, Keppendur í meistaraflokki karla eru 36 talsins. Frekar er þunn- skipað í meistaraflokki kvenna, að- eins 10 keppendur en þar er samt sem áður harðsnúið hð á ferðinni. Meistaraflokkskeppnin hefst á miðvikudag Keppni í meistaraflokki og 1. flokki hefst á miðvikudag og stendur yfir fram á laugardag. I þessum flokkum eru 146 keppendur og hefia þeir leik kl. 8 þrjá fyrstu dagana en kl. 7 á laugardagsmorgun. Eins og venju- lega beinist athygh manna aðahega aö meistaraflokki karla og fyrir þá sem hafa áhuga á aö fylgjast með keppni í þeim flokki hefst keppni kl. 15 á miðvikudag, kl. 8,50 á fimmtu- dag, kl. 15 á fostudag og skömmu eft- ir hádegi á laugardag. Ómar Halldórsson, Birgir Haraldsson og Tryggvi Hallgrímsson með hjálm- ana, „kúlutinurnar" og annað sem til þarf svo að hlutirnir á æfingasvæðinu geti gengið vel fyrir sig. DV-mynd gk. „Við fáum oft kúlur í okkur“ Gyffi Kriatjánsson, DV, Akureyri: Þegar keppendur á landsmótinu fara á æfingasvæðið kaupa þeir kúlur hjá htium „pollum" og slá þær síðan út á svæöið. Þeir þurfa síðan ekki aö hugsa um kúlumar frekar því að strákamir htiu sjá um að fara út á svæðið og „pikka“ þær upp. Þetta gera þeir óhikað þótt margir séu að æfa sig og kúlunum rigni niður aht í kring um þá. Við hittum þijá þessara stráka á æfingasvæðinu, þá Ómar Halldórs- son, 11 ára, Birgi Haraldsson, 12 ára, og Tryggva Hallgrímsson, 11 ára, og þeir voru hinir hressustu. „Jú, við fáum oft kúlur í okkur. Ég fékk til dæmis eina í hjálminn," sagði Birgir og Tryggvi bætti við að ein kúla hefði farið í læriG á honum. En þeir era hvergi bangnir, strák- arnir þrír, enda sögðu þeir að kaupið sem þeir fengju fyrir þessa „áhættu- sömu“ vinnu væri gott. Útreiðartúr og frávísun! Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri: Það gerist auðvitað margt skemmti- legt þar sem jafnfiölmennt golfmót er haldið og landsmótið á Akureyri en sennilega hefur Þorbergur Ólafs- son úr Golfklúbbi Reykjavíkur sett met í gær sem ekki verður slegið í bráð. Hann mætti „léttur" til leiks og gekk bara nokkuð vel. Það henti hann hins vegar að slá boltann sinn út af vehinum er hann var að leika 16. holu og inn í hestagirðingu. Þang- að sótti hann boltann en fannst til- vahð að bregða sér á bak í leiðinni. Hestinum fannst þetta hins vegar ekkert skemmthegt og kastaði hon- um samstundis af baki. Hvort Þor- bergi varð svo mikið um þetta að hann gleymdi síðan að skrá skor sitt á næstu holu er ekki ljóst en fyrir það mátti kappinn síðan þola frávís- un úr mótinu. • Smári Garöarsson, vallarstjóri á Jaðarsvellinum á Akureyri, gefur sér tíma til að fylgjast með því sem er að gerast. DV-mynd GK Iþróttir Golf- stúfar Rósmundur Jónsson, dómari landsmótsins í golfi, hefur haft hæfilega lítiö að gera við sín störf það sem af er mótinu og getaö gengið nokkuð afsiappaður til náöa á kvöldin. Rósmundur, sem býr i húsi á golfvellinum, vaknaði því hress og úthvhdur einn morg- uninn, fór 1 sturtu og þess háttar og var þó klár í slaginn. Honum brá hins vegar í brún er hann kom út úr húsinu því að enginn var á ferh á vehinum og ekkert heyröist úti nema fuglasöngur. „Rósi“ var eins og Palh sem var einn í heiminum en þegar hann leit loks á klukkuna og hún sýndi aðeins 05.45 var skýríngin fengin. Var þá ekki um annað að ræða en að reyna aö halla sér smástund aftur. „Bæjarstjórínn“ Hihnar „Marri“ Gíslason, bæjar- verkstjóri á Akureyri, sem sló upphafshögg mótsins, lenti i prentvhlupúkanum hlræmda hér í blaðinu sl. fóstudag og var þar í myndatexta sagður vera bæjar- stjóri á Akureyri. Aö sjáifsögðu vakti þetta talsverða lukku kylf- inga nyrðra og hver veit nema „Marri“ eigi eftir að sefiast í sæti bæjarsfiórans og Stefán B. Ein- arsson, sem „ræsti“ Marra þegar hann sló fyrsta högg mótsins, er sagður hafa áhuga á starfi bæjar- ritara ef af því veröur. Boltinn í öxlina og ... Einn keppandi í 3. flokki, nánar th tekið úr Golíklúbbi Suður- nesja, lenti í skondnu en heldur leiðinlegu ævintýri á 4. holu á laugardaginn. Eftir upphafshögg hafhaði boltinn hans um 20 cm frá skurði og því var fagnað að hann skyldi ekki hafa lent niðri í skurðinum. Vinurinn gekk að boltanum en næst þegar félagar hans Utu til hans var hann að láta boltann falla. Þeir kölluðu til hans og spurðu hvort hann heföi slegiö boltann niður í skurðinn í baksveiflunni. Svo var ekki held- ur hafði boltinn farið beint upp í loftið þegar hann var sleginn, í öxlina á aumingja manrúnum og þaðan niöur í skurðinn. Fyrir þetta hlaut hann einhver vítis- högg (!), sló síðan í vatnstorfæm, fékk vítishögg, og lauk leik á þessari par 3 holu á litlum 9 högg- um. Munaðí talsverðu Tveir „gamlir" Valsmenn léku saman í 2. flokki á laugardag, Bergur Guðnason handbolta- maöur og Helgi Benediktsson sem gerði þaö gott á knattspyrnu- vellinum. Á 10. holu slógu þeir frekar slök upphafshögg og lágu boltamir þeirra um 10 cm hvor frá öðmm og tré á milli að því loknu. Eini munurinn á fram- haldinu hjá þeim félögum var sá að bolti Helga lá vel við höggi en bolti Bergs þannig að hann gat einungis slegið hann þvert inn á brautina. HeLgi lauk svo holunni á 4 höggum eða pari en Bergur ó 5 höggum og hafði á orði á eftir að þetta hefðu verið dýrir 10 cm fyrir sig. „Onl“ fór hún Logi Þormóðsson úr Golfklúbbi Suðurnesja fékk smáaðstoð á 10. flötínni í gærdag. Hann lentí í smábaslí við að koma boltanum sínura inn á flötina en hafði það þó á þremur höggum og boltinn var um 3 metra frá holu. Síöan púttaði hann að og boltinn stöðv- aðist á holubarminum. Þegar hann ætiaði síðan að Ijúka verk- inu kallaöi einhver til hans aö bíða aðeins, i þvi keyrði bíll um veginn rétt við flötína og titringur frá honura nægði til þess að ljúka verkinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.