Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1990, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 1990. 21 i í frjálsum íþróttum að Varmá i Mosfellsbæ. DV-mynd GS sigur“ £ liösstjórum HSK skiptum þegar lögö veröur tartanbraut á Laugarvatni fyrir landsmótið 1993.“ „Stuöningsmenn eiga stóran þátt í sigrinum“ Þaö fylgir okkar liöi einstök stemning og stór hópur stuöningsmanna hvetur liöið í keppni og á þessi hópur stóran þátt í árangri hðsins. Þaö voru allir staðráðnir 1 að gera sitt besta í bikarkeppninni og þegar htiö er til baka stóðu ahir fyrir sínu og vel það, en uröu smeykir þegar Jón Arnar meiddist í 100 metra hlaupinu þar sem hann átti að keppa í fjölda greina fyrir okkur en sem betur fer korau meiðsli hans ekki í veg fyrir glæsilegan sigur í bikarkeppninni. Það kom glögg- lega í Ijós hve breíddin í liðinu er mikil og það ööru fremur gerði sigurinn aö veruleika. Aöstaðan hér í Mosfellsbæ til frjálsra íþrótta er öh til fyrirmyndar,“ sagði Þráinn Hafsteinsson, liðsstjöri HSK, í samtalí við DV. -JKS íþróttir Bikarkeppni 1 frjálsum íþróttum: HSK vann í fyrsta skipti - ágætur árangur náðist í mörgum greinum Héraðssambandiö Skarphéðinn sigraði í bikarkeppni FRÍ á Varmár- vehi í Mosfellsbæ í gær og var þetta jafnframt í fyrsta skipti sem félagið vinnur sigur í þessari keppni en hún hefur verið haldin 25 sinnum. HSK var vel að sigrinum komið, hðið hafði jöfnum einstaklingum á að skipa og má segja að liðsheildin hafi gert þennan sigur að veruleika. HSK hlaut 154 stig, FH varð í öðru sæti og hlaut 143 stig, ÍR-ingar, sem unnið hafa keppnina 17 sinnum, höfnuðu í þriðja sæti með 142 stig, UMSE lenti í fjórða sæti með 128 stig, UMSS í því fimmta með 68 stig og UMSK í sjötta sæti einnig með 68 stig og falla þessi tvö síðasttöldu lið í 2. dehd. í kvenna- flokki vann ÍR sigur, hlaut 74 stig og HSK 69 stig. FH hlaut flest stig í karlaflokki eöa 88 talsins Ágætur árangur náðist í mörgum greinum enda fór keppnin fram við bestu hugsanlegar aðstæður og aö auki lék veðrið við keppendur báða keppnisdaga. Þórdís vann hástökkið Sigurvegarar í einstökum keppnis- greinum voru eftirtaldir: Á laugar- deginum vann Helen Ómarsdóttir, FH, sigur í 400 metra grindahlaupi á 62,7 sekúndum. Hún hafði mikla >dir- burði í þessu hlaupi. Þórdís Gísla- dóttir, HSK, vann enn einn sigur sinn í hástökki. Þórdís stökk 1,80 metra en fehdi naumlega 1,84 metra. Ólafur Guðmundsson, HSK, stökk lengst ahra í langstökki, 7,15 metra. Hjörtur Gíslason, UMSE, fékk ekki mikla keppni í 400 metra grindahlaupi og sigraði örugglega á tímanum 53,63 sekúndum. Andrés Guðmundsson, HSK, sigraði í kúluvarpi, kastaöi 17,40 metra. Bróðir hans, Pétur, keppti ekki á mótinu enda má aðeins einn keppandi frá hverju félagi keppa í hverri grein. Oddur Sigurðsson sterkur í hlaupunum Gunnar Guðmundsson, FH, sigraði í 100 metra hlaupi á 10,91 sekúndu, var rétt á undan Jóni Arnari Magnús- syni, HSK, sem hljóp á 10,97 sekúnd- um. Jón Arnar varð fyrir meiðslum í hlaupinu og keppti ekki í fleiri greinum í keppninni. Oddný Áma- dóttir, ÍR, sigraði í 100 metra hlaupi kvenna á 12,12 sekúndum, hljóp þetta hlaup glæsilega og var rétt á undan Súsönnu Helgadóttur, FH. Rögn- valdur Ingþórsson, UMSE, sigraði í 3000 metra hindrunarhlaupi á 9:26,81 mínútum. Sigurður Matthíasson, UMSE, sigraði í spjótkasti, kastaði 77,04 metra. Guðbjörg Viðarsdóttir, HSK, sigraði í kúluvarpi, kastaði 12,12 metra. Oddný Ámadóttir, ÍR, sigraði með yfirburðum í 400 metra hlaupi á 56,65 sekúndum. Oddný var tæpum þremur sekúndum á undan næsta keppanda. í karlaflokki vann Oddur Sigurðsson, FH, ömggan sig- ur í 400 metra hlaupi, hljóp á 48,72 sekúndum. Gunnlaugur reyndi við nýtt íslandsmet Marta Ernstdóttir, ÍR, sigraði með yfirburðum 1500 metra hlaupinu eins og búist haíði verið við. Marta hljóp á 4:32,73 mínútum. í 1500 metra hlaupi karla sigraði Finnbogi Gylfa- son, FH, á 4:06,4 mínútum. Guð- mundur Karlason, FH, sigraði í sleggjukasti, kastaði 58,70 metra. Gunnlaugur Grettisson, HSK, sigraði í hástökki, stökk 2,06 metra. Gunn- laugur reyndi síðan við nýtt íslands- met, 2,16 metra, en felldi. Gunnlaug- ur hefur ekkert æft frá því í fyrra vegna meiðsla og af þeim sökum verður árangur hans að teljast mjög góður. Gunnlaugur sagði í samtali við DV að hann stefndi að að komast til Englands til æfmga um næstu áramót og þar myndi hann dvelja fram á vorið. „Hugurinn stefnir á ólympíuleikana í Barcelona 1992,“ sagði Gunnlaugur hress í bragði eftir að sigurinn var í höfn á laugardag. í 4x100 metra boðhlaupi kvenna sigraði sveit FH á tímanum 49,56 sek- úndum og í 4x100 metra boðhlaupi karla sigraði sveit FH á tímanum 42,92 sekúndum. Vésteinn með gott kast í kringlunni Guörún Amardóttir, UMSK, sigraöi í 100 metra grindahlaupi kvenna á 14,38 sekúndum. Hjörtur Gíslason, UMSE, sigraði í 110 metra grinda- hlaupi karla á 14,59 sekúndum. Oddný Ámadóttir, ÍR, sigraði í 200 metra hlaupi á 25,26 sekúndum eftir harða keppni. Oddur Sigurðsson, FH, sigraöi í 200 metra hlaupi karla á 22,03 sekúndum. í stangarstökki sigr- aði Sigurður T. Sigurðsson, FH, stökk 4,90 metra. Vésteinn Hafsteins- son, HSK, náði ágætum árangri í kringlukasti, kastaði 62,86 metra og sigraði á sannfærandi hátt. Vésteinn kastaði 62,86 metra. Einar Kristjáns- son, FH, sigraði í þrístökki, stökk 13,90 metra en Friörik Þór Friðriks- son, sem var að keppa í 22. skipti í bikarkeppninni, varð annar með 13,76 metra. Oddný Árnadóttir, ÍR, sigraði í 800 metra hlaupi á 2:16,45 mínútu eftir harða keppni við Ingi- björgu ívarsdóttur, HSK. Frábær endasprettur Oddnýjar í boðhlaupinu Finnbogi Gylfason, FH, sigraði í 800 metra hlaupi karla á 1:54,94 mínút- um. Margrét D. Óskarsdóttir, ÍR, sigraði i kringlukasti, kastaði 39,08 metra. Bryndís Hólm, ÍR, sigraði í langstökki kvenna með 5,78 metra. Frímann Hreinsson, FH, sigraði í 5000 metra hlaupi á 15:06,20 mínútum og Marta Ernstdóttir, ÍR, sigraði í 3000 metra hlaupi kvenna á 9:31,0 mínútum. í 1000 metra boðhlaupi kvenna sigraði sveit ÍR á 2:16,84 mín- útum. Oddný Árnadóttir hljóp síð- asta sprett fyrir ÍR en þegar hún tók við keflinu var sveitin í þriöja sæti og á lokasprettinum komst hún fram úr Unni Stefánsdóttur, HSK, og sigr- aði. Oddný vann fimm sigra í keppn- inni og færði félagi sínu dýrmæt stig. í 1000 metra boðhlaupi karla sigraði sveit FH næsta örugglega. -JKS „Ánægjuleg bikarkeppni“ „Bikarkeppnin fór í aha staði hið besta fram og eins lék veðrið við keppendur báða mótsdagana og það er ekki htið atriði. í stigakeppni sem þessari vih oft fylgja mikhl taugatitr- ingur en hún var ekki til staðar að þéssu sinni. í bikarkeppni verður árangur keppenda misgóður því að margir hverjir eru að keppa í allt að flmm greinum fyrir félag sitt en þetta kemur óhjákvæmhega niður á ár- angri keppenda," sagði Magnús Ja- kobsson, formaöur FRÍ, í samtali við DV í gær. „Mér telst th að í bikarkeppninni um helgina í deildunum þremur hafi þátttakendur verið nálægt 400 talsins frá 16 félögum. Mér fannst mjög skemmtilegt að sjá gömlu andlitin mæta aftur til leiks. Þeir hafa greini- lega engu gleymt, enda stóðu þeir sig með mikilh prýði,“ sagði Magnús Jakobsson að lokum. • Gunnlaugur Grettisson, HSK, sigraði i hástökkinu og stökk 2,06 metra. Á myndinni fagnar Gunnlaugur sigrinum. íslandsmet hans er 2,15 metrar. DV-mynd GS Sport- stúfar Stephen McAllister frá Skotlandi sigraði á opna hohenska meist- aramótinu í golfi sem lauk Zandvoort í gær. McAlhster lék á 274 höggum sem er sex högg- um undir pari vaharins. Roger Chapman frá Englandi varð í öðru sæti á 276 höggum og Spán- verjinn Jose Maria Olazabal lenti í þriðja sæti á 279 höggum. Sovétmenn unnu brons í körfuknattleik Sovétmenn unnu th bronsverðlauna í körfuknattleik á frið- arleiknum í Seattle í gærkvöldi. Sovétmenn sigruöu Brasilíumerm í leiknum um bronsið meö 109 stigum gegn 103. 1 hálfleik var staöan 57-53 fyrir Sovétmenn. í leiknum um fimmta sætiö sigruðu Ástraliumeim líð Puerto Rico raeð 116 stigum gegn 92 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 59-53 fyrir Ásti-ahumenn. Finnar komu á óvart í ísknattieiknum Finnar komu á óvart í ísknatt- leiknum á friðarleikunum 1 Se- attle í nótt. Finnar sigruðu hið geysisterka lið Tékka með ijórum mörkum gegn tveimur. Tékkar tefla ekki fram sínu sterkasta liöi á leikunum en engu að síöur koma þessi úrslit á óvart. Júgóslavar unnu gull i sundknattleik Júgóslavar sigruðu Sovétmenn í úrslitaleik í sundknattleik á frið- arleikunum í Seattle í nótt. Leiknum lyktaði 10-8 eftir fram- lengdan leik en aö loknum venju- legum leiktíma var staðan jöfn, 8-8. í leiknum ura sjöimda sætið sigruðu Bandaríkjamenn hð Kúbumanna, 11-5. Sovétmenn hirtu gullið í handboltanum 77"... Sovétmenn þurftu svo jr" sannarlega að hafa // fyrir sigrinum í úr- slitaleiknum gegn Júgóslövum á fríðarleikunum um helgina. Aö loknum venjuleg- um leiktíma var staðan jöfn, 25-25. Framlengja þurfti leikinn og þá reyndust Sovétmenn sterk- ari og sigruðu með tveggja marka mun, 29-27. Sovétmenn voru með nánast óbreytt hö frá heíms- meistarakeppninni en Júgósla- var stihtu upp ungu og óreyndu liði sem stóð fyrir sínu á friðar- leikunum. ÞórogÍBVá Akureyri í kvöld Þór og ÍBV eigast við í 1. deild íslandsmótsins á Akureyri í kvöld klukkan átta. Þetta er leikur.úr 11. umferð mótsins en fresta varð leiknum á sínum tíma vegna þess að Eyjamenn komust ekki til lands vegna veðurs. Póiskur landsliðsmaður til Bayer Leverkusen Pólski landsliðsmað- urinn Zbigniew Plec- hoc gekk í raðir vest- ur-þýska handknatt- leiksliðsins Bayer Leverkusen um helgina. Plechoc, sem 28 ára að aldri, hefur að baki 170 lands- leiki fyrir Pólverja. Talið er aö vestur-þýska liðið hafi þurft að greiöa pólska liðinu Ðanzig um tíu milljónir króna. Forráöamenn Bayer Leverkusen leituðu um tíma hér á landi að sterkum handboltamanni.;: -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.