Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1990, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1990, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1990. 33 Sviðsljós Ólyginn sagði... Spánar- konungur Jóhann Karl Spánarkonungur stakk sér í fullum herklæöum til sunds og bjargaði tveimur systr- um úr sjónum viö Mallorka fyrir nokkru. Skútu systranna hvolfdi þegar kóngur var nærstaddur á mótorbáti á leið til Palma. Eftir að hafa bjargað stúlkunum og hjálpað þeim að rétta skútuna við tóku konungur og fylgdarmenn hans skútuna í tog til næstu hafn- ar. Elton John hefur stundað megrunarkúra með mismunandi árangri í tíu ár. Það eru ekki aðeins hattar og höfuðföt sem hann safnar. Þessi þekkti gleraugnaglámur hefur einnig safnað ýmsum megruna- rmeðulum sem hann hefur aldrei notað. Heimildir herma að í eld- hússkápunum hans séu um þrjú hundruð tegundir af slíku góð- gæti. En það er líka meira í eld- hússkápunum - ýmsir forboðnir ávextir - kex, snakk og fullt af nammi að sjálfsögðu. Sara Ferguson hertogaynja af York varð ný- lega fyrst meðlima bresku kon- ungsfjölskyldunnar til að heim- sækja Argentínu eftir Falklands- eyjastríðið en það var háð árið 1982. Sara fór með dætur sínar tvær til Argentínu. Erindið var að heimsækja háaldraðan stjúp- föður Söru, Hector Barrantes, sem þjáist af krabbameini. Arg- entínumenn gerðu miklar örygg- isráðstafanir vegna komu Söru. Hún er gift Andrew prins en hann var þyrluflugmaður í hinu tíu vikna langa Falklandseyjastríði. Andrew var ekki með í för. Christian Brando, sonur Marlons, neitaði fyrir rétti á þriðjudag að hafa myrt unnusta þungaðrar hálfsystur sinnar í vetur. Hann neitaði einnig að hafa haft ólöglegt vopn, vélbyssu, í sínum fórum. Réttarhöldin hafa staðið yfir í margar vikur en þetta var í sjöunda skiptið sem hinn ákærði, Christian, kemur fyrir réttinn. Vitnaleiðslum- ar í fyrradag voru hins vegar þær fyrstu í málinu þar sem Marlon Brando er ekki viðstaddur í réttar- salnum til að styðja son sinn. Christian, sem er 32 ára gamall, verður áfram í haldi í County Jail fangelsinu í Los Angeles, þrátt fyrir að faðir hans hafi verið tilbúinn til að greiða 10 milljónir dollara í trygg- ingu fyrir hann. Ástæðan er að vega- bréf Christians finnst ekki. Vega- bréfsmálið verður aftur tekið fyrir í réttinum í dag. Christian er ákærður fyrir morðið á Dag Drollet en hann var unnusti Cheyennes sem er hálfsystir Christ- ians. Sakborningurinn hefur þó játað að hafa skotið Drollet - en hann sagði að um slys hefði verið að ræða. Christian og Drollet lentu í miklu sagði Christian Brando við vitnaleiðslur Christian Brando kemur járnaður fyrir réttinn i Santa Monica i Kalitorníu í fyrradag. Vitnaleiðslurnar stóðu aðeins yfir í fimm mínútur að þessu sinni. Reuter rifrildi vegna þess að sá síðarnefndi hafði slegið Cheyenne sem var þung- uð á þeim tíma. Hún gekk með barn Drollets. Einum mánuði eftir lát Drollets fór Cheyenne frá Hollywood til heim- kynna sinna á Tahiti. Barnið, sem er fyrsta barnabarn Marlons Brando, fæddist síðan á Tahiti í síðastliðnum mánuði. Klakabandið hefur oft vakið athygli á þjóðhátíð fyrir frumlega búninga. Bandið var að þessu sinni iklætt fötum likt og íslenskir herramenn gerðu árið 1965 - toppmóðins tískutöff. Sérstakur heiðursfélagi bandsins er Kristj- án Óskarsson, útgerðarmaður og skipstjóri í Vestmannaeyjum. Hann stend- ur fyrir aftan gítarleikara hópsins. Fremst á myndinni eru „Pörupiltar" sem unnu til verðlauna fyrir frumleg- asta búninginn á þjóðhátíðinni í ár. Pörupiltarnir unnu Hensonskjöldinn fyrir að vera klæddir eins og enskir hermenn frá átjándu öld. í víkingabátn- um sitja Fyrirmyndartöffarar en þeir vöktu mikla athygli þegar þeir héldu innreið sína í Herjólfsdal á skipinu WC Viking. Skipið var búið öllum til- heyrandi búnaði, með seglum, trjónum og skjöldum. DV-myndir Ómar Garðarsson Eyjamenn, sem áttu heima í Þingholti, sem varð undir hraunstraumnum í Vestmannaeyjagosinu, halda ætíð hópinn á þjóðhátíð. Fólkið hefur á sið- ustu árum ávallt tjaldað á sama stað í Herjólfsdal. Flest af Þingholtsfólkinu býr ennþá í Vestmannaeyjum. Mikil samkeppni um Hensonskjöldinn á þjóðhátíð: Frumlegustu bún- ingamir kostuðu tugi þúsunda Um sex þúsund manns voru á þjóð- hátíð í Eyjum um verslunarmanna- helgina. Hátíðin þótti takast afar vel. Þróun undanfarinna ára hefur ver- ið sú að hópar ungmenna taka sig saman og keppast við að skarta sem frumlegustu búningunum. Að þessu sinni voru það Pörupiltar sem sigr- uðu í keppninni og voru þeir íklædd- ir skrautlegum hermannabúningum. Ekkert er til sparað fyrir þessa keppni. Búningar Pörupiltanna kost- uðu tíl aö mynda hátt í 30 þúsund krónur - hver búningur. Á annan tug hópa tóku þátt í keppninni. Verð- launaafhendingin fór fram á föstu- dagskvöldið og var það Halldór Ein- arsson, Henson, sem afhenti sjálfur svokallaðan Hensonskjöld. -ÓTT Rointon fnr Iram á milli hinna alræmdu Hrekkialór dugði þó ekki til. Logi Snædal skipstjóri, aðstoðarmaður Lómanna, endaði úti í tjörn og fékk hann kalt bað við mikil fagnaðarlæti viðstaddra. Ekki fylgir það sögunni hvort Hrekkjalómarnir hafi verið búnir að ákveða fyrirfram að bleyta Loga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.