Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1990, Page 1
■
■
Stöð 2 á laugardag:
Herstöðin
Herstöðin (Presidio) er spennu-
mynd þar sem valinn maður er í
hverju rúmi. Leikstjórinn, Peter Hy-
ams, er einn af þekktari leikstjórum
í kvikmyndaborginni Hollywood og
liggja eftir hann myndir eins og
Running Scared, Capricorn One,
Star Chamber og 2010. Peter Hyams
leikstýrði ekki eingöngu ofangreind-
um myndum því hann er einnig
handritshöfundur myndanna.
Leikararnir í Herstöðinni eru ekki
af verri endanum enda stórstjörnur
í flestum aðalhlutverkum. Fyrst ber
að nefna óskarsverðlaunahafann
Sean Connery sem fer með hlutverk
yfirmanns herstöðvar í nágrenni
stórborgarinnar San Francisco.
Mark Harmon, sem sló svo eftir-
minnilega í gegn sem fjöldamorðingi
í framhaldsmyndaflokknum um Ted
Bundy, leikur lögreglumann sem er
fenginn til að rannsaka morð sem
átti sér stað á herstöðinni.
Sean Connery og Mark Harmon leika aðalhlutverkin í Herstöðinni.
Lögreglumaðurinn þarf að leggja ýmislegt á sig til að leysa málið.
Yfirmaður herstöðvarinnar (Conn-
ery) og lögreglumaðurinn (Harmon)
höfðu lengi eldað grátt silfur og geng-
ur þeim brösulega að vinna að morð-
málinu þar sem þeir hafa ólíkar
skoðanir og aðferðir við öflun sönn-
unargagna. Inn í þessa rimmu bland-
ast síðan dóftir herforingjans, sem
leikin er £if Meg Ryan, og fara þá
hjólin heldur betur að snúast.
Sýning myndarinnar hefst kl. 22.55.
-GRS
Stöó 2 á miðvikudögum:
Spilaborgin
Sjónvarp á laugardag:
f návígi
Á miðvikudag hefur göngu sína
nýr breskur framhcddsmyndaflokk-
ur á Stöð 2 og ber hann nafnið Spila-
borgin eða Capital City á frummál-
inu.
Sögusviðið er verðbréfamarkaður
þar sem aðalpersónurnar lifa hratt
og fljúga hátt. Menn geta grætt millj-
ón á einni mínútu en smáhik getur
þýtt milljónatap á þeirri næstu. í
þættinum á miðvikudag er komið til
leiks í Spilaborginni á mánudags-
morgni og engum hefur gengið vel
upp á síðkastið. Markaðurinn hefur
verið reikull, kauphailarmiðlararnir
eru undir pressu, þeir verða að
standa sig betur en í síðasta mánuði,
annars fara höfuð að fjúka...
Sýning fyrsta þáttarins um Spila-
borginahefstkl. 21.45. -GRS
komin á skjá landsmanna.
Stöð 2 á sunnudögum:
Það eru án efa margir sjón-
varpsáhorfendur, sem eru komn-
ir yfir tvítugt, sem muna eftir
kengúrunni Skippy og ævintýr-
um hennar. Stöð 2 hefur nú tekið
til sýninga nýja þætti og enn er
þessi ótrúlega vel tamda og þjálf-
aða kengúra í aðalhlutverki.
Það er þjóðgarðsvörðurinn
Matt Hammond, sem er leikinn
af Ed Ðevereaux, sem á Skippy
en hún er leikfélagi sona hans. í
þessum þætti fara tveir rallkapp-
ar í gegnuro friðaðan þjóðgarðinn
í óþökk. Ökumaðurinn missir
stjórn á bílnum og þeir slasast
mjög illa. Skippy og yngri sonur
Matts eru að leika sér og heyra
þegar bíllinn fer út af. Þau flýta
sér til hjálpar en geta litið gert
því annar rallkappanna er með-
vitundarlaus og hinn er fastur í
bílflakinu. En hvað skyldu þessir
fræknu félagar taka til bragðs?
Þættimir ura Skippy eru á dag-
skrá á sunnudagsmorgnum kl.
11.35. -GRS
í kvöld kl. 22.45 sýnir Sjónvarpið
bandaríska spennumynd frá árinu
1986, byggða á sannsögulegum at-
burðum sem áttu sér stað í Pennsyl-
vaníu árið 1978.
Brad Whitewood yngri er átján ára
gamall, óstýrilátur og lifsþyrstur.
Hann hefur alist upp við þröngan
kost í smábæ í Pennsylvaníu í kyrrð
sveitalífsins með móður sinni, ömmu
og háifbróður þar sem fátt ber til tíð-
inda og lífið er í föstum skorðum.
Hér lætur hann sig dreyma um hrað-
skreiða bíla, gnægð fjár og endur-
fundi við fóöur sem yfirgaf hann í
æsku. Brad Whitewood eldri er hins
vegar enginn venjulegur faðir, al-
ræmdur glæpaforingi þar um slóðir
sem fæst við rán og smygl tengt
glæpaneti um landið þvert og endi-
langt. Þegar hann kemur aftur inn í
það tómarún sem sonur hans lifir í
er Brad yngri staðráðinn í að grípa
tækifærið og losna úr prísundinni.
Myndinni, sem James Foley leik-
stýrir, hefur verið jafnað við hina
frægu mynd með James Dean, Wild-
blood, og sannarlega minnir útht og
fas Sean Penn, sem leikur Brad
yngra, á þetta kvikmyndagoð sjötta
áratugarins. Christopher Walken
leikurföðurinn. -GRS
Aðalpersónurnar i Spilaborginni lifa hratt og fljúga hátt.